Kjaramál

Launakostnaður gæti meira en tvöfaldast
Launakostnaður fyrirtækja gæti aukist um allt að 150 prósent ef fallist verður á kröfur Starfsgreinasambands Íslands um krónutöluhækkanir og styttri vinnuviku án launaskerðingar.

Krefjast 125 þúsund króna hækkunar
Í kröfugerð VR kemur fram að félagið vilji að hlutur þeirra lægst launuðu verði réttur og að ráðstöfunartekjur allra félagsmanna VR verði auknar.

Verkalýðshreyfingin fagnar tekjuvefnum
Vilhjálmur Birgisson segir vefinn gríðarlega mikilvægan meðan frjálshyggjumenn vilja fá honum lokað.

Segir ófremdarástand á húsnæðismarkaði ekki leyst með launahækkunum
Fulltrúar atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar ræddu yfirvofandi kjaraviðræður í umræðuþættinum Sprengisandi í morgun.

Laun skólastjórnenda hafa dregist aftur úr
Ársfundur Skólastjórafélags Íslands fór fram í Reykjanesbæ í morgun. Félagið gagnrýnir meðal annars viðhorf samninganefndar sveitarfélaganna.

Segir margar áherslur hjá SGS ríma við stefnu stjórnvalda
Forsætisráðherra segir stjórnvöld tilbúin til að liðka fyrir kjarasamningum. Margar af kröfum SGS gagnvart stjórnvöldum rími við stefnuna en heildarmyndin liggi ekki fyrir þar sem ekki séu allar kröfur komnar fram. Framkvæmdastjóri Norðlenska segir að svo stöddu ekki hægt að ganga lengra í kaupmáttaraukningu.

Sagði bílstjórana sjá um greiðslu til Elju
Strætó sagðist ekki annast milligöngu um innheimtu húsaleigu af starfsmönnum til starfsmannaþjónustunnar Elju í svari við fyrirspurn Samtaka leigjenda árið 2016. Í yfirlýsingu frá Strætó í fyrradag segir hins vegar að Strætó hafi haft milligöngu um greiðslurnar.

Forsætisráðherra segir stjórnvöld vilja greiða fyrir kjarasamningum
Nú þegar hafi verið gripið til margs konar úrræða í þeim efnum og önnur séu í farvatninu í tengslum við fjárlög næsta árs.

Rekinn fyrir að reykja og gert að yfirgefa vistaverur sínar
Michal Jablonski var í pattstöðu á Patreksfirði en nú rannsakar Vinnueftirlitið mál hans.

BHM lagði ríkið
Ríkið var dæmt til að greiða ljósmæðrum vangoldin laun.

Líkur á samfloti VR og SGS hafa aukist til mikilla muna
Formaður VR er bjartsýnn á að samflot með SGS verði að veruleika í komandi kjaraviðræðum. Mun bjóða sig fram sem fyrsta varaforseta ASÍ. Formaður Eflingar er ánægð með kröftuga kröfugerð SGS.

Fleiri tilfelli hjá Strætó en gefið var upp
Strætó hefur notast við starfsfólk starfsmannaleigu lengur en fyrirtækið greindi upphaflega frá.

Segir stjórn Sjómannafélagsins vilja losna við sig með klækjum og fantaskap
Heiðveig María segir stjórn SÍ hafa breytt lögum sem komi í veg fyrir framboð hennar.

Formaður VR bjartsýnn á víðtækt samflot
Starfsgreinasambandið opinberaði sínar kröfur fyrir viðræður við Samtök atvinnulífsins í gær.


70 þúsund króna húsaleiga var dregin af launum þrjátíu vagnstjóra Strætó
Strætó bs. hafnar því að brotið sé á réttindum og kjörum starfsmanna. Fyrirtækið segist þó hafa dregið 70 þúsund krónur af launum þrjátíu erlendra vagnstjóra sem störfuðu hjá fyrirtækinu sumarið 2018.

Framkvæmdastjóri SA kallar eftir skynsemi
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir kröfugerð Starfsgreinasambandsins verða að taka mið af launa- og kaupmáttarhækkunum síðasta árið. Verulegar krónutöluhækkanir og styttri vinnuvika sé ekki sérlega skynsamleg nálgun

Efling vill flytja fjármuni frá Gamma
Stjórn Eflingar samþykkti í sumar að færa 1,4 milljarða úr eignastýringu hjá Gamma.

Sakar Gunnar Smára um aðför að mannorði sínu
Fjármálastjóri Eflingar sem nú er í veikindaleyfi sakar Gunnar Smára Egilsson um aðför að mannorði hennar sem gefi nægt tilefni til meiðyrðamáls og kröfu um miskabætur.

Krefjast þess að lágmarkslaun verði 425 þúsund á mánuði
Starfsgreinasambandið krefst þess að lágmarkslaun verði 425 þúsund krónur í lok þriggja ára samningstímabils. Þá verði samið um krónutöluhækkanir launa og breytingar gerðar á persónuafslætti sem lækki eftir því sem laun hækka

„Langflestar“ flugfreyjur Icelandair völdu fullt starf
Meirihluti flugfreyja og flugþjóna í hlutastarfi hjá Icelandair, sem gert var að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. janúar næstkomandi ellegar missa vinnuna, valdi fyrri kostinn.

Sjómenn sameinast í kjarabaráttu
Fjölmörg stéttarfélög sjómanna hafa undirbúið sameiningu til að standa betur að vígi í baráttu sinni fyrir bættum kjörum.

Lögmaður Brimborgar kannar möguleg lögbrot af hálfu Kveiks
Forstjóri Brimborgar lætur lögmanns fyrirtækisins skoða möguleg brot á fjölmiðlalögum eða um ærumeiðingar.

Segir að stórauka þurfi eftirlit með launaþjófnaði
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að stórauka þurfi eftirlit með launaþjófnaði innan veitinga- og hótelgeirans. Hún segir slík lögbrot ekki liðin innan samtakanna enda grafi þau undan ábyrgum fyrirtækjum.

Heiðveig María segir forystu sjómanna hafa brugðist
Fyrsta konan til að bjóða sig fram til forystu í Sjómannafélagi Íslands gagnrýnir núverandi forystu fyrir að koma illa undirbúna að gerð kjarasamninga og standa sig ekki í stykkinu í vöktun löggjafar sem snertir hagsmuni sjómanna.

Hundruð dæma um launaþjófnað á ári hverju
Starfsmaður Eflingar segir nokkuð um tilfelli um launaþjófnað í hótel- og veitingageiranum.

Hafna ásökunum Morgunblaðsins og segja blaðið fara með dylgjur
Stjórnendur stéttarfélagsins Eflingar vísa í yfirlýsingu fréttaflutningi Morgunblaðsins á bug og óska þess að blaðið "láti af því að gera starfsfólki félagsins upp tilhæfulaus klögumál og fara með dylgjur um starfsemi félagsins."

Ný breiðfylking að myndast innan verkalýðshreyfingarinnar
Nítján félög innan Starfsgreinasambandsins munu leggja fram kröfur sínar fyrir komandi kjaraviðræður um miðja næstu viku. Félögin öll hafa ákveðið að fara sameinuð fram í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins en það hefur ekki áður gerst í sögu sambandsins.

Kveiksliðar hafna gagnrýni forstjóra Brimborgar
Þeir segja að sjónarmið bílaumboðsins um mál pólsks manns sem starfaði fyrir það á vegum starfsmannaþjónustu hafi komið fram í þætti um stöðu erlends verkafólks á Íslandi í vikunni.

Vill viðtækara samstarf til að uppræta brotastarfsemi á vinnumarkaði
Aðstoðarforstjóri Vinnumálastofnunar telur að vinnustaðaeftirlitið, sem stofnunin sér um, muni ekki uppræta þá brotastarfsemi sem á sér stað á vinnumarkaði hér á landi.