
Leikhús

„Höfðum feimið fólk í huga þegar við vorum að semja sýninguna“
Fimmtudaginn 26. maí frumsýnir leikhópurinn Slembilukka leiksýninguna „Sjáið mig“ í Miðbæjarskólanum. Höfundarnir eru þær Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir og Laufey Haraldsdóttir en Eygló Höskuldsdóttir Viborg er tónskáld sýningarinnar ásamt því að koma fram í verkinu. Blaðamaður tók á þeim púlsinn og fékk að heyra nánar frá sýningunni.

Heimsþekktur og ögrandi einleikur frumfluttur á Íslandi
Sviðslistahópurinn Fullorðið fólk frumflytur leikverkið Stelpur og strákar miðvikudaginn 25. maí í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði.

„Að búa til eitthvað fallegt úr einhverju ljótu“
Annalísa Hermannsdóttir starfar sem sviðshöfundur, leikstjóri og tónlistarkona. Hún vann tónlistarmyndband ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á árinu fyrir myndband við lagið „Ég er bara að ljúga er það ekki?“ og vinnur nú að því að setja upp sýninguna Stelpur og Strákar, sem er frumsýnd 25. maí næstkomandi. Blaðamaður tók púlsinn á Önnulísu.

Næstum hundrað sýningar og 50 þúsund gestir á Níu líf
Um helgina er von á fimmtíuþúsundasta gestinum á stórsöngleikinn Níu líf en hundraðasta sýningin verður sýnd í Borgarleikhúsinu í byrjun júní. Vinsældir söngleiksins virðast ekki vera að dvína en uppselt er á allar sýningar þessa leikárs.

„Við erum eiginlega bara miður okkar“
Í bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ er hver sýning síðasta sýningin. Stjórnarmaður í leikfélaginu segir hræðilega tilhugsun að húsið þurfi að víkja fyrir blokk eða bílastæði. Á meðan tími gefst, er Maríu Guðmundsdóttur leikkonu minnst með reglulegri sýningu.

Margrét 83 ára á Selfossi leikur Bjarna durt
„Það er bara mjög gott og það klæðir mig bara virkilega vel að heita Bjarni og leika durt“, segir Margrét Óskarsdóttir, 83 ára leikari á Selfossi. Hún og félagar henni eru að æfa leikritið „Maður í mislitum sokkum“ sem sýnt verður í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi á morgun.

Hilmir Snær og Ingvar E. verða Mátulegir í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið er í óða önn við að setja saman nýtt og spennandi leikár en meðal verkefna verður DRUK, eða Mátulegir eins og það nefnist í íslenskri þýðingu Þórdísar Gísladóttur.

Ólíkir dansarar frá tólf ára upp í áttrætt sameinast í einu dansverki
Danshöfundarnir Alexander Roberts og Ásrún Magnúsdóttir frumsýna sýninguna Ball næstkomandi föstudag, 6. maí, fyrir Íslenska dansflokkinn og níu gesta dansara. Sýningin fer fram á Nýja sviði í Borgarleikhúsinu. Þar sameinast dansarar á öllum aldri með gjörólíkan bakgrunn og er dansgleðin í forgrunni. Blaðamaður hafði samband við Alexander og Ásrúnu og fékk að heyra nánar frá sýningunni.

Villi Neto ráðinn til Borgarleikhússins og fer beina leið í Kattholt
Leikarinn Vilhelm Neto mun stíga á svið næstu helgi eftir að hafa gert samning við Borgarleikhúsið. Þar mun hann meðal annars taka við hlutverki leikarans Hjartar Jóhanns Jónssonar í leikritinu um Emil í Kattholti þar sem hann heldur í önnur verkefni.

Menningarsögu fargað í Hafnarfirði?
Þó margt sé vel gert í Hafnarfirði þá situr iðulega það á hakanum sem ekki er hægt að verðmerkja eða reikna út i krónum og aurum. Þar á meðal eru menningarmál, til að mynda staða leikfélaganna í Hafnarfirði: Leikfélags Hafnarfjarðar, sem er á hrakhólum, og Gaflaraleikhússins, sem verður brátt á hrakhólum, ef svo fer sem horfir.

Lilli klifurmús og Mikki refur á Sólheimum
Lilli klifurmús og Mikki refur eru allt í öllu á Sólheimum í Grímsnesi þessa dagana, ásamt öðrum dýrum úr Dýrunum í Hálsaskógi. Mikil stemming er á leikritinu enda standa leikararnir sig eins og hetjur á sviðinu.

Safarík myndaveisla frá frumsýningu Ávaxtakörfunnar
Ávaxtakarfan var frumsýnd um helgina í Hörpu þar sem sýningarnar munu fara fram. Einvalalið leikara fer með hlutverk ávaxtanna og grænmetisins og var líkt og Eyþór Ingi hafi aldrei gert annað en að leika sjálfumglaðan ananas.

Vakna alltaf miður mín
Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld verður 35 ára árinu og hefur þrátt fyrir ungan aldur skrifað sjö leikverk og frumsýndi nú á dögunum sitt fyrsta leikverk á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu, Sjö ævintýri um skömm.

Handalögmál, hurðum skellt og framhjáhald í Aratungu
Það gengur mikið á á sviðinu í Aratungu í Biskupstungum þessa dagana því þar sem verið að sýna farsa, sem kitlar hláturstaugarnar. Hurðum er skellt, misskilningur á sér stað, handalögmál eru á sviðinu, og grátbroslega atvik í bland við sprenghlægileg atriði eins og eiga að prýða góðan farsa.

Pamela Anderson fer af ströndinni á Broadway
Pamela Anderson ætlar að stíga á svið á Broadway í fyrsta skipti þar sem hún mun leika Roxie Hart í söngleiknum Chicago. Leikkonan er spennt fyrir því að fara með hlutverkið þar sem hún mun leika, syngja og dansa.

Fara betur saman en jarðarber og epli
Í dag fór miðasalan fyrir Ávaxtakörfuna af stað sem fer á svið í Silfurbergi Hörpu þann 16. apríl. Söngkonurnar Katla Njálsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir eru á fullu að æfa sig, bæði fyrir leikritið og Söngvakeppnina sem þær keppa báðar í á laugardaginn.

Þrír bæjarlistarmenn frumsýndu nýjan fjölskyldusöngleik í Gaflaraleikhúsinu
Mikið var um að vera í Gaflaraleikhúsinu um helgina þegar fjölskyldusöngleikurinn Langelstur að eilífu var frumsýndur. Var bæði hlegið og grátið í salnum, enda er þetta einstök saga um fallega vináttu.

Þjóðleikhúsið frumsýnir stórsýninguna Framúrskarandi vinkona á Stóra sviðinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir Framúrskarandi vinkonu á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 5. mars. Sýningin er byggð á Napólífjórleik Elenu Ferrante en bækurnar hafa notið gríðarlegra vinsælda og verið gefnar út um allan heim. Leikstjóri er Yaël Farber frá Suður-Afríku en hún er ein af eftirsóttari leikstjórum heimsins í dag. Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir fara með hlutverk þeirra Lenù og Lilu, vinkvennanna tveggja sem vaxa úr grasi í harkalegu umhverfi í Napólí á 6. áratugnum.

Ráðin framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar
Stjórn Menningarfélags Akureyrar hefur ráðið Evu Hrund Einarsdóttur í starf framkvæmdastjóra.

Langelstur í leikhópnum: „Við eigum að lifa lífinu lifandi“
Söngleikurinn Langelstur að eilífu verður frumsýndur í Gaflaraleikhúsinu um helgina þar sem Siggi Sigurjóns og Iðunn Eldey Stefánsdóttir fara með hlutverk Rögnvalds og Eyju. Iðunn deilir hlutverki Eyju með Nínu Sólrúnu Tamimi en tvöfaldur leikhópur er fyrir öll barnahlutverkin.

Áramótaskaupið telst í ófyndnara lagi
Könnun Maskínu leiðir í ljós að Áramótaskaup Ríkisútvarpsins að þessu sinni þótti ekki sérstaklega gott.

„Við erum svo hoppandi glöð“
Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhústjóri Borgarleikhússins gat varla leynt gleði sinni í beinni útsendingu með þau tíðindi að frá og með morgundeginum verður hætt að gera kröfu um eins metra nálægðarmörk á sitjandi viðbrögðum.

Nálægðartakmörk á sitjandi viðburðum felld úr gildi
Frá og með morgundeginum verður hætt að gera kröfu um eins metra nálægðarmörk á sitjandi viðburðum.

„Mér hefur þótt erfitt að sleppa takinu“
Þann 4. febrúar frumsýnir Inga Maren Rúnarsdóttir verkið Hvíla sprungur á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Dansarar sýningarinnar eru þau Ásgeir Helgi Magnússon, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir og Sigurður Andrean Sigurgeirsson.

„Ég hef ekki klippt mig í tvö ár“
Leikarar fagna afléttingum á sóttvarnatakmörkunum en nú mega allt að fimm hundruð leikhúsgestir mæta á leiksýningar.

Hálfur milljarður í menningargeirann
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun um hálfs milljarðs króna framlag til menningargeirans vegna áhrifa sem hann hefur orðið fyrir vegna Covid-19 faraldursins.

Króli komst inn í leiklistina
Leikarinn og tónlistarmaðurinn Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli, komst inn fyrstu tilraun í leiklistarnám við Listaháskóla Íslands í dag.

Létu drauminn rætast og opnuðu sviðslistaskóla
Vinirnir Auður Finnbogadóttir, Auður Bergdís Snorradóttir og Guðjón Ragnarsson höfðu lengi átt þann draum að opna leiklistarskóla. Þau voru öll kennarar við söng- og leiklistarskólann Sönglist, en þegar sá skóli hætti starfsemi á síðasta ári ákváðu þau að láta drauminn verða að veruleika og stofnuðu sviðslistaskólann Dýnamík.

Flestir sem fá listamannalaun eru á fimmtugs- og sextugsaldri
Rannís er um þessar mundir að senda út bréf til umsækjenda um starfslaun listamanna. Og bíða væntanlega margir þess spenntir að sjá hvað kemur á daginn í þeim efnum.

Kasper, Jesper og Jónatan litu við í Laugardalshöll
Ræningjarnir Kasper, Jesper og Jónatan úr Kardemommubæ Þjóðleikhússins voru niðri í Laugardalshöll í morgun til að skemmta börnum, sem þangað voru komin í bólusetningu.