Seðlabankinn breytir reglum um greiðslubyrðarhlutfall Atli Ísleifsson skrifar 3. desember 2025 08:41 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri mun ásamt Tómasi Brynjólfssyni, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar á fundi klukkan 9:30. Vísir/Lýður Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ákveðið að samþykkja breytingar á reglum um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda. Við útreikning á greiðslubyrði skal nú litið til allra greiðslna sem falla til hjá einstaklingum við öflun íbúðarhúsnæðis. Þar á meðal þarf að líta til greiðslna vegna afnota tengdum fyrirkomulagi íbúðakaupa, jafnvel þótt þeim sé frestað.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem birt var klukkan 8:30. Þar segir að eins og fjallað hafi verið um þá hafi á undanförnum vikum verið tilkynnt um fjölda sjóða sem ætli sér að fjárfesta með einstaklingum í íbúðarhúsnæði. Samkvæmt yfirlýstum áætlunum sé fyrirhugað að bjóða til sölu fasteignir með þessum hætti sem nemi um þriðjungi nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. „Ljóst er að þetta fyrirkomulag er áhættusamara en almenn íbúðakaup vegna lægra eiginfjárframlags kaupenda og hægari eiginfjármyndunar. Útbreidd notkun þessa fyrirkomulags gæti að óbreyttu leitt til aukinnar kerfisáhættu,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar. Stendur traustum fótum Í yfirlýsingunni segir að fjármálakerfið hér á landi handi traustum fótum og að eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun greitt. „Bankarnir hafa nýtt hagfelld skilyrði til að sækja sér aukið erlent lánsfé til lengri tíma og greitt upp óhagstæðari fjármögnun. Endurfjármögnunaráhætta hefur því minnkað og bankakerfið virðist vel í stakk búið til að takast á við óvænt áföll. Áhyggjur af alþjóðaþróun eru viðvarandi og víða um heim eru efasemdir um sjálfbærni opinberra fjármála. Helstu eignamarkaðir ytra þykja hátt verðlagðir á flesta mælikvarða. Við þær aðstæður eru auknar líkur á snarpri verðleiðréttingu sem gæti haft áhrif á innlenda fjármálamarkaði og aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum. Heimili og fyrirtæki búa almennt yfir ágætum viðnámsþrótti, sem m.a. má rekja til þétts taumhalds þjóðhagsvarúðarstefnunnar. Skuldahlutföll eru lág, kaupmáttur heimila hefur vaxið umtalsvert og lítið ber á vanskilum eða greiðsluerfiðleikum hjá heimilum og fyrirtækjum. Húsnæðisverð er enn hátt miðað við ráðandi þætti, svo sem laun og leigu. Hlutfallslegt verðlag húsnæðis á þessa mælikvarða hefur þó heldur lækkað á síðustu misserum. Framboð á húsnæðismarkaði hefur haldið áfram að aukast og birgðatími lengst. Þrenging á fjármálalegum skilyrðum heimila í kjölfar vaxtadóms Hæstaréttar 14. október sl. hefur að nokkru leyti gengið til baka, m.a. vegna aðgerða fjármálastöðugleika- og peningastefnunefnda Seðlabanka Íslands,“ segir í yfirlýsingunni. Aukin kerfisáhætta Áfram segir að á undanförnum vikum hafi verið tilkynnt um fjölda sjóða sem hyggist fjárfesta með einstaklingum í íbúðarhúsnæði. „Samkvæmt yfirlýstum áætlunum er fyrirhugað að bjóða til sölu fasteignir með þessum hætti sem nema um þriðjungi nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Ljóst er að þetta fyrirkomulag er áhættusamara en almenn íbúðakaup vegna lægra eiginfjárframlags kaupenda og hægari eiginfjármyndunar. Útbreidd notkun þessa fyrirkomulags gæti að óbreyttu leitt til aukinnar kerfisáhættu. Fjármálastöðugleikanefnd telur að framangreind leið geti grafið undan markmiðum lánþegaskilyrða Seðlabankans. Í ljósi þessa hefur nefndin samþykkt breytingar á reglum bankans nr. 1130/2025 um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda. Við útreikning á greiðslubyrði skal litið til allra greiðslna sem falla til hjá einstaklingum við öflun íbúðarhúsnæðis. Þar á meðal þarf að líta til greiðslna vegna afnota tengdum fyrirkomulagi íbúðakaupa, jafnvel þótt þeim sé frestað. Nefndin minnir jafnframt á að svigrúm lánveitenda var aukið í október sl. með hækkun undanþáguheimildar í fyrrnefndum reglum úr 5% í 10% veittra fasteignalána,“ segir í yfirlýsingunni. Kerfislegt mikilvægi bankanna Nefndin ræðir sömuleiðis að á rlegu endurmati á kerfislegu mikilvægi fjármálafyrirtækja sé lokið þar sem hún staðfesti kerfislegt mikilvægi Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans. Hefur verið ákveðið að eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki verði óbreyttur í þremur prósentum. „Nefndin ákvað jafnframt að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Fjármálastöðugleikanefnd leggur áfram áherslu á aukinn viðnámsþrótt fjármálakerfisins og þar með rekstraröryggi í greiðslumiðlun. Í því skyni samþykkti nefndin nýjar reglur um yfirsýn með kerfislega mikilvægum innviðum. Í reglunum er kveðið á um viðmið um hvaða innviðir skuli teljast kerfislega mikilvægir, enda gæti röskun á starfsemi þeirra haft áhrif á fjármálastöðugleika. Reglurnar kveða á um framkvæmd yfirsýnar Seðlabankans með þessum innviðum. Nefndin samþykkti einnig reglur um atvikamiðstöð fjármálainnviða sem ætlað er lykilhlutverk í skjótum og öruggum upplýsingaskiptum og samhæfingu vegna net- eða rekstraratvika. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti,“ segir í yfirlýsingunni. Bein útsending klukkan 9:30 Vefútsending frá kynningu vegna yfirlýsingar nefndarinnar og útgáfu Fjármálastöðugleika hefst svo klukkan 9:30. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, munu þar gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.
Seðlabankinn Efnahagsmál Lánamál Byggingariðnaður Fasteignamarkaður Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira