Skoðun

Tíu ár af skattfrjálsri ráð­stöfun

Daði Már Kristófersson skrifar

Ríkissjóður á að vera í jafnvægi, varasjóðir okkar þurfa að vera í stakk búnir til að mæta áföllum og taumhald þarf að hafa á skuldasöfnun ríkisins. Þetta er undirstaða þess að ríkið geti veitt þjónustu, létt undir með heimilum og tryggt almenna velsæld.

Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán er eitt gagnlegasta úrræði sem stjórnvöld hafa komið á fót fyrir íslensk heimili. Úrræðið hefur stutt við eignamyndun fjölskyldna í þeim brotsjó sem verðbólguumhverfi fljótandi krónu hefur reynst þeim.

Stærsti gallinn var hins vegar sá að úrræðið var sett á til bráðabirgða og aðeins framlengt um skamman tíma í senn. Það skapaði óþarfa óvissu í heimilisbókhaldinu. Heimilin eiga skilið meiri vissu og fyrirsjáanleika. Þess vegna höfum við fest úrræðið varanlega í sessi, þannig að hverjum og einum standi það til boða í samanlagt 10 ár.

Samhliða þessu gerðum við tvær aðrar mikilvægar breytingar:

  1. Jafn réttur óháð hjúskaparstöðu: Fram að þessu hafa einstaklingar getað nýtt 500 þúsund krónur af séreignarsparnaði sínum skattfrjálst á ári en hjón og sambúðarfólk samanlagt 750 þúsund krónur. Framvegis mun sama hámark gilda um alla án tillits til hjúskaparstöðu, 500 þúsund krónur á mann.
  2. Fjárhæð heldur verðgildi: Í stað þess að hámarksfjárhæðin standi í stað og rýrni að raunvirði, líkt og hún hefur gert frá upphafi, mun hún framvegis taka árlegum hækkunum í samræmi við vísitölu neysluverðs.

Úrræðið hefur verið framlengt tímabundið í allnokkur skipti og féll síðast úr gildi 1. janúar 2026. Í hvert sinn hafa heimilin þurft að bíða í von og óvon eftir því hvort löggjafinn myndi endurnýja heimildina. Við höfum bundið enda á þessa óvissu í eitt skipti fyrir öll sem eru afar jákvæðar fréttir fyrir þá 55.000 einstaklinga sem hafa ekki fullnýtt rétt sinn.

Ég hvet fólk til að hafa hraðar hendur. Með því að sækja um fyrir 1. desember næstkomandi er hægt að óska eftir því að nýtingin gildi afturvirkt frá síðustu áramótum. Þannig getur fólk lækkað höfuðstól lána sinna um allt að 500 þúsund krónur á þessu ári. Náist það ekki fara engin réttindi þó forgörðum, því með nýja fyrirkomulaginu er miðað við samanlagðan nýtingartíma en ekki samfelldan.

Ábyrg ríkisfjármál snúast á endanum um fólkið í landinu. Þau skapa svigrúmið sem þarf til þess að hið opinbera geti staðið þétt við bakið á heimilunum. Með því að festa séreignarúrræðið í sessi, jafna rétt hjóna og verja fjárhæðina gegn verðbólgu færum við fjölskyldum landsins raunverulegan fyrirsjáanleika og sterkari grunn til að byggja á.

Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar.




Skoðun

Sjá meira


×