
Bandaríkin

Lyfjaskortur í Bandaríkjunum eykst um 30 prósent
Lyfjaskortur í Bandaríkjunum jókst um 30 prósent á síðasta ári samanborið við árið 2021. Meðalbiðtími eftir því að lyf yrðu aftur fáanleg voru átján mánuðir en lyf hafa verið ófáanleg í allt að fimmtán ár.

Segir málaferli gegn Paltrow vera „kjaftæði“
Lögmaður Gwyneth Paltrow, lýsti í vikunni dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn leik- og athafnakonunni sem „kjaftæði“. Réttarhöldin í máli manns sem sakað hefur Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 hófust á þriðjudaginn.

Lögmaður Trumps þarf að afhenda skjöl og bera vitni
Lögmaður Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, þarf að afhenda öll skjöl sín sem tengjast rannsókn á meðhöndlun forsetans á opinberum og leynilegum skjölum til rannsakenda, M. Evan Corcoran, umræddur lögmaður, þarf einnig að bera vitni fyrir ákærudómstól vegna rannsóknarinnar.

Lohan og fleiri stjörnur látnar borga fyrir rafmyntarauglýsingar
Leikkonan Lindsay Lohan og rapparinn Akon eru á meðal nokkurra stjarna sem gerðu sátt við bandaríska verðbréfaeftirlitið vegna ásakana um að þær hafi auglýst fjárfestingar í rafmyntum án þess að upplýsa að þær fengju greitt fyrir það. Þær þurfa að greiða tugi þúsunda dollara hver.

Bandaríski seðlabankinn hækkar líka vexti
Bandaríski Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti í landinu þrátt fyrir áhyggjur manna af því að slík aðgerð gæti aukið á óróann á fjármálamörkuðum en þar í landi hafa bankar verið að lenda í miklum vandræðum.

„Myndi 100 prósent láta svæðin aftur í hendur Úkraínu“
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, segir orð sín um stríðið í Úkraínu hafa verið misskilin og að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé sannarlega stríðsglæpamaður.

Deila vegna hundaleikfangs, viskís og hundaskíts ratar til Hæstaréttar
Hæstiréttur Bandaríkjanna tekur í dag fyrir mál Jack Daniels gegn framleiðendum hundaleikfangs sem lítur út eins og viskíflöskur. Lögmenn brugghússins segja hundaleikfangið tengja viskíið við hundaskít.

Forstjóri TikTok mætir þingmönnum og varar við því að banna forritið
Shou Zi Chew, forstjóri TikTok, mun mæta á þingfund í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á morgun, þar sem hann mun verjast ásökunum um að forriti hans sé ekki treystandi. Ráðamenn í Bandaríkjunum og þar á meðal þingmenn bæði Demókrata- og Repúblikanaflokksins vilja að forritið verði bannað í Bandaríkjunum eða selt.

Héldu handjárnuðum manni niðri í ellefu mínútur þar til hann dó
Héraðssaksóknari í Virginíu í Bandaríkjunum hefur ákært sjö lögregluþjóna og þrjá starfsmenn sjúkrahúss fyrir morð. Myndbönd úr öryggisvélum sýna hvernig hópur manna hélt handjárnuðum Irvo Otieno niðri í um ellefu mínútur, þar til hann dó.

Trump sagður spenntur fyrir því að vera handjárnaður
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera spenntur fyrir því að birtast handjárnaður í dómsal ef svo fer að hann verður handtekinn fyrir þátt sinn í því að hafa greitt klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels mútur.

Réðust á Tekashi 6ix9ine í gufubaði líkamsræktarstöðvar
Bandaríski rapparinn Tekashi 6ix9ine var fluttur særður á sjúkrahús eftir að hópur manna réðst á hann í gufubaði líkamsræktarstöðvar í Flórída í nótt.

Ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu
Bandaríkjamenn segja ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu. „Það er ekki á neinn hátt raunhæft að ætla Kínverjum að vera hlutlausir,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær.

Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr
Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur.

Búa sig undir ákæru á hendur Trump
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verður mögulega ákærður í dag eða á næstu dögum, fyrir brot á lögum um kosningar. Hann yrði fyrsti fyrrverandi forseti til að verða ákærður en Trump hefur sjálfur kallað eftir umfangsmiklum mótælum og Repúblikanar hafa brugðist reiðir við fregnunum.

Paltrow fyrir dóm vegna árekstursins í skíðabrekkunni 2016
Bandaríska leikkonan Gwyneth Paltrow þarf að mæta í dómsal síðar í dag vegna máls sem 76 ára maður höfðaði gegn henni sökum áreksturs í skíðabrekku í Utah árið 2016.

Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar.

Víggirtu dómshús eftir að Trump hvatti til mótmæla
Lögregluyfirvöld í New York í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir það að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði hugsanlega veitt réttarstaða sakbornings í ríkinu. Lögreglumenn reistu varnargirðingar við dómshús á Manhattan í dag eftir að Trump hvatti fylgjendur sína til mótmæla.

Handtakið Davíð
Það hljómar eins og lélegur brandari að 20 ára afmælisdegi ólögmætrar innrásar í Írak sé „fagnað“ af Alþjóða Stríðsglæpadómstólnum með því að gefa út ákæru á hendur Pútin forseta Rússlands fyrir að flytja um sex þúsund munaðarlaus börn af stríðssvæði.

Rupert Murdoch er trúlofaður
Ástralsk-bandaríski fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch og kærasta hans Ann Lesley Smith eru trúlofuð.

Spilling og óöryggi plaga Írak 20 árum eftir innrás hinna „viljugu“
Í dag eru 20 ár liðin frá því að 295 þúsund hermenn Bandaríkjanna og „bandalags viljugra“ réðust inn í Írak. Um það bil 200 þúsund almennir borgarar létust, 45 þúsund íraskir her- og lögreglumenn og fleiri en átta þúsund Bandaríkjamenn; hermenn og verktakar.

Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna
Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa.

Ætlaði að opna fyrir bankandi gesti en var bitinn af krókódíl
Karlmaður í Flórída-fylki í Bandaríkjunum var bitinn af krókódíl í lærið er hann opnaði útidyrahurð sína eftir að hafa heyrt þar bank. Hann hlaut ekki lífshættulega áverka.

Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins
Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu.

Yfirtakan muni líklega róa markaði í Evrópu
Íslenskur greinandi segir að yfirtaka UBS á Credit Suisse muni líklega róa markaði í Evrópu en bankinn hafi verið svarti sauðurinn að ákveðnu leyti. Það að kaupverðið sé langt undir markaðsvirði komi ekki á óvart þar sem úlfatími sé á fjármálamarkaði. Bandaríkjamenn þurfi einnig að huga að lagabreytingum vegna veikleika sem komu bersýnilega í ljós í síðustu viku.

Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla
Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni.

Enn einni eldflauginni skotið frá Norður-Kóreu
Enn einni eldflauginni var skotið frá Norður-Kóreu í morgun. Að þessu sinni var um að ræða skammdræga eldflaug og var henni skotið til austurs, á haf út frá Kóreuskaganum.

Sögð undirbúa neyðarráðstafanir vegna yfirtöku UBS á Credit Suisse
Yfirvöld í Sviss eru sögð undirbúa neyðarráðsstafanir til að flýta fyrir yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse en ríkisstjórnin þar í landi kom saman á neyðarfundi í kvöld. Titringur hefur verið á mörkuðum víða um heim en íslenska fjármálakerfið er sterkt að sögn fjármálaráðherra. Hann hefur litlar áhyggjur af áhrifum, sem gætu þó orðið einhver.

Trump segir að hann verði handtekinn
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016.

Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri.

Stjarna úr The Wire látin
Leikarinn Lance Riddick, sem gerði garðinn frægan í lögregluþáttunum The Wire, er látinn aðeins sextugur að aldri.