
Bandaríkin

Maxwell ákærð fyrir aðild sína að mansalshring Epstein
Ghislaine Maxwell, sem sökuð hefur verið um að vera samverkakona auðkýfingsins Jeffrey Epstein hefur verið ákærð fyrir að hafa aðstoðað Epstein í því að misnota ungar stúlkur undir lögaldri.

Ræða möguleikann á útlagaþingi Hong Kong
Lýðræðissinnar í Hong Kong eru sagðir íhuga að koma á fót óopinberu útlagaþingi utan borgarinnar til þess að tala máli lýðræðis og senda kínverskum stjórnvöldum skilaboðum eftir að umdeild öryggislög voru samþykkt.

Tóku fánann með suðurríkjakrossi niður í hinsta sinn
Þjóðvarðliðar í Mississippi brutu fyrrum fána ríkisins saman í síðasta skipti við athöfn við ríkisþinghúsið í Jackson í gær. Fáninn var sá síðasti í Bandaríkjunum sem var enn með merki gamla Suðurríkjasambandsins.

Samverkakona Epstein handtekin af FBI
Ghislaine Maxwell, bresk samverkakona Jeffrey Epstein, auðkýfings sem sakaður var um að misnota og selja fjölda stúlkna mansali, hefur verið handtekin af Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI.

Afganskur verktaki sagður milligöngumaður um verðlaunafé Rússa
Bandaríska leyniþjónustan og afganskir embættismenn segja að afganskur verktaki hafi um árabil verið milligöngumaður um verðlaunafé sem rússnesk herleyniþjónustan hét vígamönnum talibana til að fella bandaríska hermenn.

Herða aðgerðir gegn Kína vegna nýju laganna
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt einróma að leggja viðskiptaþvinganir á banka sem stunda viðskipti við kínverska embættismenn.

Fjármagnsflutningar til talibana taldir styðja ásakanir um verðlaunafé Rússa
Bandaríska leyniþjónustan hafði njósnir af umfangsmiklum fjármagnsflutningum af bankareikningi rússnesku herleyniþjónustunnar yfir á reikningi sem tengist talibönum í Afganistan.

Hundruð embættismanna Bush sögð ætla að styðja Biden
Hópur sem telur hundruð embættismanna sem störfuðu í ríkisstjórn repúblikanans George W. Bush er sagður ætla að lýsa formlega yfir stuðningi við Joe Biden, frambjóðanda Demókrataflokksins, í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Fyrrverandi ráðherrar eru sagðir í hópnum sem leggst gegn endurkjöri Donalds Trump forseta.

Metfjöldi nýsmita vestanhafs
Nýsmitum í Bandaríkjunum fjölgaði um 47 þúsund frá mánudegi til þriðjudags

Kæmi Fauci ekki á óvart ef tilfellin verði 100 þúsund á dag í Bandaríkjunum
Dr. Anthony Fauci, yfirmaður Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna segir að honum kæmi það ekki á óvart ef tilfelli kórónuveirusmita í Bandaríkjunum nái 100 þúsund á dag í náinni framtíð.

Bandaríkin tryggja sér stóran hluta framtíðarbirgða af Remdesivir
Bandarísk yfirvöld hafa keypt upp nær alla framleiðslu bandaríska lyfjaframleiðandans Gilead á lyfinu Remdesivir næstu þrjá mánuðina, eitt af aðeins tveimur lyfjum sem sýnt hefur verið fram á að gagnist í baráttunni gegn Covid-19.

Telja Trump ógn við þjóðaröryggi: Kallaði Merkel kanslara „heimska“ í símtali
Símtöl Donalds Trump Bandaríkjaforseta við erlenda þjóðarleiðtoga ollu fyrrverandi ráðherrum og ráðgjöfum hans áhyggjum af því að forsetinn væri sjálfur ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna.

Evrópusambandið opnar landamæri fyrir fjórtán ríkjum
Evrópusambandið tilkynnti í dag að landamæri aðildaríkjanna yrðu opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, 1. júlí, frá fjórtán löndum en Bandaríkjamenn verða ekki meðal þeirra sem fá inngöngu í Evrópu.

Carl Reiner er látinn
Bandaríski leikarinn og skemmtikrafurinn Carl Reiner er látinn, 98 ára að aldri.

Trump fékk skýrslu um rússneska verðlaunaféð í febrúar
Upplýsingar um að bandaríska leyniþjónustan teldi að Rússar hefðu heitið talibönum verðlaunum til höfuðs bandarískum hermönnum í Afganistan var að finna í daglegri skýrslu til Donalds Trump forseta seint í febrúar. Trump og Hvíta húsið hafa haldið því fram að hann hafi ekkert vitað um málið.

Gefa lítið fyrir handtökuskipunina
Hvorki Interpol né Bandaríkjastjórn gefa mikið fyrir handtökutilskipun sem írönsk stjórnvöld gáfu út á hendur Bandaríkjaforseta, Donald Trump, og 35 öðrum vegna dauða hershöfðingjans Qasem Soleimani í byrjun árs.

Golden State morðinginn játaði á sig 13 morð
Hinn 74 ára gamli Joseph DeAngelo játaði á sig 13 morð, fjölda nauðgana, innbrot og fleiri glæpi fyrir dómi í Sacramento í dag.

Tilraunaflug 737 MAX hófst í dag
Boeing 737 MAX flugvél hóf sig að loft að nýju í Bandaríkjunum í dag eftir að tilraunaflug Boeing og Flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum vegna MAX-vélanna hófst í dag.

Bandaríkin og Kína ekki á lista ESB yfir „örugg lönd“
Fjórtán ríki eru á lista ESB yfir þau ríki sem teljast örugg og ríkisborgarar þeirra ættu að fá að ferðast yfir ytri landamæri ESB. Bandaríkin, Kína og Brasilía eru ekki á listanum.

Andstæðingar þungunarrofs biðu ósigur fyrir hæstarétti
Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi lög sem sett voru í Louisiana og þrengdu verulega að möguleikum kvenna á þungunarrofi í dag. Hefðu lögin fengið að standa hefði aðeins ein heilbrigðisstofnun sem býður upp á þungunarrof verið eftir í ríkinu.

Íranir gefa út handtökuskipan á hendur Trump
Stjórnvöld í Teheran gáfu út handtökuskipun á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta og óskuðu eftir að stoð alþjóðalögreglunnar Interpol til að handsama hann í dag. Auk Trump vilja Íranir handtaka þrjátíu aðra Bandaríkjamenn sem þeir telja hafa staðið að drónaárás sem felldi íranskan herforingja í Bagdad í janúar.

Rekja dauða bandarískra hermanna til verðlaunafjár Rússa
Bandaríska leyniþjónustan rekur fall nokkurra bandarískra hermanna í Afganistan til þess að rússneska herleyniþjónustan hét vígamönnum talibana fé til höfuðs þeim. Donald Trump Bandaríkjaforseti þvertekur fyrir að honum hafi verið greint frá þessu.

Mississippi fjarlægir umdeilt Suðurríkjamerki úr fánanum
Öldungadeild þingsins í Mississippi í Bandaríkjunum hefur samþykkt að Suðurríkjamerki skuli fjarlægt úr fána ríkisins.

Faraldurinn á hraðri og hættulegri vegferð í Texas
Yfir hálf milljón manna er nú látin úr Covid-19, sjúkdómnum sem kórónuveiran veldur

Endurtísti myndbandi af stuðningsmanni kalla „White Power“
Donald Trump Bandaríkjaforseti endurtísti í dag myndbandi sem sýnir stuðningsmann hans kalla fullum hálsi „hvít vald“ (e. White Power).

Tilraunir á 737 MAX sagðar hefjast á morgun
Starfsmenn Flugmálayfirvalda Bandaríkjanna, FAA, munu hefja prófanir á 737 MAX farþegaþotum Boeing á morgun.

Trump segir fregnir af verðlaunafé Rússa vera rangar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist aldrei hafa heyrt af því að leyniþjónusta herafla Bandaríkjanna hafi boðið vígamönnum Talibana og annarra vígahópa verðlaun fyrir að fella bandaríska og breska hermenn í Afganistan.

Smit í tíu milljónum á heimsvísu
Staðfest smit Covid-19 á heimsvísu hafa náð tíu milljónum. Nærri því hálf milljón manna hafa dáið vegna sjúkdómsins.

Hönnuður New York-ástarlógósins er látinn
Grafíski hönnuðurinn Milton Glaser, sem hannaði „I ♥ NY“ myndmerkið er látinn, 91 ára að aldri.

Hvítir leikarar munu ekki tala fyrir persónur af öðrum uppruna
Framleiðendur hinna geysivinsælu The Simpsons hafa gefið það út að hvítir leikarar munu ekki tala fyrir persónur af öðrum uppruna.