Vestmannaeyjar

Sjáðu þáttinn um TM-mótið: Stuðhundur, afi þjálfari og flottar fléttur
Gleðin var við völd á TM-mótinu í Vestmannaeyjum um síðustu helgi eins og glöggt má sjá í sérstökum þætti um mótið sem nú má sjá á Vísi og Sýn+.

„Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“
Mótstjóri ÍBV segir tilkynningum um óviðeigandi hegðun foreldra á fótboltamótum hafa fækkað en þó berist alltaf einhverjar. Hins vegar séu feður á fótboltamótum stráka mun harorðaðri og æstari heldur en á fótboltamótum stelpna.

Krefjast tveggja milljarða króna vegna vatnsleiðslunnar
Vestmannaeyjabær hefur krafist tæpra tveggja milljarða króna í bætur af hálfu Vinnslustöðvarinnar, Huginn og VÍS. Þetta er fyrir það tjón sem skip þessara félaga, Huginn VE-55, olli á vatnsleiðslu í eigu bæjarins 17. nóvember 2023. Stefnan var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í dag.

Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna
Ríkisstjórinn í Utah og öldungadeildarþingmaður ríkisþingsins voru með í för þegar frítt föruneyti mormóna heimsótti Vestmannaeyjar um helgina. Þess var minnst að á fimmtíu ára tímabili fluttust um 400 Íslendingar til Utah vegna trúar sinnar og að af þessu fólki hafi 200 farið frá Vestmannaeyjum.

Um 100 skemmtiferðaskip í Vestmannaeyjum í sumar
Um hundrað skemmtiferðaskip koma til Vestmannaeyja í sumar og eru þau fyrstu nú þegar komin. Koma skipanna er mikil vítamínsprauta fyrir bæjarfélagið fyrir allskonar þjónustu.

Biblíur og Kjarval sameinast í Vestmannaeyjum
Það var mikið um dýrðir i Vestmannaeyjum þegar biskup Íslands, kirkjumálaráðherra og menningarmálaráðherra mættu til að vera viðstödd opnun „Fágætissalar“ í Safnahúsi Eyjamanna en þar er að finna eitt glæsilegasta biblíusafn þjóðarinnar, meðal annars Guðbrandsbiblíu frá 1584.

Dómur yfir Bergvini óbreyttur en þarf að greiða hærri miskabætur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir Bergvini Oddssyni, fyrrverandi formanni Blindrafélags Íslands, fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum á veitingastað og hosteli í Vestmannaeyjum.

Eyjaherrar heiðruðu sjötugan Ásgeir í stjörnufans
Knattspyrnudeild ÍBV hélt herrakvöld í félagsheimili Víkings í Safamýri í Reykjavík á föstudagskvöld þar sem Ásgeir Sigurvinsson var sérstakur heiðursgestur. Var honum þakkað sérstaklega fyrir hans framlag til íslenskar knattspyrnu í tilefni þess að hann varð sjötugur þann 8. maí. Ásgeir er uppalinn í Eyjum.

Skipstjórinn svarar fyrir sig
Fyrrverandi skipstjóri á Huginn VE55 sem missti akkeri sem olli skemmdum á neysluvatnslögn í Vestmannaeyjum fyrir hálfu öðru ári segir mikil vonbrigði hvernig stjórnendur og eigendur Vinnslustöðvarinnar hafi komið fram eftir atvikið. Útgerðin sverti starfsmenn sína og dragi úr eigin ábyrgð á slysinu.

Áhrif breytinga á veiðigjaldi – staðreyndir og áhrif nýs frumvarps
Á undanförnum árum hefur sífellt verið reynt að þrýsta á um hækkun veiðigjalda með rangfærslum og ósönnum fullyrðingum. Nú liggur fyrir frumvarp sem felur í sér stórfellda hækkun á veiðigjöldum og byggir á fullkomlega óraunhæfum forsendum.

Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa
Eik fasteignafélag undirritaði í dag kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Festingu hf. Fasteignir Festingar hér á landi eru tólf talsins, um 43 þúsund fermetrar að stærð, og hýsa starfsemi Samskipa hf. á Íslandi.

Tíu ára fór holu í höggi í Eyjum
Bráðefnilegur kylfingur að nafni Kristófer Daði Viktorsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Vestmannaeyjavelli.

Slæmur frágangur akkerisins olli slysinu
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur ástæðu þess að akkeri Hugins VE festist í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar, með þeim afleiðingum að vatnslögn til Eyja fór í sundur, hafi verið að hvorki hafi verið gengið rétt né nægjanlega vel frá akkerisbúnaði skipsins.

Stefán Einar tók vel á því með Ísfélaginu
Stefán Einar Stefánsson blaðamaður á Morgunblaðinu fór til Gdansk í Póllandi með starfsmannafélagi Ísfélagsins, þar sem hann skemmti sér og var skemmtanastjóri í heljarinnar árshátíðarferð.

Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins
Fjármálaráðherra segist ekki geta lýst því hvers vegna ríkið gerði kröfu um að Heimaklettur og hlíðar Herjólfsdals, ásamt úteyjum og skerjum við Heimaey, yrðu þjóðlendur.

Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá
Listamaðurinn Ólafur Elíasson fær hátt í 88,5 milljónir króna frá ríkinu og Vestmanneyjabæ fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey sem til stendur að reisa á Eldfelli. Þá er ótalinn kostnaður vegna gerðar göngustígs og annarra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á svæðinu en áætlaður heildarkostnaður gæti numið allt að 220 milljónum. Ríflega sex hundruð manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem minnisvarðanum er mótmælt.

Orkuöflun á eyjaklösum - Vestmannaeyjar og Orkneyjar
Nýlega heimsótti ég Orkneyjar, norður af Skotlandi, til að skoða orkuinnviði og framleiðslu á orku í eyjasamfélagi í Norður-Atlantshafi. Með mér í för voru fulltrúar nokkurra af þeim stórnotendum raforku sem eru með starfsemi í Vestmannaeyjum sem og fulltrúar frá Umhverfis- og orkustofnun og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum var rekin með hálfs milljarðs króna tapi í fyrra. Félagið hefur aðeins einu sinni áður verið rekið með tapi síðasta aldarfjórðung. Félagið hefur slegið nauðsynlegum fjárfestingum í skipakosti þess á frest vegna áforma stjórnvalda um veiðigjöld.

Opið bréf til fjármálaráðherra, Daða Más Kristóferssonar
Nýlega birtist í fréttum að Óbyggðanefnd hefði komist að þeirri almennu niðurstöðu að eyjar og sker sem liggja nær en 2 km. frá landi, þ.e. jörð eða heimaeyju, væru eignarland eins og annað land jarðarinnar. Var um þessa niðurstöðu m.a. vísað í 2. kafla Rekabálks Jónsbókar.

Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin
Veiðigjöld verða hækkuð umtalsvert samkvæmt frumvarpi sem ríkisstjórnin afgreiddi í morgun. Atvinnuvegaráðherra segir þó horfið frá tvöföldun þeirra. Hún skilur ekki umdeilda auglýsingu SFS gegn hækkuninni og er sannfærð um að hún nái fram að ganga.

TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum
Þegar ÍBV tryggði sér krafta bandaríska framherjans Allison Lowrey í vetur fékk félagið ekki bara góðan liðsstyrk í Lengjudeildina heldur einnig TikTok-stjörnu með fleiri fylgjendur en búa á Íslandi.

Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð
Stjórn Ísfélagsins hf. samþykkti á aðalfundi félagsins í dag að arðgreiðsla á árinu 2025 vegna síðasta rekstrarárs verði 2,1 milljarður króna sem greiddur verður út 16. maí næstkomandi.

Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf
Skipstjórnarmenn skemmtiferðaskipsins Seabourn Venture þurftu að beita neyðarstöðvun við útsiglingu frá Vestmannaeyjum í ágúst í fyrra þegar skipið mætti Herjólfi. Skipstjóri Herjólfs dró úr ferð og beygði inn í Klettsvík til að forðast árekstur. Þetta kemur fram í bókun Rannsóknarnefndar samgönguslysa en atvikið átti sér stað þann 29. ágúst í fyrra.

Arndís Bára lögreglustjóri næsta árið
Dómsmálaráðherra hefur sett Arndísi Báru Ingimarsdóttur í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum til tólf mánaða, frá og með 1. apríl 2025.

Stuðlabandið höfundar og flytjendur Þjóðhátíðarlagsins: „Við megum ekki fokka þessu upp“
Hljómsveitin Stuðlabandið eru höfundar og flytjendur Þjóðhátíðarlagsins í ár. Þjóðhátíð í Eyjum er stærsta og vinsælasta útihátíð landsins og ríkir því mikil spenna fyrir Þjóðhátíðarlaginu ár hvert. Þetta var tilkynnt í útvarpsþættinum Brennslan á FM957 í morgun.

Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum
Ísfélagið í Vestmannaeyjum hagnaðist um rúmlega tvo milljarða króna í fyrra. Árið áður var hagnaðurinn rúmlega fimm milljarðar. Forstjóri félagsins segir ljóst að afkoma greinarinnar megi ekki við frekari kostnaðarhækkunum þegar tekið er tillit til nauðsynlegra fjárfestinga og eðlilegrar afkomu greinarinnar.

Sameina útibú TM og Landsbankans
Útibú TM og Landsbankans á Akureyri, Reykjanesbæ og í Vestmannaeyjum munu sameinast á mánudaginn næsta.

„Ég er ofurmenni, það á ekkert að geta komið fyrir mig“
Óvíst er hvort Kári Kristján Kristjánsson geti haldið áfram handboltaiðkun eftir að slæm veikindi skiluðu honum á hjartadeild Landsspítalans. Kári er þó á batavegi.

Ætlar að finna jarðvarma á köldum svæðum
Umhverfisráðherra er sannfærður um að hægt sé að finna jarðvarma á köldum svæðum og hefur blásið til átaks í því skyni. Verja á milljarði í verkefnið á næstum árum. Bylting ef vel tekst til, að sögn bæjarstjóra Vestmannaeyja.

Nauðgunardómur Guðmundar Elíss staðfestur
Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir nauðgun sem hann framdi í Vestmannaeyjum í september árið 2021. Hann hefur áður komist í kast við lögin vegna grófs ofbeldis.