Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar 31. október 2026 12:02 Í Viðskiptablaðinu skrifar dálkahöfundur sem kallar sig Óðinn. Þar birtist grein 1. október sl. og var tilefni hennar að gagnrýna grein sem ég skrifaði stuttu áður í Vísi þar sem ég lýsti yfir áhyggjum af uppsögnum í Stjórnarráðinu. Athygli mín var vakin fyrir stuttu á þessum skrifum Viðskiptablaðsins en þau höfðu farið fram hjá mér vegna þess hversu lítið fór fyrir þeim. Í grein minni fjallaði ég meðal annars um uppsagnir í dómsmálaráðuneytinu. Óðinn kýs hins vegar að svara þeim áhyggjum í tölfræðilegum samanburðarstíl með því að bera starfsmannafjölda nú saman við tölur frá árinu 1995, eða fyrir ríflega 30 árum. Síðan þá hefur landsmönnum fjölgað um rúm 40%. Árið 1995 var netið rétt að byrja að ryðja sér til rúms á Íslandi, Wonderwall með Oasis ómaði lon og don í útvarpinu og ferðamenn til Íslands voru brot af þeim fjölda sem sækir landið heim nú. Sjálfur man ég helst eftir þýskum puttaferðalöngum. Samsetning samfélagsins og verkefni stjórnsýslunnar voru þá með allt öðrum hætti. Árið 1995 voru ráðuneytin fjórtán í stað ellefu nú. Málaflokkar færast reglulega á milli ráðuneyta, frá ráðuneytum í undirstofnanir þeirra og jafnvel til baka í ráðuneytin aftur, allt eftir vilja stjórnvalda hverju sinni. Þannig var rekstur grunnskólanna færður frá ríkinu til sveitarfélaganna þetta ár. Verkefnin færðust til en hurfu ekki. Á undanförnum áratugum hafa orðið umfangsmiklar breytingar á íslenskri stjórnsýslu og nýir málaflokkar hafa orðið til. Hversu umfangsmikil voru verkefni á sviði netöryggis og útlendingamála árið 1995 miðað við nú? Löggjöf hefur þróast, alþjóðlegar skuldbindingar aukist, kröfur um upplýsingagjöf og gagnsæi orðið meiri og verkefni stjórnvalda hafa tekið breytingum. Einnig hafa kröfur til undirbúnings ákvarðana, eftirlits og faglegra vinnubragða aukist. Óðinn bendir réttilega á að fjölgun starfsfólks sanni ekki að stjórnsýslan hafi batnað. En af sömu ástæðu sannar fjölgun stöðugilda ekki að stjórnsýslan hafi þanist út umfram þörf. Til þess þarf að skoða verkefnin, ábyrgðina og árangurinn. Ég hef hvergi haldið því fram að fjöldi starfsmanna Stjórnarráðsins eigi að vera óbreyttur um alla framtíð. Ég hef heldur ekki sagt að hvert einasta stöðugildi sé ómissandi eða að ekki megi finna tækifæri til hagræðingar. Þvert á móti er mikilvægt að stjórnsýslan sé reglulega endurskoðuð og að opinberum fjármunum sé ráðstafað af ábyrgð. Stundum getur það kallað á breytta verkaskiptingu, tæknivæðingu eða einföldun regluverks. Og stundum getur niðurstaðan verið sú að of fáir starfsmenn sinni þegar tilteknum verkefnum. Fólk getur haft ýmsar skoðanir á notkun skattpeninga og verkefnum ríkisins en villandi leikir með tölur og prósentur svara þó ekki þeim spurningum sem svara þarf. Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Sjá meira
Í Viðskiptablaðinu skrifar dálkahöfundur sem kallar sig Óðinn. Þar birtist grein 1. október sl. og var tilefni hennar að gagnrýna grein sem ég skrifaði stuttu áður í Vísi þar sem ég lýsti yfir áhyggjum af uppsögnum í Stjórnarráðinu. Athygli mín var vakin fyrir stuttu á þessum skrifum Viðskiptablaðsins en þau höfðu farið fram hjá mér vegna þess hversu lítið fór fyrir þeim. Í grein minni fjallaði ég meðal annars um uppsagnir í dómsmálaráðuneytinu. Óðinn kýs hins vegar að svara þeim áhyggjum í tölfræðilegum samanburðarstíl með því að bera starfsmannafjölda nú saman við tölur frá árinu 1995, eða fyrir ríflega 30 árum. Síðan þá hefur landsmönnum fjölgað um rúm 40%. Árið 1995 var netið rétt að byrja að ryðja sér til rúms á Íslandi, Wonderwall með Oasis ómaði lon og don í útvarpinu og ferðamenn til Íslands voru brot af þeim fjölda sem sækir landið heim nú. Sjálfur man ég helst eftir þýskum puttaferðalöngum. Samsetning samfélagsins og verkefni stjórnsýslunnar voru þá með allt öðrum hætti. Árið 1995 voru ráðuneytin fjórtán í stað ellefu nú. Málaflokkar færast reglulega á milli ráðuneyta, frá ráðuneytum í undirstofnanir þeirra og jafnvel til baka í ráðuneytin aftur, allt eftir vilja stjórnvalda hverju sinni. Þannig var rekstur grunnskólanna færður frá ríkinu til sveitarfélaganna þetta ár. Verkefnin færðust til en hurfu ekki. Á undanförnum áratugum hafa orðið umfangsmiklar breytingar á íslenskri stjórnsýslu og nýir málaflokkar hafa orðið til. Hversu umfangsmikil voru verkefni á sviði netöryggis og útlendingamála árið 1995 miðað við nú? Löggjöf hefur þróast, alþjóðlegar skuldbindingar aukist, kröfur um upplýsingagjöf og gagnsæi orðið meiri og verkefni stjórnvalda hafa tekið breytingum. Einnig hafa kröfur til undirbúnings ákvarðana, eftirlits og faglegra vinnubragða aukist. Óðinn bendir réttilega á að fjölgun starfsfólks sanni ekki að stjórnsýslan hafi batnað. En af sömu ástæðu sannar fjölgun stöðugilda ekki að stjórnsýslan hafi þanist út umfram þörf. Til þess þarf að skoða verkefnin, ábyrgðina og árangurinn. Ég hef hvergi haldið því fram að fjöldi starfsmanna Stjórnarráðsins eigi að vera óbreyttur um alla framtíð. Ég hef heldur ekki sagt að hvert einasta stöðugildi sé ómissandi eða að ekki megi finna tækifæri til hagræðingar. Þvert á móti er mikilvægt að stjórnsýslan sé reglulega endurskoðuð og að opinberum fjármunum sé ráðstafað af ábyrgð. Stundum getur það kallað á breytta verkaskiptingu, tæknivæðingu eða einföldun regluverks. Og stundum getur niðurstaðan verið sú að of fáir starfsmenn sinni þegar tilteknum verkefnum. Fólk getur haft ýmsar skoðanir á notkun skattpeninga og verkefnum ríkisins en villandi leikir með tölur og prósentur svara þó ekki þeim spurningum sem svara þarf. Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS).
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun