Skoðun

Götu hvað?

Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Heyrði ég rétt þegar ég hlustaði á kvöldfréttir á RUV í gær ?

Fyrrverandi forseti lýðveldisins var að tala um einn ráðherrann í ríkisstjórn Ísland, sem hefur setið lengst á alþingi af þeim sem sitja þar nú. Hann sagði hana tala í götustelpu stíl.

Fletti orðinu götustelpa upp í orðabók og það þýðir illa siðuð stúlka.

Hvað nýja stíl er fyrrum forseti okkar farinn að tileinka sér ?

Getur verið að hann þurfi að tala niður til öflugra kvenna líkt og collegi hans vestanhafs gerir ítrekað og þannig reyna að upphefja sjálfan sig. Það eru vond siðaskipti hjá honum sem reyndar hefur margsannað að það er í lagi að skipta um skoðun og sigla með hinu liðinu næst. Berast bara eftir því hvaða vindar blása.

En utanríkisráðherra okkar er engin götustelpa hvað þá illa siðuð. Heldur öflug kona sem þorir að láta kné fylgja kviði. Stofnar sinn eigin flokk og fylgir sínu máli eftir alla leið. Tekur ósigri með sóma og heldur áfram að settu marki. Gefst ekki upp. Hittir ráðamenn í æðstu stöðum út um allan heim og tekur höfðinglega á móti gestum hér heima. Við Íslendingar getum verið stolt af því að eiga svona glæsilegan fulltrúa í samstarfi erlendra ríkja.

Hún er vissulega stelpuleg og töffari í útliti, alltaf brosandi og kemur til dyranna eins og hún er klædd. Hefur verið undir eflaust miklu álagi að undanförnu á mörgum vígstöðvum. Þarf líklega ekki að bæta við fleiri átaka stöðum hvað þá að munnhöggvast við fólk á eftirlaunum sem hafa lokið sínum störfum.

Ég vil taka það fram að ég hef ekki kosið Viðreisn eða verið sérstakur aðdáandi þess flokks en ég hef aðeins kynnst konunni sem gegnir þessu mikilvæga embætti fyrir þjóð sína og gerir það vel. Við vorum saman í stuttri stelpu ekki götustelpu ferð þó, síðast liðið sumar. Þorgerður Katrín er skemmtileg, heillandi kona sem gaman er að vera með. Hún er skvísa, töffari, staðföst og mikil keppnis manneskja. Gefur af sér í öllum samskiptum og það er gaman að hlægja með henni. Algjörlega laus við hroka eða yfirlæti hvað þá þörf fyrir að tala aðra niður til að reyna að upphefja sjálfa sig. Eitthvað annað en sumir götu strákarnir sem hafa aldrei lært að hegða sér.

Verum stolt af okkar utanríkisráherra og styðjum hana í hennar verkum. Vöndum mál okkar og reynum að tala fallega við og um hvert annað, þá náum við settu marki.

Höfundur er læknir.




Skoðun

Sjá meira


×