Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Lovísa Arnardóttir skrifar 20. ágúst 2026 09:16 Ragnar fór fyrst með Liam á veiðar þegar hann var 22 mánaða. Í dag er hann átta ára. Aðsend Ragnar Þór Jóhannsson, faðir úr Vestmannaeyjum, var tilkynntur til barnaverndar eftir að hann tók son sinn á veiðar og deildi af þeim mynd þar sem sonur hans, Liam, hélt í byssuna. Sonur hans meðhöndlaði ekki vopnið á neinn hátt og voru vopnin óhlaðin í myndatökunni að sögn Ragnars. „
Það er margt slæmt í þessum heimi, en ekki að vera úti í náttúrunni með pabba sínum í veiði, þó að barnið sjálft sé ekki að veiða að skjóta, má það vera með og upplifa ákveðna hluti í þessu ferli. Þetta er samverustund fyrir okkur,“ segir Ragnar Þór í samtali við fréttastofu. Samkvæmt vopnalögum veitir lögreglustjóri skotvopnaleyfi og er meðal skilyrða að vera tuttugu ára gamall og með sjálfræði. Enginn má eiga eða nota skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri nema hafa til þess tilskilin leyfi eða heimildir. Samkvæmt lögum mega börn ekki nota skotvopn nema undir eftirliti fullorðinna leiðbeinenda eða þjálfara, á löglegum skotsvæðum og innan viðurkenndra skotfélaga. Fjallað er um lágmarksaldur til að nota tegundir skotvopna til íþróttaiðkunar í reglugerð. Ragnar fjallaði um málið í færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann deildi umræddri mynd af sér og syni sínum, Liam, við veiði í Elliðaey. „Ég á ekki til orð yfir hvað mér finnst þetta orðið galið. Ég var tilkynntur til barnaverndar vegna myndar af mér og syni mínum úti í Elliðaey við veiðar. Þar stilltum við okkur upp fyrir mynd á meðan við erum í göngu um eyjuna og við erum með byssu. Já, ég fer með son minn á veiðar. Og já, ég geri það með stolti,“ segir hann í færslunni en Ragnar var til viðtals um málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Ragnar segir ekkert ólöglegt við myndina og að hann hafi ekkert gert rangt af sér. Hann viti ekki hver hafi tilkynnt en viti að tilkynningarnar voru tvær. „Ég þarf ekkert að vita það,“ segir Ragnar um það hver tilkynnti. Hann á ekki von á því að nokkuð verði gert við tilkynninguna en vegna þess að ekki sé um brot á vopnalögum að ræða. Forræðishyggjan of galin Hann segir forræðishyggjuna í samfélaginu orðna „alveg galna“. Hann segist hafa farið sjálfur á veiðar fyrst eins árs og hann taki öll börn sín með sér á veiðar. Liam hafi verið 22 mánaða þegar hann fór fyrst með honum og sé átta ára í dag. Yngri dætur sínar hafi hann einnig tekið með á veiðar. „Maturinn kemur ekki tilbúinn í kjötborðinu í Hagkaup,“ segir Ragnar og að hann vilji kenna börnunum sínum um uppruna matarins og að það þurfi að hafa fyrir honum. Ragnar segir fólk stundum hneykslast á honum og uppeldi hans en hann sé alinn upp með sama hætti. Ragnar telur samfélagið skipta sér of mikið af hlutum sem það eigi ekki að skipta sér af. Hann segir tilkynningarnar hafa borist sama dag og myndin birtist fyrst, 6. ágúst, og svo aftur nokkrum dögum síðar. Konan hans hafi fengið símtal um tilkynninguna og þau boðuð í viðtal. „Ég hef ekkert út á barnavernd að setja,“ segir Ragnar og að hann hafi eingöngu fengið góð viðbrögð hjá þeim. Þau vildu skýringar á myndinni en honum hafi ekki þótt neitt óeðlilegt við myndina. Óþægilegt að vera á skrá hjá barnavernd Hann segir það samt sem áður óþægilega tilfinningu að vera á skrá hjá barnavernd og konunni hans þyki það líka. Ragnar segist eiga svipaðar myndir af sér með afa sínum og föður og að honum hafi þótt þetta falleg mynd af þeim feðgum. „Það besta sem ég fékk úr fundinum var að ég gerði ekkert af mér,“ segir Ragnar um fundinn með barnavernd og að hann hafi fengið það staðfest á fundinum að hann hafi ekki brotið á vopnalögum með þessum hætti. Ragnar telur að fólk eigi að líta í eigin barm áður en það tilkynnir fólk til barnaverndar. Það séu alvarlegri hlutir til að skoða en faðir að veiða með barninu sínu. Hann segir viðbrögð við málinu hafa verið mikil og fjöldi veiðimanna í Vestmannaeyjum hafi birt mynd við færsluna af sér með börnum sínum við hvers kyns veiðar. Færsluna er hægt að sjá að neðan. Þar segir Ragnar einnig að hans markmið sé að ala upp sterkan strák sem kunni að bjarga sér og þola mótlæti. „Ef þú hefur raunverulegar áhyggjur af því hvernig ég ala upp son minn, talaðu þá við mig. Ég get staðið fyrir framan hvern sem er og útskýrt nákvæmlega hvað ég er að kenna honum og hvers vegna. En ég ætla ekki að skammast mín fyrir það. Ég ætla að halda áfram að ala upp sterkan, góðan og ábyrgan strák sem kann að bjarga sér í þessum heimi. Og fyrir það biðst ég nákvæmlega engrar afsökunar,“ segir hann í færslunni.
Skotveiði Skotvopn Vestmannaeyjar Barnavernd Börn og uppeldi Bítið Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira