Innlent

„Það er svo­lítið seint í rassinn gripið“

Tómas Arnar Þorláksson og Telma Tómasson skrifa
Petrea Aðalheiður Ómarsdóttir er formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar.
Petrea Aðalheiður Ómarsdóttir er formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar. vísir/aðsend/vilhelm

„Nú virðist öldin vera önnur. Við erum húsnæðislausar. Ég var á fundi með Barna- og fjölskylduráði fyrir nokkrum vikum þar sem ég lagði þetta fram en engin svör hafa borist.“

Þetta segir í færslu Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar sem birtist á Facebook-síðu úrræðisins fyrir hádegi. Þar kemur fram að nefndin hafi ekki getað sótt um þá styrki sem starfsemin reiðir sig á vegna húsnæðisskorts. Upphaflegt húsnæði hafi verið rifið og Hafnarfjarðarbær ekki útvegað nýtt húsnæði fyrir árið.

Nefndin hafi til margra ára komið til móts við efnaminni einstaklinga og fjölskyldur í aðdraganda jólanna svo að fólk geti átt gleðilega stund eða náð endum saman.

Færsla Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar á Facebook.vísir/skjáskot

Nefndin muni ekki geta rétt út hjálparhönd fyrir þessi jól að öllu óbreyttu. Ef það verður raunin verða rúmlega 400 manns af kærkominni aðstoð. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar hafi haft samband eftir að færslan var birt og sagt málið í skoðun.

„Við erum komnar á þann stað að umsóknir um aðstoð fyrirtækja með matvörur eru svo til runnar út. Ég er miður mín yfir að við skulum vera í þessari stöðu þar sem nokkur hundruð fjölskyldur og einstaklingar treysta á okkur en ég, ásamt öðrum, hef reynt eftir fremsta megni að koma þessu í gang en boltinn er ekki lengur hjá okkur heldur bæjarstjórn Hafnarfjarðar.“

Síminn hringdi eftir færsluna

Petrea Aðalheiður Ómarsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar, segir í samtali við fréttastofu að Valdimar Víðisson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði, hafi vakið athygli á stöðu nefndarinnar á fundi í byrjun október og ítrekað það síðan aftur 20. október. Málið hafi átt að vera tekið fyrir í síðustu viku en ekkert gerst. 

Síminn hafi loks hringt eftir að hún birti umrædda færslu.

„Það á eitthvað að athuga málið. Húsnæði er þó ekki bara húsnæði. Það þarf húsnæði sem gefur þá tilfinningu að fólk sé velkomið þangað inn. Við þurfum húsnæði með góðu aðgengi. Ég fékk símtal frá Samfylkingunni í morgun og mér var lofað að það ætti að athuga þetta. Það er svolítið seint í rassinn gripið.“

Áður var nefndin til húsa í Kató sem var áður leikskóli en húsnæðið var síðan rifið niður.

 Á síðasta ári var nefndin til húsa á Strandgötunni í miðbæ Hafnarfjarðar.

„Svona á eiginlega ekkert heima þar, það er ekki fyrir skjólstæðinga okkar að vera einhvers staðar í miðbænum. Við þurfum eitthvað gott húsnæði þar sem strætó gengur og fólk getur sótt til okkar hult.“

400 manns sem stóla á þjónustuna

Vegna skorts á húsnæði hefur ekki verið hægt að sækja um styrki hjá þeim fyrirtækjum og velunnurum sem styðja vanalega starfið.

„Fullt af félagasamtökum hérna í Hafnarfirði hafa haldið okkur gangandi. Ég hef ekkert getað sótt um neina styrki. Það verður bara að koma í ljós hvernig úthlutunin í ár verður ef við fáum húsnæði.“

Hún segist auðvitað binda vonir við að allt fari á besta veg.

„Það eru mörg hundruð fjölskyldur sem sækja til okkar í desember til að fá smá styrk fyrir jólin. Það voru hátt í 400 manns í fyrra sem voru hjá okkur. Þörfin er mjög mikil.“

Hún tekur fram að skjólstæðingum fjölgi á milli ára. 

„Það fjölgar í hópnum. Mikið af fólki sem er að missa vinnuna og annað og biður okkur um aðstoð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×