Lífið

„Ekkert pláss fyrir mann með pungfýlu að skíta út mitt heimili“
„Það er bara ógeðslega leim að leita að maka á Íslandi og íslenskir karlmenn eru ekki málið,“ segir rapparinn og raunveruleikastjarnan Bassi Maraj en hann er viðmælandi í nýjasta þætti Einkalífsins.

„Nenni ekki að dvelja í dramakasti”
Leikkonuna Katrínu Halldóru Sigurðardóttur þarf varla að kynna. Hún sló eftirminnilega í gegn í hlutverki söngkonunnar Ellýjar í samnefndri sýningu sem sýnd var 220 sinnum í Borgarleikhúsinu.

Jón efndi til blaðamannafundar: „Tognun er ósýnilegur sjúkdómur í samfélaginu“
Jón Gnarr, grínisti og annar þáttastjórnenda hlaðvarpsþáttanna Tvíhöfða, tilkynnti á „grafalvarlegum“ blaðamannafundi í gær að hann hyggist missa 25 kílógrönn fyrir nýársdag. Þá snerti hann á ýmsum málum sem hafa gert honum erfitt fyrir síðustu mánuði, þar á meðal tognun á hné, hægðatregða og þyngdaraukning.

Tim Burton og Matrix-stjarnan Monica Bellucci nýtt par
Kvikmyndagerðarmaðurinn Tim Burton og ítalska stórleikkonan Monoca Bellucci eru eitt nýjasta par Hollywood.

„Að finnast þú geta öskrað en enginn heyrir“
„Lagið er ein stór spurning; hvað á ég að segja til að fólk heyri?“ segir tónlistarkonan og leikkonan Elín Hall um lagið sitt bankastræti, sem hún syngur ásamt Unu Torfa.

Margverðlaunuð kántrístjarna á Íslandi
Kántrístjarnan Kacey Musgraves er stödd á Íslandi þessa stundina.

„Það skín af fólki þegar það er sátt með sig“
Tónlistarkonan og Eurovisionfarinn Diljá Pétursdóttir tjáir sig gjarnan í gegnum klæðaburð. Hún segir stíl sinn endurspegla eigið hugarástand hverju sinni og tók U-beygju í tískunni um átján ára aldur. Diljá Pétursdóttir er viðmælandi í Tískutali.

Fréttakviss vikunnar: Greta, Gylfi og Gerður
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á fréttakvissinu til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Afhjúpar það sem er óþægilegt að segja upphátt
„Ég fýla að segja sögur um manneskjur, að kafa ofan í allt þetta litla sem er inn í okkur og okkur finnst kannski óþægilegt að segja upphátt,“ segir leikstjórinn Katrín Björgvinsdóttir, sem leikstýrir sjónvarpsseríunni Svo lengi sem við lifum. Blaðamaður ræddi við Katrínu um listsköpunina og lífið.

„Við erum í grunninn viðkvæm lítil blóm“
Átta ár eru síðan leikkonan Vala Kristín Eiríksdóttir fékk fastráðningu við Borgarleikhúsið. Í byrjun næsta árs mun hún breyta til og söðla um í Þjóðleikhúsinu. Hún segist vera spennt að verða nýja stelpan í bekknum.

„Þetta er miklu algengara en við gerum okkur grein fyrir“
Harpa Káradóttir, förðunarfræðingur og eigandi skólans Makeup Studio Hörpu Kára, er nýjasti gestur Marín Möndu Magnúsdóttur í hlaðvarpsþættinum Spegilmyndin. Í þættinum fjallar hún meðal annars um húðumhirðu og gagnleg ráð þegar kemur að förðunarvörum.

Heimaleikurinn til New York
Íslenska heimildarmyndin Heimaleikurinn hefur verið valin inn á Doc NYC - stærstu heimildarmyndahátíð Bandaríkjanna, sem fer fram í New York í nóvember.

„Seinasti lúrinn okkar saman“
Fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir kvaddi ferfætlinginn og fjölskyldumeðliminn Stjörnu eftir fimmtán ára samfylgd. Hún segir síðustu daga og vikur hafa reynst fjölskyldunni afar erfiðir.

Hundrað ára Helena nennir ekki gráu hári
Helena Sigtryggsdóttir er nýorðin 100 ára og býr enn heima hjá sér í sinni eigin íbúð og er eldhress.

Kolbrún Pálína selur slotið
Kolbrún Pálína Helgadóttir fjölmiðla og markaðsráðgjafi færir sig um set og hefur því sett einstaka sjö herbergja eign á besta stað í Kópavogi til sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 182 er 139,9 milljónir.

Wasabi kóngur selur miðbæjarperlu með útsýni yfir Bæjarins bestu
Ragnar Atli Tómasson frumkvöðull og stofnandi Wasabi Iceland hefur sett glæsilega íbúð sína við Kolagötu 21 til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 104 milljónir. Útsýni er úr íbúðinni yfir líklega vinsælasta veitingastað landsins.

Nökkvi Fjalar og Embla hvort í sína áttina
Frumkvöðullinn Nökkvi Fjalar Orrason og Embla Gabríela Wigum, förðunarfræðingur og samfélagsmiðlastjarna eru farin hvort í sína áttina. Parið byrjaði saman vorið 2022.

Kolbrún Þöll og Ísak eignuðust stúlku
Fimleikadrottningin Kolbrún Þöll Þorradóttir og Ísak Óli Helgason eignuðust stúlku síðastliðinn þriðjudag, 17. október.

Gústi bakari ljóstrar upp leyndarmálinu að bestu pítsu Reykjavíkur
Veitingastaðurinn og bakaríið Bakabaka fagnaði titlinum, besta pítsan í Reykjavík 2023, á dögunum með pompi og prakt. Viðurkenningin var veitt af menningartímaritinu Reykjavik Grapevine.

Hápunktur Bleiku slaufunnar á Bleika deginum í dag
Bleiki dagurinn er í dag. Krabbameinsfélagið hvetur alla til að sýna konum sem hafa þurft að glíma við krabbamein stuðning með því að taka þátt. Hægt er að klæðast bleiku, halda bleikt boð eða borða eitthvað bleikt.

Bar upp bónorðið á blautu bílaplani
Heiðrún Kristmundardóttir og Ægir Þór Steinarsson eiga sér glæstan feril í körfubolta sem leiddi þau á sínum tíma saman. Þau eiga í dag þrjú börn sem fæddust með stuttu millibili.

Eltihrellir McConaughey fær fimm ára nálgunarbann
Eltihrellir leikarans Matthew McConaughey hefur verið úrskurðaður í fimm ára nálgunarbann. Eltihrellirinn hefur hrellt leikarann í nokkur ár.

Dælan fer á flakk
Strákarnir í Dælunni ætla á flakk í kvöld og láta reyna á hvort þeir séu kunnugir staðháttum á Íslandi. Flakk er leikur á vef Já, þar sem spilarar giska á hvar þeir eru staddir á landinu.

„Farðu vel með það sem þú átt frekar en að kaupa meira og meira”
„Við viljum vera mótvægi við offramleiðslu á skóm og fatnaði og leggja áherslu á gæði. Það er allt önnur upplifun af því að panta vöru í sófanum heima í gegnum skjá, en að koma í verslun, fá persónulega þjónustu og handleika vöruna sem þú hefur áhuga á,” segir Matthildur Leifsdóttir stofnandi verslunarinnar 38 þrep sem fagnar í dag 30 ára afmæli, en verslunin hefur frá upphafi verið rekin á Laugavegi.

Stefnir á að rústa Ungfrú Ísland
Fyrirsætan og Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir stefnir á að hreppa titlana Ísdrottningin og Ungfrú Ísland fyrir fimmtugt ef marka má nýjustu færslu hennar á samfélagsmiðlum. Hún grínast þar með nýjar reglur í fegurðarsamkeppninni.

Fjölskylda Fjallsins stækkar loksins eftir þrjú ár af vonbrigðum
Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson og eiginkona hans Kelsey Henson eiga von á sínu öðru barni saman. Aflraunamaðurinn greinir frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram. Hjónin hafa verið opinská með það á samfélagsmiðlum hve erfitt það hefur verið þeim að eignast börn.

Styrktu gott málefni á bleikum Ford Mustang Mach-E
Brimborg og Ford á Íslandi ætla heldur betur að lýsa upp skammdegið, mála borgina bleika og styrkja gott málefni í október með fagurbleikum Ford Mustang Mach-E rafbíl.

Eigandi Bryggjunnar Brugghúss selur slotið og flytur í Ölfus
Jóel Salómon Hjálmarsson, einn af eigendum veitingastaðarins Bryggjan Brugghús, og eiginkona hans María Fortescue hafa sett glæsilegt raðhús sitt við Skeiðarvog í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 119,7 milljónir.

Fær mígrenisköst tuttugu daga í hverjum mánuði: „Algjör viðbjóður“
Ester María Ólafsdóttir er 35 ára Skagakona sem fær mígrenisköst að meðaltali tuttugu daga á mánuði og hefur það eins og gefur að skilja mikil áhrif á líf hennar.

Hákarlinn kom alltaf nær og nær
„Við bjuggumst alveg við því að sjá hvali, enda mikið af þeim þarna fyrr um daginn og meira að segja höfrungar, en við bjuggumst ekki við því að sjá hákarl,“ segir Skarphéðinn Snorrason sem var ásamt systur sinni, kærasta hennar og hundi á bát í Steingrímsfirði þegar þau tóku eftir ugga hákarls sem veitti bátnum eftirför.