Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar 3. nóvember 2026 15:02 Mín upplifun er einföld: kerfið vinnur ekki með nýjum foreldrum. Fæðingarorlof er tólf mánuðir. Engin brú tekur við þegar því lýkur og sveitarfélögum ber engin skylda til að taka við barninu í leikskóla. Haustið 2025 var barn að meðaltali um 22 mánaða þegar það byrjaði í borgarreknum leikskóla í Reykjavík. Foreldrar þurfa því að brúa um tíu mánuði sjálfir, með launalausu leyfi, dagforeldri, ömmum og öfum eða einhverju púsluspili sem rétt sleppur. Á sama tíma er barnið aldrei dýrara. Búnaður, stærra húsnæði, dagforeldri og svo leikskólagjöld. Kostnaðurinn er mestur á fyrstu árunum. Og hver ber hann? Ungir foreldrar. Fólk sem er nýkomið út á vinnumarkaðinn, oft nýbúið að taka hæsta lán ævinnar og á lægstu launum sem það mun hafa á starfsævinni. Svo er fólki refsað fyrir að eignast börn með stuttu millibili. Ég eignaðist tvö börn með 14 mánaða millibili. Greiðslur í fæðingarorlofi miðast við laun á tólf mánaða tímabili sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingu. Þegar stutt er á milli barna lendir fyrra orlofið inni á því tímabili. Seinna orlofið er þá reiknað af greiðslum sem voru sjálfar aðeins 80% af laununum. Staðreyndin var einfaldlega sú að ég hafði ekki efni á að taka fæðingarorlof. Heildartími minn á vinnumarkaði breyttist ekkert. Ég hefði unnið nákvæmlega jafn mikið og borgað sömu skatta þótt ég hefði beðið í tvö ár í viðbót. Af hverju er verið að refsa mér og dóttur minni fyrir að ég beið ekki lengur? Svíþjóð og Noregur verja foreldra gegn þessu. Hér er fólki refsað fyrir að eignast börn. Svo léttist róðurinn eftir því sem börnin eldast. Við sex ára aldur tekur skólaskyldan við og foreldrið hættir að borga. Leikskólinn getur hins vegar verið dýr, sérstaklega fyrir þá sem hafa ekki fengið styttingu vinnuvikunnar og þurfa lengri vistun. Af hverju borgar foreldri fimm ára barns en ekki foreldri sex ára barns? Hvaða rök eru fyrir því önnur en að svona hafi þetta alltaf verið? Kerfið er í raun hannað öfugt. Byrðin er þyngst þegar foreldrar eru tekjulægstir og léttist eftir því sem þeir hækka í launum. Fólk lækkar ekki í launum með aldrinum, það hækkar. Þegar maður bendir á þetta er svarið nær alltaf það sama: þetta hefur alltaf verið erfitt. Ég efast ekki um það. Það var erfitt fyrir foreldra okkar og fyrir foreldra þeirra. Sumt er meira að segja erfiðara í dag, eins og húsnæðisverðið. Mín kynslóð kemst oft ekki inn á húsnæðismarkaðinn fyrr en um þrítugt, mun seinna en foreldrar okkar. En ég ætla ekki í keppni um hvort það sé erfiðara í dag eða í gamla daga. Það skiptir í raun ekki máli. Stærri spurningin er: Af hverju þarf þetta að vera erfitt yfir höfuð? Og þetta skiptir máli. Frjósemi á Íslandi fór undir tvö börn á hverja konu árið 2013 og hefur ekki náð því aftur. Árið 2025 var hún 1,56, sú lægsta sem mælst hefur. Það þarf um 2,1 til að kynslóðir endurnýi sig. Við erum hætt að endurnýja okkur. Við höfum ekki efni á kerfi sem gerir fólki erfiðara fyrir að eignast börn. Að eignast barn er ekki einkamál sem kemur samfélaginu ekkert við. Börnin sem fæðast í dag munu manna spítalana, borga lífeyrinn og halda samfélaginu gangandi eftir 25 ár. Samt förum við með fyrstu árin eins og busun. Er ekki kominn tími til að hætta að busa nýja foreldra? Lengjum fæðingarorlof í 18 mánuði. Hættum að refsa fólki fyrir stutt bil milli barna eða að það sé að koma úr námi. Skyldum sveitarfélög til að taka við börnum frá 18 mánaða aldri. Og miðum gjaldfrjálsa vistun við lengstu vinnuskylduna á vinnumarkaði, ekki þá stystu. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun