Viðskipti innlent

Bjarna blöskraði bjórverðið á barnum
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skellti sér á barinn á Nordica Hilton hótelinu á Suðurlandsbraut um helgina þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hélt flokksráðsfund sinn um helgina.

Ingvi Björn nýr sviðsstjóri endurskoðunar hjá Deloitte
Ingvi Björn hóf störf hjá Deloitte árið 2004 og varð eigandi árið 2013.

Stundin hagnaðist um tíu milljónir
Útgáfufélagið Stundin ehf. hagnaðist um rúmlega tíu milljónir króna á árinu 2018. Það er aukning um fjórar milljónir frá árinu 2017.

Olíufélög bregðast við haldist heimsmarkaðsverð óbreytt
Íslensku olíufélögin segjast munu þurfa að hækka verð til neytenda ef skörp hækkun heimsmarkaðsverðs verður viðvarandi. Hækkunin muni þó ekki verða 20 prósent, eins og á mörkuðum erlendis, því að stór hluti verðsins sé föst gjöld. Heimsmarkaðsverðir hefur meiri áhrif á útgerðir og flugfélög.

Mesti samdráttur í utanlandsferðum Íslendinga í áratug
Brottfarir Íslendinga um Leifsstöð voru í ágústmánuði 14% færri en á sama tíma fyrir ári. Þetta er mesti samdráttur sem hefur sést á flugferðum Íslendinga í ágústmánuði síðan 2009.

Ísland á skömmum tíma náð í skottið á ríkustu þjóðunum
Íslenskt efnahagsumhverfi er heilbrigt, jöfnuður óvíða meiri og staða ríkissjóðs traust.

40 prósent landsmanna nota mjólkurvörur frá Bolungarvík reglulega
Annað árið í röð trónir Fjarðarkaup toppi lista MMR yfir þau fyrirtæki sem Íslendingar mæla helst með. Athygli vekur að mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík, sem var mæld í fyrsta skipti í ár, skýst beint í fimmta sæti listans.

Þau vilja stýra fjármálastöðugleikasviði Seðlabankans
Alls sóttu níu manns um stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs í Seðlabanka Íslands sem auglýst var til umsóknar í síðasta mánuði.

Matthías keypti blokk á Akranesi af Heimavöllum hf.
Fjárfestirinn Matthías Imsland keypti nýlega fjórtán íbúða blokk á Akranesi af leigurisanum. Hann fjármagnaði kaupin með lánum til 50 ára frá Íbúðalánasjóði sem aðeins eru ætluð óhagnaðardrifnum leigufélögum. Slík félög þurfa að uppfylla ströng skilyrði en meðal annars eru arðgreiðslur bannaðar.

Drónaárásirnar gætu leitt til umtalsverðra eldsneytis- og verðlagshækkana hér á landi
Drónaárásir á sádi-arabískar olíuvinnslustöðvar gætu haft mikil áhrif um allan heim.

Lærði af mistökunum sem hún viðurkenndi
Sara Sturludóttir opnaði fallega blóma- og gjafavöruverslun í miðju íbúðahverfi í Kópavogi árið 2009 en ævintýrið endaði ekki líkt og Sara hafði óskað sér.

Gísli pólfari kaupir Vigur á hundruð milljóna króna
Gísli Jónsson, bílstjóri hjá Arctic Trucks og stundum nefndur pólfari eftir ferðalög sín á Suðurskautslandið, hefur fengið tilboð samþykkt í eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi.

Krefjast lögbanns á smálánafyrirtæki Gísla
Neytendasamtökin hafa krafist þess að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leggi lögbann við því að Almenn innheimta ehf. og Gísli Kr. Björnsson innheimti kröfur vegna ólögmætra smálána.

Gerir ráð fyrir nýrri verksmiðju á allra næstu árum
Jón Ólafsson, stjórnarformaður og stofnandi Icelandic Glacial, segir búið sé að tilkynna um 66 milljón dala fjárfestingu í fyrirtækinu, um 8,3 milljarða króna.

Fleiri kveðja Arion banka
Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.

Sigur Rós vísar til fordæmis Jóns Ásgeirs
Verjandi Orra Páls Dýrasonar vísaði til fordæmis mála sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Bjarni Ármansson unnu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu þegar hann krafðist þess að máli gegn honum vegna skattalagabrota yrði vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Auglýsir allt hlutafé í Samskiptum til sölu
Íslandspóstur auglýsti í dag allt hlutafé í dótturfélagi sínu, Samskiptum, til sölu.

Tvö þúsund hótelherbergi í pípunum
Fleiri en tvö þúsund hótelherbergi koma líklega inn á markaðinn á næstu árum. Gistinóttum hefur fjölgað hjá hótelum en fækkað á vefsíðum á borð við Airbnb.

Þráinn ráðinn framkvæmdastjóri VITA
Þráinn Vigfússon, sem undanfarin tíu ár hefur starfað sem fjármálastjóri VITA og Iceland Travel hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar VITA, dótturfélags Icelandair Group.

Íslensk erfðagreining tekur þátt í einu stærsta raðgreiningarverkefni sögunnar
Íslensk erfðagreining mun raðgreina 225.000 erfðamengi í verkefni fyrir breska lífsýnabankann UK Biobank.

Hárteygjan fyrir dótturina rauk upp í verði hjá Íslandspósti
Veru brá þegar heildarkostnaður við drasl frá Ali Express lá fyrir.

Framsetning Hlyns skýrir áhrif skattbreytinga á fólkið í landinu
Hlynur Hallgrímsson "fæst við örhermun og vélnám í R til spágerðar. Alltaf að plotta eitthvað“. Svo segir á Twitter-síðu Hlyns sem hefur sett fram afar skýra leið fyrir landsmenn að reikna út hvaða áhrif breytingar á tekjuskattkerfinu hefur fyrir það.

Bassaleikari bestar hjá Origo
Svavar H. Viðarsson hefur verið ráðinn deildarstjóri hjá Origo.

Vandinn ekki krónan heldur kvaðir á banka
Benedikt Gíslason, nýr bankastjóri Arion, segir fjármögnun fyrirtækja eiga eftir að færast á skuldabréfamarkaðinn. Bankarnir ekki samkeppnisfærir. Stjórnvalda að svara hvort skoða eigi sameiningar.

Samdráttur hjá Iceland Travel
Tekjur Iceland Travel, dótturfélags Icelandair og einnar stærstu ferðaskrifstofu landsins, drógust saman um tæp 16 prósent á milli ára samkvæmt nýbirtum ársreikningi.

Vilja auðvelda flutning milli verðbréfamiðstöðva
Verðbréfamiðstöð Íslands (VBM) hefur rekið sig á lagalegar og tæknilegar samkeppnishindranir, og telur fyrirtækið nauðsynlegt að við fyrirhugaða lagasetningu verði horft til samkeppnissjónarmiða.

Einn af stofnendum Brauðs & Co selur hlut sinn í fyrirtækinu
Bakarinn Ágúst Einþórsson hefur selt hlut sinn í fyrirtækinu Brauð & Co sem hann stofnaði fyrir nokkrum árum ásamt þeim Birgi Þór Bieltvedt og Þóri Snæ Sigurjónssyni.

FISK-Seafood seldi í Brimi með 1,3 milljarða hagnaði
FISK-Seafood, dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, seldi síðastliðinn sunnudag nærri 10,2 prósenta hlut sinn í Brimi, sem útgerðarfyrirtækið hafði að stærstum hluta eignast aðeins þremur vikum áður, með rúmlega 1.300 milljóna króna hagnaði.

Viaplay getur ekki sýnt frá enska boltanum eða Meistaradeildinni
Efnisveitan Viaplay mun ekki geta sýnt frá ensku úrvalsdeildinni, Meistaradeildinni, eða veitt aðgang að öðru efni sem er háð sýningarrétti hér á landi. Þetta er mat fjarskiptafyrirtækjanna Símans og Sýnar.

Sjóður Stefnis kaupir í Men&Mice
SÍA III getur stutt við fyrirtækið í vaxtarfasa. Men&Mice starfar á markaði sem vex 10-20 prósent á ári. Fjárfestingarsjóðir í rekstri bankanna hafa hingað til einkum fjárfest í rótgrónari rekstrarfélögum.