Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Árið 2005 var mér troðið í alltof lítinn krákubúning í Feneyjum. Gagnrýni 10.3.2026 07:03
Öskrað á of litlu sviði „Er þessi heimur besti heimur allra heima?“ er spurningin sem bjartsýnismaðurinn Birtingur veltir fyrir sér í nýjum söngleik Leikfélags Akureyrar sem byggður er á skáldsögu Voltaire. Það er leikhússtjórinn sjálfur, Bergur Þór Ingólfsson, sem leikstýrir, þýðir og semur leikgerðina og má segja að sýningin reyni ekki bara á leikarana heldur einnig samkomuhúsið sjálft – sem komið er til ára sinna. Gagnrýni 6.3.2026 07:00
Lengsti klukkutími ævinnar Kvikmyndin Dimmalimm fjallar um konu sem lokar sig inni í íbúð sinni í Vínarborg og tekst á við eigin geðveiki. Myndin er rétt rúmur klukkutími en líður ofurhægt vegna klisjukennds handrits, skorts á framvindu og langdreginna teygðra sena. Gagnrýni 4.3.2026 07:02
Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Nú er sá tími ársins runninn upp aftur. Sá tími þegar íslenska þjóðin, sem þegar er á barmi taugaáfalls vegna D-vítamínskorts og myrkurs sem virðist engan enda ætla að taka, ákveður að það sé ekki nóg að líða illa. Nei, hún borgar fyrir að hlusta á hljóðin sem fylgja því að líða illa. Gagnrýni 1.2.2026 07:00
Óbilandi trú á eigin ágæti Bólugrafinn og renglulegur með samvaxnar augabrúnir og hormottu, hrokafullur, hraðlyginn og hvatvís, kjaftfor, sjálfumglaður og ódrepandi við að ná markmiði sínu: að verða sá besti í heimi, sama hvað það kostar. Gagnrýni 30.1.2026 07:02
Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Það er ákveðin bilun fólgin í því að skapa „rapp-söngleik“ byggðan á Íslendingasögu. Þjóðleikhúsið ákvað hins vegar að henda sér beint í djúpu laugina án kúts. Útkoman er vægast sagt eggjandi, enda voru fagnaðarlætin á frumsýningunni mikil. Gagnrýni 28.1.2026 07:00
Rasistar í sumarbústað Íslensk hjón í sumarbústað lenda í hremmingum þegar myndlistarmaður, dökkur á hörund, sest að fyrir utan heimkeyrsluna að bústaðnum þeirra. Tilvist þessa dularfulla aðkomumanns afhjúpar fáfræði, ótta og fordóma hinna íslensku hjónakorna í nýju leikriti eftir Þór Tulinus sem sýnt er þessa dagana í Tjarnarbíói. Þetta er ekki sýning sem skilur mikið eftir sig, handritið er gallað og það vantar skýrari listræna sýn. Gagnrýni 27.1.2026 07:01
Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Fjölskyldufaðir sem missir vinnuna hjá pappírsfyrirtæki eftir áratuga starfsferil grípur til blóðugra örþrifaráða. Ungur drengur lendir í félagsskap satanísks gengis sem ráfar um uppvakningahrjáð England. Mennirnir tveir glíma við ólíka djöfla en lenda báðir í kröppum dansi. Gagnrýni 23.1.2026 07:01
Gagnrýni ársins 2025: Jólahelvíti, ómerkilegir þættir og vonbrigði á stóra sviðinu Helvíti Emmsjé Gauta í Breiðholtinu, leiðinlegir þættir á Rúv og mislukkaðar sýningar á stóra sviðinu voru meðal þess sem vöktu athygli í gagnrýni á Vísi á liðnu ári. Vísir hefur tekið saman mest lesnu gagnrýnina, þá bestu og þá hörðustu á síðasta ári auk þess að stikla á fjölda þeirra dóma sem birtust á vefnum. Gagnrýni 9.1.2026 06:30
Við þurfum að ræða Sydney Sweeney Ung kona sem hefur ekki átt sjö dagana sæla virðist hafa dottið í lukkupottinn þegar hún fær óvænt starf sem húshjálp hjá ríkum hjónum. Fljótt renna á hana tvær grímur þegar húsfreyjan fer að haga sér undarlega og ýmis ljót leyndarmál koma upp á yfirborðið. The Housemaid er hressandi, subbulegur sálfræðitryllir sem líður fyrir ósannfærandi aðalleikkonu í Sydney Sweeney. Gagnrýni 6.1.2026 07:00
Móðurmorð í blóðugu jólaboði Það er alltaf eftirvænting í loftinu á jólafrumsýningu Þjóðleikhússins. Þetta er ekki fjölskylduvænasta jólahefðin, hvorki fyrir áhorfendur né leikara. En sérstakt er það – að mæta í leikhúsið á annan í jólum, sumir komnir beint úr jólaboðum og gleyma sér í leikhúsinu. Jólasýningin í ár var Óresteia. Um fjögurra klukkutíma leikrit eftir Benedict Andrews byggt á blóðugri grískri tragedíu. Og hvað er jólalegra eða íslenskara en fjölskylduharmleikur á jólum? Hvorki leikrit eða leikstjórn Benedict Andrews olli mér vonbrigðum. Þetta var alvöru kjaftshögg á hátíð ljóss og friðar. Sýning sem lætur engan ósnortinn – þá sem treysta sér að mæta það er að segja. Gagnrýni 30.12.2025 07:02
Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Það er til ákveðin tegund af helvíti á jörðu. Hún er ekki logandi eldur og brennisteinn, heldur lýsir hún sér sem troðfullur salur af dauðadrukknu fólki í jólapeysum úr gerviefnum, angandi af blöndu af rándýru ilmvatni og bjór. Gagnrýni 22.12.2025 07:02
Úr öskunni í eldinn James Cameron býður áhorfendum í þriðja sinn til Pandóru að fylgjast með Na'vi-fólkinu berjast gegn ofsóknum mannanna. Sjónarspilið, hasarinn og tæknibrellurnar eru fyrsta flokks þó formúlan sé farin að þynnast. Aðdáendur seríunnar til þessa verða ekki sviknir en vantrúaðir verða heldur ekki sannfærðir úr þessu. Gagnrýni 19.12.2025 07:02
Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Eftir að hafa fundið lausn á Covid-19 og peningamálum á Íslandi er fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins búinn að komast að því að loftslagsvísindamenn heimsins hafi allir rangt fyrir sér um loftslagsbreytingar. Gagnrýni 14.12.2025 08:01
Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Í Salnum í Kópavogi sýndi Una Torfa hvernig má selja jólaskap, sáluhjálp og einlægni í einum pakka – og það virkaði. Gagnrýni 13.12.2025 07:00
Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Áhorfendur fylgjast með hinum leiðinlega Felix fá hverja delluna á fætur annarri með þeim afleiðingum að hann verður sér til skammar eða er skammaður af konu sinni, Klöru. Kringumstæðurnar eru grátbroslegar en hvorki grínið né aukapersónurnar eru nægilega sterkar til að veita leiðindum Felix nægilegt mótvægi. Felix er svo plássfrekur að áhorfendur kynnast Klöru aldrei almennilega. Gagnrýni 8.12.2025 07:00
Vonlaust í víkinni Ekki tekst að vekja nægilega spennu eða samúð hjá áhorfendum í spennutryllinum Víkinni, nýjustu kvikmynd Braga Þórs Hinrikssonar. Sagan er þunn, endurtekningasöm og stendur ekki undir lengd myndarinnar. Leikarar fá úr litlu að moða og það sem á að vera hræðilegt verður hálf kjánalegt. Gagnrýni 21.11.2025 07:06
Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Reykjavík Fusion er fantafín afþreying með vel fléttaðri og spennandi framvindu sem heldur manni við skjáinn allt til enda. Sjónræn umgjörð þáttanna er á stigi sem sjaldan sést í íslensku sjónvarpi. Skortur á persónusköpun, ankannalegur texti misgóðra leikara og vanhugsaðar ákvarðanir handritshöfunda draga söguna þó aðeins niður. Gagnrýni 11.11.2025 07:01
Bragðlaust eins og skyr með sykri Það var eitthvað þjóðlegt við tónleikana í Eldborg í Hörpu á sunnudaginn. Ekki þjóðlegt á þann hátt að maður fylltist lotningu og fengi tár í augun við að minnast forfeðranna — heldur þjóðlegt eins og skyr með sykri. Það var jú kunnuglegt, þykkt og dálítið bragðlaust. Gagnrýni 6.11.2025 07:33
Sambandslaus Hamlet Snilldin við Hamlet eftir William Shakespeare er að verkið speglar samfélagslegar aðstæður hverrar kynslóðar sem tekst á við að setja það upp. Fullkomin uppfærsla á Hamlet er sú sem er trú Shakespeare og nútímanum í senn. Í uppfærslu Kolfinnu Nikulásdóttur í Borgarleikhúsinu er nútíminn fyrirferðarmeiri en texti Shakespeare. Hið klassíska leikrit – sem leikstjórinn hefur talað um að ætla að „stinga í samband við nútímann“ verður á köflum hálfgert aukaatriði eða grín. Gagnrýni 5.11.2025 07:00
Meðalmennskan plagar Brján Þrátt fyrir frumlega hugmynd, ágætis leikara og sterka byrjun renna grínþættirnir Brjánn fljótt út í sandinn. Þar vegur þyngst skortur á almennilegu gríni og óspennandi framvinda. Gagnrýni 28.10.2025 07:03
Furðuleg forréttindablinda Ég var með talsverðar væntingar þegar ég kom í Þjóðleikhúsið á föstudaginn á frumsýninguna á Íbúð 10B. Baltasar Kormákur snýr aftur í leikhúsið, Ólafur Jóhann með nýtt verk, stórleikarar Vesturports á sviðinu – hér er öllu tjaldað til. Niðurstaðan er hins vegar hálfgerð vonbrigði; leikrit sem er ófrumlegt og sýning sem veit ekki í hvaða átt hún ætlar að fara eða hvaða boðskap hún stendur fyrir. Gagnrýni 21.10.2025 07:03
Slappur smassborgari Óskarsverðlaunabeita Benny Safdie og Dwayne Johnson forðast hefðbundna byggingu ævisögumynda og beitir markvisst heimildarmyndarstíl. Kvikmyndin heldur sig þó á yfirborðinu og kemst aldrei að kjarnanum. Gagnrýni 16.10.2025 07:01
Shine on, you crazy Íslendingar! Það er ekki á hverjum degi sem maður upplifir tónleika þar sem áheyrendur virðast svífa í geimþoku á milli Guðs, gítarstrengja og góðs hljóðkerfis. En þannig var það í Eldborg á laugardaginn. Þar messaði íslenskt rokkprestakall um eilífa dýrð Pink Floyd. Gagnrýni 14.10.2025 07:02