Innlent

Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair

Árni Sæberg skrifar
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Vísir/Vilhelm

Fjórir þingmenn Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að heimila eldri borgurum að taka á móti erlendum einstaklingi í vistráðningu, eða með öðrum orðum að ráða sér svokallaða au pair.

Í tillögunni, sem Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson flytja, segir að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra, í samráði við félags- og húsnæðismálaráðherra, að leggja fyrir Alþingi eigi síðar en 1. mars 2027 frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, um dvalarleyfi vegna vistráðningar.

Einstaklingur ráðinn vistráðningu, svokölluð au pair, er ungmenni á aldrinum 18 til 25 ára, oftast kona, sem dvelur hjá vistfjölskyldu og sinnir léttum heimilisverkum og annast börn gegn fæði, húsnæði og vasapening.

Hjúkrun bönnuð

Þannig verði heimilt að veita dvalarleyfi vegna vistráðningar þegar vistfjölskylda er einstaklingur, 67 ára eða eldri, eða hjón eða sambúðarfólk þar sem annað er 67 ára eða eldra, sem býr á eigin heimili, án þess að skilyrði um barn á heimili eigi við.

Hlutverk hins vistráðna hjá eldri borgara verði félagsskapur, samvera og létt aðstoð við heimilishald, en skýrt verði kveðið á um að hjúkrun, persónuleg umönnun, aðstoð við persónulegt hreinlæti, lyfjagjöf og eftirlit með lyfjatöku falli utan vistráðningar.

Hámark vinnuframlags hjá eldri borgurum verði ákveðið sérstaklega og verði ekki hærra en það sem gildir um vistráðningu hjá barnafjölskyldum. Skyldur vistfjölskyldu, svo sem um húsnæði, fæði, vasapeninga og tryggingar, verði hinar sömu og gilda um aðrar vistfjölskyldur.

Vilja áfram þriðja ríkis au pair

Eftirlit með vistráðningum, sem Útlendingastofnun er nú skylt að fela sérstökum eftirlitsaðila, taki til beggja aðila og verði hrint í framkvæmd samhliða breytingunni.

Loks er lagt til að heimild haldist til að veita ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins dvalarleyfi vegna vistráðningar en dómsmálaráðherra hefur boðað frumvarp um breytingar á dvalarleyfakerfinu, sem felur meðal annars í sér að ekki verður lengur heimilt að veita svokölluðum þriðja ríkis borgara dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar.


Tengdar fréttir

Vilja borga fyrir eftirlit með au pair

Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×