„Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar 3. nóvember 2026 13:16 Viðskiptaráð er fallegt nafn yfir lobbíista í viðskiptalífinu. Hljómar virðulega. Traust. Jafnvel eins og aðili sem stendur vörð um almannahag. Svo er ekki. Viðskiptaráð hugsar um eigin hag. Það innheimtir veltutengd félagsgjöld. Þeir sem borga mest ráða mestu. Áhugavert væri að sjá hvað virkjanageirinn og gagnaver eru að greiða inn í hagsmunasamtökin. Aðeins með hagsmunum þeirra er hægt að skýra sturlaða tillögu lobbíastanna um að leggja Rammaáætlun niður og tvö- til fjórfalda raforkuframleiðslu á Íslandi.Ísland framleiðir rúmlega tvöfalt meira af raforku á mann en sú þjóð sem er í öðru sæti, Noregur. Næstum þrefalt meira en þjóðirnar í sætum 3-5.Þjóðin var klofin í herðar niður í átökum um Kárahnjúkavirkjun. Rammaáætun (2011) var hönnuð til að skapa sátt á milli virkjunarsjónarmiða og náttúruverndarsjónarmiða. Ákvarðanir skyldu teknar á faglegum grunni. Æ síðan hefur virkjanageirinn og misvitrir stjórnmálamenn reynt að eyðileggja Rammann. Af þeim síðarnefndu er núverandi umhverfisráðherra verstur. Það er sárt að sjá sama flokk og kom á sátt í málaflokknum rífa sáttina í sundur.Þegar lobbíistar og stjórnmálamenn kveina um orkuskort segja þeir ósatt. Ekki óvart heldur viljandi. Þeir vita sem er að í nýtingarflokki Rammanns eru virkjunarkostir sem samanlagt gefa meiri orku en tvær Kárahnjúkavirkjanir. Skýrsla lobbíastanna er herkænska. Hræðsluáróður, til að einkaaðilar geti fengið að hrifsa til sín almannagæði eins og víðerni landsins og náttúruperlur. Sérstöðu Íslands.Þetta er lævís aðferð til að stela arfinum frá komandi kynslóðum.Núverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, sem nýlega bolaði farsælum forstjóra úr starfi, sat í stjórn Viðskiptaráðs í 8 ár. Viðskiptaráð hefur ítrekað lagt til að Landsvirkjun verði seld einkaaðilum. Skiptaráð er gamalt orð yfir aðila sem skiptir upp þrotabúum, félagsbúum og dánarbúum. Viðskiptaráð vill taka þinn dýrasta arf, náttúru Íslands, og skipta henni á milli hagsmunaaðila sinna. „Við“ um „okkur“, frá „okkur“ til „okkar“. „Við“ skiptaráð. Höfundur er hagfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Sjá meira
Viðskiptaráð er fallegt nafn yfir lobbíista í viðskiptalífinu. Hljómar virðulega. Traust. Jafnvel eins og aðili sem stendur vörð um almannahag. Svo er ekki. Viðskiptaráð hugsar um eigin hag. Það innheimtir veltutengd félagsgjöld. Þeir sem borga mest ráða mestu. Áhugavert væri að sjá hvað virkjanageirinn og gagnaver eru að greiða inn í hagsmunasamtökin. Aðeins með hagsmunum þeirra er hægt að skýra sturlaða tillögu lobbíastanna um að leggja Rammaáætlun niður og tvö- til fjórfalda raforkuframleiðslu á Íslandi.Ísland framleiðir rúmlega tvöfalt meira af raforku á mann en sú þjóð sem er í öðru sæti, Noregur. Næstum þrefalt meira en þjóðirnar í sætum 3-5.Þjóðin var klofin í herðar niður í átökum um Kárahnjúkavirkjun. Rammaáætun (2011) var hönnuð til að skapa sátt á milli virkjunarsjónarmiða og náttúruverndarsjónarmiða. Ákvarðanir skyldu teknar á faglegum grunni. Æ síðan hefur virkjanageirinn og misvitrir stjórnmálamenn reynt að eyðileggja Rammann. Af þeim síðarnefndu er núverandi umhverfisráðherra verstur. Það er sárt að sjá sama flokk og kom á sátt í málaflokknum rífa sáttina í sundur.Þegar lobbíistar og stjórnmálamenn kveina um orkuskort segja þeir ósatt. Ekki óvart heldur viljandi. Þeir vita sem er að í nýtingarflokki Rammanns eru virkjunarkostir sem samanlagt gefa meiri orku en tvær Kárahnjúkavirkjanir. Skýrsla lobbíastanna er herkænska. Hræðsluáróður, til að einkaaðilar geti fengið að hrifsa til sín almannagæði eins og víðerni landsins og náttúruperlur. Sérstöðu Íslands.Þetta er lævís aðferð til að stela arfinum frá komandi kynslóðum.Núverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, sem nýlega bolaði farsælum forstjóra úr starfi, sat í stjórn Viðskiptaráðs í 8 ár. Viðskiptaráð hefur ítrekað lagt til að Landsvirkjun verði seld einkaaðilum. Skiptaráð er gamalt orð yfir aðila sem skiptir upp þrotabúum, félagsbúum og dánarbúum. Viðskiptaráð vill taka þinn dýrasta arf, náttúru Íslands, og skipta henni á milli hagsmunaaðila sinna. „Við“ um „okkur“, frá „okkur“ til „okkar“. „Við“ skiptaráð. Höfundur er hagfræðingur
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun