Gekk á milli bíla og braut rúður Bjarki Sigurðsson skrifar 2. nóvember 2026 10:56 Fjölmargir bílar urðu fyrir skemmdum. Magnús Benediktsson Óprúttinn aðili gekk milli bíla á Seltjarnarnesi í skjóli nætur og braut bílrúður. Engu var stolið og segir íbúi að um þrjátíu ökutæki hafi orðið fyrir skemmdum. Lögreglan rannsakar nú málið.
Magnús Benediktsson, forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi, og eiginkona hans Hildur Sif Hilmarsdóttir vöknuðu í morgun við skilaboð frá nágranna sínum um að búið væri að brjóta rúður á bílum við heimili þeirra. „Ég stekk út á sloppnum og kíki á þetta og þá sjáum við að það er búið að brjóta rúður á nokkrum bílum. Svo kemur í ljós þegar fleiri nágrannar fara út að tjónið er töluvert umfangsmeira. Þetta eru hátt undir þrjátíu bílar sem urðu fyrir barðinu,“ segir Magnús í samtali við fréttastofu. Íbúi að plasta fyrir gluggann.Vísir/Anton Brink Skemmdarvargurinn hefur notað einhvers konar áhald til að berja í rúðurnar og brjóta þær. Líkt og sjá má á myndinni hér fyrir ofan splundraðist rúðan ekki á þeirra bíl en það voru ekki allir svo heppnir. „Ein kona er með þrjá barnabílstóla og glerbrotin fóru út um allt og í stólana. Sama hjá okkur, það fóru smá glerbrot í bílstólinn,“ segir Magnús. Hildur Sif og Magnús búa á Seltjarnarnesi. Enginn varð var við neitt í morgun. Ekkert þjófavarnarkerfi fór í gang. „Þarna var engin Tesla. Þær eru með myndavélar þannig það hefði verið gott. Það varð bara enginn var við neitt en núna erum við nágrannarnir að tala saman og vonandi er einhver með dyrabjöllumyndavél eða eitthvað. Svo er myndavél hjá gamla Mýrhúsaskóla. Lögreglan er að kíkja í myndavélina, vonandi kemur eitthvað úr því,“ segir Magnús. Þar sem í gærkvöldi voru heilar bílrúður er nú plast og límband. Vísir/Anton Brink Sumar bílrúður mölbrotnuðu.Magnús Benediktsson Frá Kirkjubraut.Vísir/Anton Brink Magnús telur að um þrjátíu ökutæki hafi orðið fyrir skemmdum. Hildur Sif Ekki er vitað hver var að verki.Vísir/Anton Brink
Seltjarnarnes Lögreglumál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Sjá meira