Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024)

Nýr ráðherra muni leita allra leiða til að ógilda leyfið
„Þetta slær mig alveg hrikalega illa ef þetta er satt. Þetta er alveg með ólíkindum ef satt er. Vörn Bjarna byggðist öll á því þegar hann var gagnrýndur í fjölmiðlum að þetta væri allt hefðbundið, þetta væri bara það sama, þetta væri augljóst og hefði alltaf gerst hvort sem var.“

Hvalveiðileyfið endurnýjast út í eitt
Fimm ára veiðileyfi Hvals hf. endurnýjast sjálfkrafa árlega og getur því að óbreyttu verið í gildi í áraraðir. Sambærilegt ákvæði um endurnýjun hefur ekki verið í fyrri leyfisveitingum Hvals samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu.

Reiknar með að hefja aftur störf á föstudag
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari gerir ráð fyrir því að mæta aftur til starfa á föstudag. Hann hefur ekki mætt til vinnu síðan í lok júní þegar ríkissaksóknari afþakkaði vinnuframlag hans og óskaði eftir því við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús yrði leystur tímabundið frá störfum. Dómsmálaráðherra varð ekki við þeirri beiðni.

Ekki ónæm fyrir oft ósanngjarnri gagnrýni
Katrín Jakobsdóttir varð einn vinsælasti ef ekki vinsælasti stjórnmálamaður landsins samkvæmt könnunum fljótlega eftir að hún tók við mennta- og menningarmálaráðuneytinu í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna að loknu efnahagshruninu árið 2009. Þær vinsældir héldu áfram eftir að hún varð forsætisráðherra við myndun ríkisstjórnar Vinstri grænna með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki þótt fylgi stjórnarinnar fjaraði hratt út á seinna kjörtímabili ríkisstjórnar hennar eftir kosningarnar 2021.

Svara Bjarna fullum hálsi: „Hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð“
„Ég myndi vísa þessu á Bjarna Benediktsson, hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð og félagar hans.“

„Ég held að þetta fólk sé bara ekki læst á neinar tölur“
„Ég held að þetta fólk sé bara ekki læst á neinar tölur, því þetta lá fyrir við afgreiðslu fjárlaga,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra í samtali við fréttastofu.

Augljósir hagsmunaárekstrar að lyfsali skrifi upp á lyf
Læknir segir að margir þeirra sem starfa við heilsugæsluna hafi misst hökuna í gólfið þegar þeir lásu tillögu starfshóps heilbrigðisráðherra um að lyfjafræðingar gætu ávísað lyfjum. Það skapaði hagsmunaárekstra sem kæmu niður á sjúklingum og gerði lítið úr störfum lækna.

Þætti skemmtilegt að vera í stjórnarandstöðu „gegn þessum þremur“
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að sér þætti skemmtilegt að sitja í stjórnarandstöðu „gegn þessum þremur flokkum“. Þar vísar hann til Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, sem funda nú stíft um myndun ríkisstjórnar.

Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók
Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra Íslands segir að hún og Ragnar Jónasson hafi fengið margar áskoranir um að skrifa framhald af glæpasögunni Reykjavík. Hún segist ekki myndu geta látið myrða pólitíska andstæðinga sína í mögulegum skáldverkum og segist aðallega vera að huga að endurminningum.

Grautfúl að tapa forsetakosningunum
Katrín Jakobsdóttir segist hafa orðið grautfúl eftir að hafa tapað forsetakosningunum því hún hafi að sjálfsögðu farið í þær til að vinna kosningarnar. Í Samtalinu með Heimi Má á Stöð 2 í kvöld segist hún hafa fundið til djúprar sorgar þegar Vinstri græn félllu af þingi í nýafstöðnum alþingiskosningum.

Bein útsending: Staða orkumála og endurskoðun rammaáætlunar
Starfshópur um endurskoðun rammaáætlunar mun kynna stöðu orkumála og skýrslu sína á fundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Verkefni næstu ríkisstjórnar flóknara en áður var útlit fyrir
Verri afkoma ríkissjóðs en gert var ráð fyrir eru ekki góðar fréttir fyrir næstu ríkisstjórn, að sögn aðalhagfræðings Landsbankans. Hægara vaxtalækkunarferli og breytingar á fjárlögum skipti þar talsverðu máli.

Ríkur vilji til að styðja áfram við bakið á Úkraínu
Málefni Úkraínu, þróun mála í Sýrlandi og samskipti við Bandaríkin voru efst á baugi á fjarfundi norrænu utanríkisráðherranna sem fram fór í gær.

Fráfarandi stjórn skilji eftir verra bú en haldið er fram
Kristrún Frostadóttir segir liggja fyrir að fráfarandi ríkisstjórn skilji eftir sig verra bú en ríkisstjórnin hafi haldið fram. Við stjórnarmyndunarviðræður nú sé mikil áhersla lögð á efnahagsmálin. Búið sé að setja fram nokkuð stífan afkomuramma í viðræðunum.

Afkomuhorfur ríkissjóðs lakari en áður
Fjármálaráðuneytið reiknar með því að heildarafkoma ríkissjóðs verði neikvæð um 1,2 prósent af vergri landsframleiðslu á næsta ári. Í samanburði við síðustu birtu afkomuhorfur, frá því fjármálaáætlun var samþykkt í júní, eru afkomuhorfur ríkissjóðs fram á við nú lakari.

Evrópuþingmenn hvetja yfirvöld til að láta af hvalveiðum
Alls hafa 36 þingmenn Evrópuþingsins og umhverfisaktívistar sent ríkisstjórn Íslands áskorun um að binda enda á hvalveiðar. Í bréfi hópsins til ríkisstjórnarinnar segir að ákvörðun starfsstjórnar í síðustu viku stríði gegn alþjóðlegum skuldbindingum og sérstaklega þeim sem hafi verið gerðar í Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Telja flokkana þrjá geta fundið sterka sameiginlega samnefnara
Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra og einn stofnenda Viðreisnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segja nýliðnar alþingiskosningar staðfesta miklar breytingar á flokkakerfinu. Þau telja að þeir flokkar sem nú reyna að mynda ríkisstjórn ættu að geta fundið sameiginlegan samnefnara og eru bjartsýn á að þeim takist að mynda ríkisstjórn.

Útgáfa hvalveiðileyfa er samfélagslegt mein
Er til betra dæmi um spillingu Bjarna Benediktssonar og misheppnaðrar ríkisstjórnar hans en þá ákvörðun hans á síðustu stundu að gefa út hvalveiðileyfi á leiðinni út um dyrnar?

Eining um hvalveiðar innan starfsstjórnar
Ráðherrar í starfstjórn styðja ákvörðun forsætisráðherra að leyfa hvalveiðar og telja að ekki hafi þurft að bera málið undir þau áður en ákvörðun var tekin. Formaður Framsóknarflokksins styður ákvörðunina og bendir á að ráðherrar hafi áður tekið ákvarðanir um hvalveiðar í öðrum starfsstjórnum.

Ætlar að vera formaður í stjórnarandstöðu
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra og formaður Framsóknar segir eðlilegt að óánægja komi upp eftir vonbrigðakosningar. Hann hefur ekki heyrt af mögulegum formannaskiptum hjá flokknum. Það sé eðlilegt að Framsókn verði í stjórnarandstöðu.

„Ég hef átt ákveðin samtöl“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa rætt við formenn annarra flokka á Alþingi varðandi möguleg stjórnarmynstur. Nú séu formenn þriggja annarra flokka að ræða saman og ekki sé gott að segja til um það hvernig úr þeim viðræðum spilast.

Segja Bjarna að fara til andskotans og taka hvalveiðileyfið með
Samtök grænkera, Hvalavinir og ungir Píratar eru meðal þeirra sem brugðist hafa harkalega við ákvörðun Bjarna Benediktssonar matvælaráðherra um að veita leyfi til hvalveiða næstu fimm árin. Ungliðahreyfing Pírata segir Bjarna að „fara til andskotans“.

Engin ástæða til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á sama grundvelli
Bjarni Benediktsson forsætis- og matvælaráðherra segir ákvörðun um útgáfu hvalveiðileyfa ekkert annað en afgreiðslu í matvælaráðuneytinu. Verið sé að fylgja lögum. Engin ástæða sé til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á grundvelli sömu laga.

Veitir leyfi til veiða á langreyði og hrefnu
Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.. Leyfin eru veitt til fimm ára.

Halli upp á tugi milljarða hjá hinu opinbera
Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 37 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2024 eða sem nemur 3,1 prósent af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á þriðja ársfjórðungi 2023 0,5 prósent af vergri landsframleiðslu þess ársfjórðungs.

Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES
Fjöldi deilda innan Háskóla Íslands mótmælir fyrirhuguðum breytingum á gjaldtöku á nemendur í háskólanum sem eru frá löndum utan EES. Þau segja gjaldtökuna mismuna á grundvelli efnahags, þjóðernis og uppruna. Nemendum muni fækka og einstaka deildir líða fyrir fækkunina. Þá muni efling íslensku og íslenskukennslu líða mest fyrir breytinguna.

Afturkalla átta friðlýsingar
Friðlýsingar átta svæða á Íslandi hafa verið afturkallaðar. Var það gert vegna úrskurðar Hæstaréttar Íslands frá því í mars um að friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum frá árinu 2019 hefði verið ólögmæt.

Umsóknir enn til meðferðar „á faglegum grunni“
Fjórar fyrirliggjandi umsóknir til veiða á langreyðum og hrefnu eru til meðferðar í matvælaráðuneytinu á „faglegum grunni“.

Framlengir fjöldaflóttavernd enn frekar
Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga, sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa, sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta, verði lengdur úr þremur árum í fimm. Með breytingunni geta Úkraínumenn sem hingað komu í kjölfar innrásar Rússa dvalið hér til mars árið 2027 hið skemmsta.

„Þessi aðgerð lukkaðist vel“
Íslensk og erlend náttúruverndarsamtök báðu, að sögn ísraelsks fjölmiðils, ísraelska njósnafyrirtækið Black Cube um að rannsaka mál sem varð tilefni til tálbeituaðgerðar fyrirtækisins sem beindist að Gunnari Bergmann Jónssyni, syni Jóns Gunnarssonar.