
Átök í Ísrael og Palestínu

Hafnar kröfum um vopnahlé og spáir fullnaðarsigri
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael hafnaði í dag vopnahléstillögu Hamas. Þá sagði hann fullnaðarsigur á Gasa væntanlegan á næstu mánuðum.

Salka Sól prjónar peysu fyrir Bashar Murad
Tónlistarkonan Salka Sól, sem jafnframt er þekkt hannyrðakona, hefur tekið sig til og prjónað peysu fyrir tónlistarmanninn Bashar Murad. Peysan er í palenstínsku fánalitunum.

Ætla að sækja fleiri fjölskyldur frá Gasa
Þrjár íslenskar konur sem sóttu í gær fjölskyldu, með dvalarleyfi á Íslandi, og fluttu frá Gasasvæðinu og yfir til Egyptalands ætla að halda áfram að bjarga börnum af svæðinu á meðan íslensk stjórnvöld funda um ástandið. Solaris samtökin hafa efnt til söfnunar til að koma fólki frá svæðinu.

Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum
Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni.

Hver er þinn hirðir?
Í hvert skipti sem ég nota kreditkort renna sjálfkrafa nokkrar krónur til milliliðs sem nefndur er færsluhirðir. Hluti þessarar greiðslu lendir beint á mér, en hluti á söluaðilanum. Ég verð að viðurkenna að fyrir nokkrum mánuðum vissi ég ekki einu sinni af þessum góða peningahirði.

Ætla að safna fimmtíu milljónum til að koma fólkinu sjálf frá Gasa
Efnt hefur verið til söfnunar til að standa að kostnaði við að flytja 128 Palestínumönnum frá Gasa. Þrjár íslenskar konur sem blöskraði aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar hafa sótt konu og þrjú börn til Gasa og komið til Egyptalands í öruggt skjól.

Stöndum með Palestínufólki! Fjölskyldurnar heim!
Þegar þetta er skrifað hefur Gasa verið undir stöðugu sprengjuregni í 122 daga; 35.000 manns hafa verið myrt og 2 milljónir eru fastar í herkví Ísraelshers. Aðstæðum hefur verið lýst sem fordæmalausri neyð af öllum helstu mannúðarsamtökum, mannúðaraðstoðin er fjársvelt og lítið sem ekkert af henni er leyft að berast á svæðið.

Mun koma fram fyrir hönd Ísraels í Malmö
Rússnesk-ísraelska söngkonan Eden Golan verður fulltrúi Ísraels í Eurovision sem fram fer í Malmö í Svíþjóð í maí næstkomandi.

Íslenskar konur sóttu fjölskyldu frá Gasa: „Drengirnir voru þreyttir og sögðu lítið“
„Þetta er ekki svona flókið, og ef þetta er svona flókið, hvernig fórum við þá að þessu? Þetta er enginn ómöguleiki,“ segir rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir, sem er nú stödd í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þar sem hún tók á móti fjögurra manna fjölskyldu frá Gasa í dag.

Eggjum grýtt og unglingar handteknir á Austurvelli
Tveir voru handteknir á fjölmennum mótmælum skólabarna á Austurvelli í dag. Krakkarnir kröfðust vopnahlés á Gasa og að íslensk stjórnvöld kæmu fjölskyldusameiningum til framkvæmda. Forsætisráðherra viðurkennir að málið þyrfti skjóta afgreiðslu en flókin framkvæmd tefji fyrir.

„Getum einfaldlega ekki haldið áfram í einhverri blindni“
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir dagaspursmál um að ráðherranefndin og ríkisstjórnin komist til botns í umræðu sinni um málefni hælisleitenda og geti því myndað sér nýja stefnu í málaflokknum. Hann segir að það gæti gerst innan skamms að Ísland fari að bjarga fólki, en segist óttast að innviðir landsins springi.

Tveir drengir handteknir á mótmælum barna
Tveir drengir voru handteknir á Austurvelli í morgun á mótmælum nemenda í Hagaskóla. Vitni segja engan sérstakan aðdraganda hafa verið að handtöku drengjanna. Yfirlögregluþjónn segir þá hafa ekki hlýtt fyrirmælum, hindrað störf lögreglu og framið skemmdarverk.

Eggjum kastað í þinghúsið
Einstaklingar úr hópi grunnskólabarna, sem komu saman til mótmæla á Austurvelli fyrr í dag, hafa kastað eggjum í Alþingishúsið.

Gengu út úr tíma í Hagaskóla og fóru í verkfall fyrir Palestínu
Nemendur í Hagaskóla gengu í morgun út úr tíma og fóru í „skólaverkfall fyrir Palestínu“. Krakkarnir vilja að ríkisstjórnin bregðist við og sameini fjölskyldur en lýsa aðgerðinni einnig sem stuðningsyfirlýsingu.

Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars.

Ræddu nauðsyn þess að draga úr spennu
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú á leið til Kaíró til að funda með Abdel Fattah El-Sisi, forseta Egyptalands. Blinken átti fund með Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu í gær.

Stofna til óháðrar rannsóknar á UNRWA
António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur stofnað óháðan rannsóknarhóp sem á að skoða starfsemi Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í kjölfar ásakana um að nokkrir af þúsundum starfsmanna stofnunarinnar hafi tekið þátt í árásum Hamas-liða á Ísrael þann 7. október.

Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi
Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni.

Bein útsending: Óundirbúnar fyrirspurnir meðan mótmælt er á Austurvelli
Óundirbúinn fyrirspurnatími hefst á Alþingi klukkan 15. Á sama tíma hefjast mótmæli á Austurvelli sem félagið Ísland – Palestína boðaði til.

„Skólinn í sjálfu sér kemur ekkert nærri þessu“
Hópur grunnskólanema í Hagaskóla í Reykjavík hefur boðað til verkfalls á morgun til stuðnings Palestínu. Skólastjóri segist ekki gera sér grein fyrir umfangi verkfallsins og hvort fimm, fimmtíu eða fimm hundruð nemendur muni ganga út úr tímum á morgun. Hann fagnar því að ungt fólk sé hugsandi, taki afstöðu og láti sig samfélagsleg málefni varða.

Um 130 sagðir hafa látist í árásum Ísraelshers á Rafah
Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) segir að minnsta kosti 20 Palestínumenn hafa látist um helgina í loftárásum Ísraelshers á Rafah.

Sammála um áframhaldandi stuðning við UNRWA
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Orri Páll Jóhannsson þingmaður Vinstri grænna og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar eru sammála um það að íslenska ríkið eigi ekki að fresta áframhaldandi greiðslum til UNRWA, Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu.

Nánast allir íbúar Gasa reiða sig á okkur
Gréta Gunnarsdóttir, yfirmaður UNRWA í New York, segir starfsemi stofnunarinnar falla um sjálfa sig í lok mánaðarins ef þau ríki sem ætla sér að fresta framlögum til stofnunarinnar láta verða af því. Tvær milljónir manna á Gasa reiða sig á stofnunina en auk þess starfar hún á Vesturbakkanum í Palestínu og í Jórdaníu og Sýrlandi.

Hafa enn ekki tekið afstöðu til þess hvort fólkið verði sótt
Stjórnvöld hafa ekki tekið afstöðu til þess hvort dvalarleyfishafar á Gasasvæðinu fái aðstoð við að komast til landsins. Dómsmálaráðherra segist standa við fullyrðingar um að Ísland fari að fordæmi Norðurlandanna.

Mótmæla við Alþingi á mánudag vegna fjölskyldusameininga
Boðað hefur verið til mótmæla við Alþingi á mánudag þar sem á að krefjast þess að ráðamenn geri meira til að tryggja að fólk sem hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar á Gasa komist til landsins.

Ráðherrar stjórnist af tilfinningum og ótta
Dómsmálaráðherra segir fullyrðingar í frétt Ríkisútvarpsins um að hún hafi farið með rangt mál hvað varðar fjölskyldusameiningar úr lausu lofti gripnar. Þingmaður Pírata segir stjórnvöld skorta allan vilja til þess að koma dvalarleyfishöfum af Gazasvæðinu.

Hafi þegar leiðrétt ummæli sín
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af því að hún hafi farið með ósannindi varðandi stefnu stjórnvalda á Norðurlöndunum í aðstoð þeirra við flóttafólk á Gasa vera rangan. Hún hafi þegar leiðrétt ummæli sem hún hafi látið falla um málið þann 29. desember síðastliðinn.

Yfirvöld á Norðurlöndunum hafi aðstoðað aðra en eigin ríkisborgara
Yfirvöld á hinum Norðurlöndunum hafa aðstoðað aðra en ríkisborgara sína við að komast burt frá Palestínu. Rúv greindi frá þessu fyrr í kvöld.

Einn styður Ísrael og hinn Palestínu; báðum var sagt upp en aðeins annar endurráðinn
Upp er komið áhugavert mál í Bandaríkjunum þar sem tveimur læknum var sagt upp eftir að þeir deildu færslum á samfélagsmiðlum, annar til stuðnings Ísrael og hinn til stuðnings Palestínu.

Ákall um að FIFA og UEFA banni Ísrael að spila við Ísland
FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, og UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hafa verið hvött til að banna Ísrael frá allri keppni í fótbolta vegna hörmunganna á Gasa. Slíkt bann hefði mikil áhrif á Ísland.