Játar að hafa logið til um nauðgun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 21:32 Íris Helga Jónatansdóttir gaf skýrslu í dag. Vísir Íris Helga Jónatansdóttir játaði að hafa tilkynnt Garp I. Elísabetarson til lögreglunnar og sakað hann um gróft kynferðisbrot en síðan tekið það strax til baka. Hún sé reið út í hann sem vakti athygli fjölmiðla á málinu. Íris sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti.
Aðalmeðferð yfir Írisi Helgu hófst í morgun og er hún sökuð um umsáturseinelti gagnvart þremur mönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu einnar þeirra og fjölskyldu hennar. Meðal brotaþola er Garpur en hann birti færslu árið 2025 þar sem hann lýsti reynslu sinni. Ákæruliðirnir í málinu eru 68 talsins en tólf af þeim snúa að Garpi og dóttur hans. Íris Helga var fyrst um sinn spurð hvernig hún þekkti hann og sagði hún þau hafa verið vini á Instagram. „Hann addaði mér á Instagram og ég held það hafi verið út af einhverju Bakgarðshlaupi sem hann var með í útsendingu. Ég hafði mikinn áhuga á hlaupum á þessum tíma,“ sagði hún þegar hún gaf skýrslu fyrir dómara í dag. Þau hafi einungis hist einu sinni og það hafi verið í Öskjuhlíðinni þegar hann var að stjórna útsendingu fyrir Bakgarðshlaupið. Þau hafi átt í einhverjum samskiptum á Instagram en hann beðið hana á einum tímapunkti að eyða öllum samskiptum þeirra, sem hún gerði. Íris Helga sagði þau þekkjast afar lítið en hún væri mjög reið út í hann. „Ég er reið út af því sem hann gerði nýlega, út af fjölmiðlaumfjölluninni.“ Dóttirin hafi fengið óviðeigandi myndir Dóttir Garps er meðal brotaþola en Íris á, samkvæmt ákærunni, að hafa stofnað fjóra reikninga á TikTok þar sem hún birti samtals tugi færslna með myndum af Garpi og dóttur hans. Þar er hann sagður um að vera kynferðisbrotamaður, heimilisfang hans birt og dóttir hans merkt við færslurnar. Þá voru allir aðgangarnir að fylgja dótturinni svo hún myndi sjá færslurnar. Íris Helga neitaði alfarið sök og ítrekaði að hún noti ekki samfélagsmiðilinn TikTok. Því hafi hún ekkert um málið að segja. Hún tekur fram að á þessum tíma hafi hún verið nýstigin upp úr erfiðum veikindum og með áfallastreituröskun. Í gögnum málsins liggur fyrir að reikningarnir voru stofnaðir í farsíma hennar og gat hún ekki gefið svör við því hver gæti staðið á bak við það. Einnig átti Íris að hafa sagt samstarfsfólki sínu að Garpur væri kærasti hennar og dóttir hans stjúpdóttir hennar. Þá sagði hún að þrír drengir við skólann sem hún kenndi í hefðu sent dótturinni óviðeigandi myndir og varð það til þess að skólastjórnendur tóku málið til skoðunar. „Ég kannast ekki við það en ég greindi frá því að það voru sendar dóttur minni óviðeigandi myndir,“ segir hún og telur að ef til vill hafi misskilningur stafað af því. Sakaði um nauðgun Þegar kom að tölvupósti sem sendur var á Stöð 2, vinnustað Garps, þar sem hann var sakaður um kynferðisofbeldi, kannaðist hún ekkert við málið. Það vakti athygli að sama netfang var notað til að senda þann tölvupóst og notaður var til að senda á skóla dóttur Sölva Guðmundssonar, annars brotaþola í málinu, þar sem hún var sökuð um að áreita samnemendur sína. „Ég hef engar skýringar á því,“ svaraði Íris. Íris Helga játaði sök í liðnum sem varðaði heimsókn hennar á heimili Garps. Hún sagði að það hafi verið afmælisdagurinn hans og hana hefði langað að gleðja hann. Því hefði hún skilið döðlugott eftir fyrir utan heimili hans en ekki hitt hann og hann þakkaði fyrir sig með skilaboðum. Þá játaði hún því einnig að hafa fyllt út beiðni um tíma hjá kærumóttöku og óskað eftir því að leggja fram kæru vegna nauðgunar. „Ég játa sök en ég dró þetta strax til baka, ég sendi strax tölvupóst, ég sendi strax. Það var bara verið að mannorðsmyrða mig,“ sagði hún og bætir við að hún hafi snöggreiðst. Um var að ræða afar grófar lýsingar að sögn sækjandans. Þá bætir hann við að óskað hafi verið eftir tímanum 11. febrúar en 4. mars fór hún í skýrslutöku og hélt því áfram fram að hún hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu Garps. „4. mars birti hann færslu á Facebook sem sneri lífi mínu á hvolf. Ég var gjörsamlega í áfalli.“ Ákveður þú þá að byrja aftur að saka hann um nauðgun? „Nei, ég sagði það ekki,“ svaraði hún. Tilkynnt til Barnaverndar Íris Helga sakar þá Garp og fjölskyldu hans um að hafa tilkynnt hana oft til Barnaverndar. Einn ákæruliðurinn snýr að því að hún hafi tilkynnt hann undir nafni Sölva. Þegar haft var samband við Sölva hafi hann átt að koma af fjöllum. Hún neitaði að hafa sent tilkynningu undir nafni Sölva en sagðist hafa gert það sjálf undir sínu eigin nafni. „Ég hugsaði að ef einhver væri að tilkynna fyrir svona sæi ég ekki að maðurinn gæti verið heill á geði,“ sagði Íris. Í lokin bætir Íris við að hún hafi rekist aftur á Garp fyrir utan IKEA í Garðabæ. Þar hafi hann gengið fyrir bíl hennar á bílastæðinu og heilsað. „Hann hefur ekki hugmynd um hver ég er. Allt þetta mál er svo skrýtið og ég skil ekki neitt.“
Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Dómsmál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira