Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar 4. nóvember 2026 07:46 Ný tækni á að spara tvær klukkustundir á dag. Hvernig á að nýta þann tíma? Á að fjölga verkefnum eða nýta tímann til að bæta vinnubrögð, læra nýja hluti eða gera vinnuálagið viðráðanlegra? Svarið segir töluvert um það hvers konar vinnustað við viljum skapa. Tvær klukkustundir gætu gefið okkur tækifæri til þess að bæta bæði vinnudaginn og árangur til lengri tíma. En hvaða ákvarðanir þurfa að fylgja svo það verði raunin? 4. nóvember er alþjóðlegur vitundardagur um streitu. Í ár leggja alþjóðlegu samtökin ISMA sérstaka áherslu á að gera vinnustaði mannlegri (e. Rehumanising the Workplace). Þrjú viðfangsefni eru þar í forgrunni: vinnustaðamenning, tengsl milli kynslóða og áhrif tækni og gervigreindar á framtíð vinnunnar. Mannlegur vinnustaður verður til í ákvörðunum um hvað á að gera, á hvaða tíma og með hvaða stuðningi. Við þær ákvarðanir þarf að taka mið af vinnuálagi, heilsu starfsfólks og þeim tíma sem þarf til að tileinka sér ný vinnubrögð. Það getur þýtt að þurfi að fresta verkefnum á meðan starfsfólk lærir á nýja tækni eða nýta tímann sem sparast til að draga úr of miklu vinnuálagi. Þegar krafan um árangur er mikil reynir á svigrúm stjórnenda til að styðja við starfsfólk. Skoðum þetta út frá þremur dæmum úr daglegu starfi. Tímasparnaður á undan áætlun Teymi byrjar að nota gervigreind við skýrslugerð sem samkvæmt áætlun á að spara starfsfólki tvær klukkustundir á dag. Samhliða breytingunni er verkefnum teymisins fjölgað í samræmi við tímafjöldann sem sparast. Starfsfólkið er þó enn að læra á tæknina, sannreyna niðurstöður og finna út hvaða verkefni henta. Sum eru óörugg með tæknilegu yfirfærsluna og halda eigin hliðarskrár til að tryggja yfirsýn. Önnur leita til samstarfsfólks til að fara yfir niðurstöður sem þau hefðu áður treyst sér til að afgreiða sjálf. Þessi vinna tekur tíma sem ekki var gert ráð fyrir í áætluninni. Tímasparnaðurinn hefur því ekki skilað sér að fullu, en nýju verkefnin eru þegar komin. Ef stjórnandi fær svigrúm til að bíða með fjölgun verkefna getur teymið fengið tíma til að prófa verkfærið og meta hvað það sparar í raun. Sú reynsla getur síðan orðið grunnur að raunhæfum ákvörðunum um verkefnafjölda og vinnuálag. Ólíkar kynslóðir, betri vinnubrögð Yngri starfsmaður leggur til að verkefni verði sjálfvirknivætt. Reyndari samstarfsmaður bendir á undantekningar sem þurfi að taka tillit til. Annar sér möguleika til breytinga, hinn þekkir aðstæður sem gætu farið framhjá þeim sem hafa minni reynslu. Bæði sjónarmið geta bætt ákvörðunina. En það þarf að gefa þeim vægi. Samtalið gæti endað á því að sá yngri fái að heyra að hann skilji ekki starfsemina og sá eldri að hann sé fastur í gömlum vinnubrögðum. Þá verður lítið úr hugmyndinni og báðir sitja uppi með þá tilfinningu að ekki hafi verið hlustað. Hér getur stjórnandi gefið þeim tíma til að skoða tillöguna saman. Þeir prófa að sjálfvirknivæða nokkur einföld verkefni og finna hvaða undantekningar kalla á sérstaka yfirferð. Niðurstaðan verður breytt verklag sem sparar tíma og tekur jafnframt mið af reynslunni sem þegar er til staðar. Þarna hafa báðir lært og báðir haft áhrif. Sá yngri skilur betur hvers vegna vinnan hefur verið unnin með ákveðnum hætti og sá reyndari sér nýja möguleika til að bæta hana. Tengsl milli kynslóða styrkjast þegar fólk fær tækifæri til að leggja sitt af mörkum. Hvað gerist þegar fólk segir frá Starfsmaður segir á teymisfundi að verkefnin séu orðin of mörg. Stjórnandinn þakkar fyrir hreinskilnina, sýnir skilning og hvetur starfsfólk til að hlúa vel að sér. Nokkrum dögum síðar eru verkefnin og tímamörkin óbreytt. Samtalið getur haft gildi. En ef sambærilegar ábendingar leiða ítrekað til sömu niðurstöðu gæti starfsfólkið dregið þá ályktun að það hafi lítil áhrif á vinnuaðstæðurnar að segja frá álagi. Ekki er alltaf hægt að fækka verkefnum eða færa tímamörk. Stjórnandi þarf engu að síður að skoða hvort hægt sé að breyta verkaskiptingu, útvega aðstoð eða einfalda vinnubrögð. Ef þær leiðir duga ekki þarf að leggja málið fyrir þau sem hafa umboð til að ákveða frekari breytingar. Starfsfólkið þarf að vita hvað tekur við eftir að það hefur sagt frá, hvað er raunhæft að gera og hvenær staðan verður metin aftur. Hver ræður og hver ber ábyrgð? Í öllum þessum dæmum reynir á svigrúm til ákvarðana. Næsti stjórnandi getur hlustað, séð vandann og viljað bregðast við. Ef hann má hvorki breyta verkefnum, tímaáætlunum né kröfum kemst hann þó skammt. Ábyrgðin nær því til þeirra sem ráða fjármagni, markmiðum og mönnun. Þau þurfa að tryggja að stjórnendur hafi umboð til að bregðast við og skýrt sé hvert þeir geti leitað þegar frekari ákvarðana er þörf. Þau þurfa jafnframt að fá upplýsingar um hvernig áætlanir þeirra reynast í daglegu starfi og hafa svigrúm til að endurskoða þær. Á mannlegum vinnustað hefur heilsa og starfsumhverfi vægi í ákvörðunum. Það getur þýtt að breyta þurfi áætlun, fresta verkefnum eða gefa meiri tíma til að læra. Slíkar ákvarðanir geta kostað tíma og fjármuni til skamms tíma. Þær geta líka lagt grunn að betri vinnubrögðum og árangri sem fólk getur staðið undir í lengri tíma. Tvær klukkustundir sem sparast eru því meira en bara svigrúm fyrir fleiri verkefni. Þær eru tækifæri til að ákveða hvernig vinnan þróast. Hver fær að taka þátt í þeirri ákvörðun? Höfundur er klínískur sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun