
Eldri borgarar

Þórunn Antonía sinnir heldri borgurum
Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir hefur hafið störf sem frístundarleiðbeinandi heldri borgara og segist elska þær nýjungar sem lífið hefur fært henni. Frá þessu greinir hún í einlægri færslu á Instagram.

Við eldri þvælumst ekki fyrir
Hvað er málið með eldra fólk? Það vill að ríkið, sem erum við, greiði því hærri eftirlaun.

Nýtt app: „Það gat tekið mömmu hálfan daginn að hafa samband við alla“
„Með appi í símanum fá skjólstæðingar, fjölskyldur þeirra og allir sem koma að umönnun viðkomandi upplýsingar á einum stað um til dæmis þjónustu sem á að veita, hver sér um hvað, lyfjagjafir og fleira,“ segir Finnur segir Finnur Pálmi Magnússon, framkvæmdastjóri dala.care en fyrirtækið hefur þróað stafrænar lausnir fyrir heimaþjónustu.

Núna!
Átta hundruð eldri borgarar eru á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og þar af eru fjögur hundruð á biðlista eftir hjúkrunarrými í Reykjavík. Til þess að leysa þennan vanda þarf að byggja átta hundruð ný hjúkrunarrými á næstu árum. Ef ekkert er gert mun biðlistinn eftir hjúkrunarrýmum vaxa á hverju ári.

Öll hreyfing skiptir máli
Í dag, 7. febrúar, ræsir Íþrótta- og ólympíusamband Íslands Lífshlaupið í 17. sinn en embætti landlæknis hefur verið samstarfsaðili þess í gegnum árin. Meginmarkmið Lífshlaupsins er að hvetja landsmenn til að hreyfa sig í samræmi við opinberar ráðleggingar og gera hreyfingu að föstum lið í lífinu eftir því sem við á; í frítíma, í vinnu, í skóla eða við val á ferðamáta.

Þjóðarsátt
Eldra fólk á Íslandi, þessi fimmtíu þúsund manns sem er kominn yfir 67 ára aldur, er alls ekki einsleitur hópur þó í umtalinu virðist það vera svo.

Látum verkin tala!
Það eru 43 ár síðan ég opnaði Tommaborgara 14. mars 1981. Síðan þá hef ég rekið Hard Rock Café, Hótel Borg, skemmtistaðinn Amma Lú og svo stofnaði ég Kaffibrennsluna árið 1996. En fyrsta alvöru stjórnunarhlutverk mitt var þegar ég sá um reksturinn á Félagsheimilinu Festi í Grindavík á árunum 1974 til 1977 (þegar upp er staðið var það ánægjulegasta og lærdómsríkasta tímabíl ævi minnar).

Segir vísindamenn komna með fingurna á erfðavísi langlífis
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að í fyrsta sinn séu vísindamenn á réttri leið við að finna erfðavísa sem hafi áhrif á getu fólks til þess að verða gamalt.

Kollsteypa með dropateljara á Akureyri
Í talsvert einfaldaðri mynd má segja að heilbrigðiskerfið íslenska eigi sér fjórar stoðir. Heilsugæsla, sjúkrahúsþjónusta, sérfræðiþjónusta og öldrunarþjónusta. Þrjár af þessum fjórum stoðum eiga undir verulegt högg að sækja á Akureyri og svar ríkisstjórnarinnar, ábyrgðaraðila kerfisins, virðist vera að fela einkafyrirtæki að leysa vandann.

Segir áform um eldriborgarabyggð úr takti við öll framtíðarplön bæjarins
Bæjarfulltrúi Píarata í Kópavogi segist hafa rekið upp stór augu þegar fréttir birtust af því fyrir helgi að bærinn hefði áform um að reisa byggð fyrir aldraða í Gunnarshólma. Mikið hafi verið deilt um málið í bæjarráði og enn eigi eftir að afgreiða það hjá bæjarstjórn.

Klökknar enn við tilhugsun um fjölskylduna sem bjargaði honum
Kristján Gíslason segist hafa lært að fólk sé gott og heimurinn sé fallegur staður eftir að hafa farið einn á mótorhjóli hringinn í kringum hnöttinn og svo í gegnum alla Afríku. Kristján, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segist gjörbreyttur maður eftir að hafa flakkað um allan heim einn síns liðs á mótorhjólinu.

Dagdvöl á Selfossi lokað í fimm vikur vegna sparnaðar
Eldri borgarar á Selfossi, sem nýta sér þjónustu Árbliks, sem er dagdvöl er miður sín yfir því að loka eigi dagdvölinni í fimm vikur í sumar í sparnaðarskyni hjá Sveitarfélaginu Árborg. „Ég veit ekki hvernig við eigum að vera ein heima í fleiri vikur“, segir óhress eldri borgari á staðnum.

Byggja hverfi fyrir aldraða á Gunnarshólma
Byggja á upp fimm þúsund íbúða lífsgæðakjarna á jörðinni Gunnarshólma norður við Suðurlandsveg við Hólmsheiði og Rauðavatn. Bæjarráð Kópavogs komst að þessari niðurstöðu á fundi sínum í dag.

Fékk formann flokksins í hundrað ára afmælisgjöf
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins tók sér hlé frá önnum við að sinna utanríkismálunum og heimsótti hundrað ára afmælisbarn á hjúkrunarheimili í dag.

Báðir tvíburarnir enduðu í eldavélum
29. janúar 2024 fagna tvíburarnir Ágúst Ingiþórs og Ingvi Ingiþórs Ingasynir áttatíu ára afmæli sínu en í sitthvoru landinu.

Á morgun segir sá lati
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna ríkisstjórn sem hefur sett Íslandsmet í útgjöldum, á svona erfitt með að tryggja grunnþarfir eldra fólks. Átta hundruð manns eru á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og þar af eru fjögur hundruð í Reykjavík.

Sló annað heimsmetið á tíræðisaldri
Níræð kona setti heimsmet í 200 metra hlaupi 90 ára og eldri á dögunum. Það gerði hún skömmu eftir að hafa jafnað sig á bringubeinsbroti.

Nú á að einkavæða ellina
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur áformar stórfellda einkavæðingu í rekstri hjúkrunarheimila. Heilbrigðisráðherra hefur lýst yfir algjörri uppgjöf ríkisvaldsins gagnvart því verkefni að tryggja öldruðum grundvallarþjónustu innan velferðarkerfisins.

Íslenskt par fannst látið í íbúð á Spáni
Íslenskt par, karl og kona, fannst látið í síðustu viku í íbúð í bænum Torrevieja á Spáni.

Pallborðið: Hvað felst í þjóðarsátt og fyrir hverja er hún?
Kjaraviðræður, kjarasamningar og möguleg þjóðarsátt verða til umfjöllunar í Pallborðinu klukkan 13 í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

„Þetta voru vinir mínir, skepnurnar”
Guðmunda Tyrfingsdóttir, bóndi á tíræðisaldri sem vann fullnaðarsigur gegn Matvælastofnun þegar skepnum hennar var slátrað, ætlar ekki að gefast upp í búskapnum því hún er búin að fá sér hænur. Matvælastofnun hefur sent henni afsökunarbeiðni og lagt inn á hana andvirði skepnanna, sem var slátrað í óleyfi.

Fyrrverandi félagar í samfloti?
Við félagar í LEB - Landssambandi eldri borgara, stjórn þess og kjaranefnd í samráði við 55 félög eldra fólks um allt land, höfum gengið frá sameiginlegri stefnu í kjaramálum og kynnt hana á fjölmörgum fundum víða um land. Umfangsmesta kynningin var á málþingi í Reykjavík núna í haust með yfirskriftinni Við bíðum... ekki lengur! sem var mjög fjölsótt og streymt til þúsunda manna um allt land.

Vafasamt lögmæti niðurfellingar persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir erlendis
Ég get ekki sagt annað en að það var afskaplega lélegt af fjármálaráðuneytinu að fella niður persónuafslátt öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir erlendis. Rökin fyrir þessu standast ekki nánari athugun og þetta flækir eingöngu lífið hjá þessu fólki, þar sem það er verið að bæta við skriffinnsku hjá Íslenska ríkinu og auka þannig kostnað upp á milljónir króna.

41 einstaklingur eldri en hundrað ára á landinu
Fjörutíu og einn einstaklingur er hundrað ára eða eldri á landinu í dag. Elsti núlifandi einstaklingurinn, sem búsettur er á Íslandi, er 106 ára kona, fædd árið 1917, og er hún búsett á Suðurlandi.

Segja Ingu og Flokk fólksins bara víst eiga heiðurinn
Upp er risin sérkennileg deila sem varðar tiltölulega flókna lagasetningu sem miðar að því að ellilífeyrisþegar sem búsettir eru erlendis njóti eftir sem áður persónuafsláttar. Málið snýst um hverjum ber að þakka, hver eigi heiðurinn.

Inga segir gráa hernum að halda stillingu sinni
Lífeyrisþegar sem búsettir eru erlendis – ellismellir og öryrkjar – eru í áfalli. Persónuafslætti verður hent út við greiðslur frá Tryggingastofnun 1. janúar.

Vilja útvíkka veikindaréttinn til veikinda nákominna
Útvíkkun veikindaréttarins, þannig að hann nái einnig til þess þegar fólk þarf að sinna veikum fjölskyldumeðlimum, verður líklega meðal baráttumála í komandi kjaraviðræðum.

Elsti Íslendingurinn stefnir á að verða 110 ára
Elsti Íslendingurinn, Þórhildur Magnúsdóttir, sem er 106 ára nýtur jólanna með fjölskyldu sinni en hún á um hundrað afkomendur. Sjálf segist hún stefna á að lifa til 110 ára aldurs því þá er Gissur Páll Gissurarson búin að lofa að syngja í afmælinu hennar.

MAST mátti ekki slátra skepnum Guðmundu
Ákvörðun Matvælastofnunar um að vörslusvipta Guðmundu Tyrfingsdóttur bónda búfénaði sínum og slátra honum hefur verið úrskurðuð ólögmæt af matvælaráðuneytinu. Lögmaður Guðmundu segir Guðmundu sátta með úrskurðinn þó dýrin snúi aldrei heim.

Af hverju fær móðir min ekki pláss á öldrunarheimili?
Hver ber ábyrgð á þvi að gamalt folk fær ekki inn á öldrunarheimili? Öldrunarlæknir á Landspitalanum segir að gamalt folk á Landspitalanum teppi 100 legurymi á Landspitalanum, vegna þess að það er hvergi pláss fyrir þetta gamla folk á viðeigandi stofnunum. Dæmi eru um að folk þurfi að bíða í allt að einu ári eftir plássi!