

Johnny Rotten, fyrrverandi söngvari hljómsveitarinnar Sex Pistol, mun ekki keppa fyrir hönd Íra í Eurovision í ár. Lag hans, Hawaii, tapaði fyrir hljómsveitinni Wild Youth í undankeppni Írlands í gær.
Þjóðirnar 37 sem taka þátt í Eurovision söngvakeppninni í vor eru smám saman farnar að velja framlag sitt. Írland, sem hefur unnið keppnina 7 sinnum, eða oftar en nokkur önnur þjóð, velur framlag sitt í byrjun næsta mánaðar. Þar hefur einn keppandi algerlega stolið senunni og í raun reitt marga til reiði.
Svo gæti farið að Johnny Rotten, söngvari bresku pönksveitarinnar Sex Pistols á árum áður, verði á stóra sviðinu í Liverpool í maí þegar Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram.
Íslenska fjártæknifyrirtækið Yay hefur samið við írska fjárfestingarfyrirtækið Olympia Capital um uppsetningu, sölu og dreifingu á þjónustu Yay á Írlandi. Yay er helst þekkt fyrir að hafa haldið utan um ferðagjöfina fyrir íslenska ríkið í gegnum gjafabréfakerfi sitt.
Írska kvennlandsliðiðinu í fótbolta tókst það á þriðjudagskvöldið sem okkar stelpum tókst ekki. Írland tryggði sér þá sæti á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi með sigri á Skotum.
Tíu létust í sprengingu sem varð á bensínstöð í Donegal á Írlandi í gær. Barn og ungmenni eru meðal látinna. Forsætisráðherra segir þjóðina í sárum.
Minnst sjö eru látnir eftir að sprenging varð á bensínstöð í Donegal á Írlandi. Átta til viðbótar liggjá á sjúkrahúsi vegna sára sem þeir hlutu í sprengingunni.
Írsk stjórnvöld opnuðu vefsíðu í vikunni sem gerir fólki sem var ættleitt kleift að nálgast allar upplýsingar sem ríkið hefur um það, þar á meðal nafn lífmóður. Þúsundir írskra kvenna voru beittar þrýstingi til að gefa frá sér börn sín, sérstaklega á fæðingarheimilum sem kaþólska kirkjan rak.
Írska persónuverndarstofnunin hefur sektað Meta, móðurfyrirtæki Facebook, Instagram og WhatsApp um rúmlega 400 milljónir Bandaríkjadala eða um 57,7 milljarða króna. Sektin er gefin út vegna ófullnægjandi öryggisráðstafana Instagram hvað varðar notendur undir átján ára aldri.
Eva Doyle kom til Íslands í maí frá Írlandi þess að sinna sjálfboðastörfum en endaði á Þjóðhátíð þar sem hún er spennt að kynnast íslenskri tónlist betur.
Norður-Írinn David Trimble er látinn. Trimble hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1998 ásamt John Hume fyrir þeirra þátttöku í gerð Good Friday-sáttmálans.
Lúðrasveit í Norður-Írlandi veittist í dag að karlmanni sem kastaði ruslatunni í meðlimi sveitarinnar er þeir tóku þátt í skrúðgöngu. Maðurinn lokaði sig inni og brutu meðlimir sveitarinnar rúðu á fjölbýlishúsinu sem maðurinn býr í.
Lilja Björk Sigurðardóttir er rauðhærðasti Íslendingurinn. Rauðhærðasti Íslendingurinn var krýndur í 23. sinn á Akranesi þar sem nú er haldið upp á Írska daga.
Áhöfn kapalskips bandaríska strengjaframleiðandans SubCom hóf í gær lagningu nýja fjarskiptastrengsins ÍRIS frá Hafnarvík við Þorlákshöfn til Galway á Írlandi. Sæstrengurinn er um 1.800 kílómetra langur og mun stórauka fjarskiptaöryggi Íslands við Breltand og meginland Evrópu.
Bretar og Írar búast við því að halda EM í fótbolta árið 2028 í sameiningu, en engin önnur þjóð hefur boðið sig fram til að halda mótið.
Bretland og Írland vildu fá að halda heimsmeistarakeppnina í fótbolta eftir átta ár en ekki lengur. HM 2030 fer því ekki fram í Englandi, Skotlandi, Wales, Norður-Írlandi eða Írlandi.
Lögreglan á Írlandi hefur hafið rannsókn á atviki þar sem tveir menn drógu lík látins manns inn á pósthús í þeim tilgangi að fá ellilífeyri hans greiddan út.
Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við morðið á Ashling Murphy, sem var myrt fyrir viku síðan þegar hún var úti að skokka í bænum Tullamor í Offaly sýslu á Írlandi.
Hinn sautján ára Shane O’Connor fannst látinn í gær en hans hafði verið saknað síðan á fimmtudag. Móðir hans, söngkonan Sinéad O’Connor, segir hann hafa fallið fyrir eigin hendi.
Flugfélagið Play hefur bætt Dyflinn á Írlandi, Madríd á Spáni og Brussel í Belgíu við leiðarkerfi sitt. Með þessari viðbót eru áfangastaðir flugfélagsins í Evrópu orðnir 23 talsins.
Unga írska stelpan sem hljóp inn á völlinn og til Cristiano Ronaldo þarf ekki að greiða sektina sem hún átti að fá.
Flokkur sambandssinna á Norður-Írlandi hótar því að sprengja heimastjórnina þar verðir breytingar ekki gerðar á útgöngusamningi Bretland og Evrópusambandsins á næstu vikum. Bresk stjórnvöld tilkynntu í vikunni að aðlögunartímabil yrði framlengt á Norður-Írlandi.
Bresk stjórnvöld tilkynntu í dag að aðlögunartími fyrir innflutning til Norður-Írlands eftir útgönguna úr Evrópusambandinu verði enn framlengt. Frestinum er ætlað að veita Bretum og Evrópusambandinu meiri tíma til að komast að niðurstöðu um varanlega lausn.
Ísland er enn flokkað grænt á uppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu, sem segir til um stöðuna í hverju ríki vegna kórónuveirufaraldursins. Stór hluti Finnlands er nú einnig flokkaður sem grænt svæði.
Forsvarsmenn lestarkerfis Írlands rannsaka nú hvernig myndband af atviki þar sem táningsstúlka féll milli lestar og lestarpallar í Dublin lak á netið. Myndbandið fór eins og eldur í sinu um Írland og víðar en það sýnir hóp táningsdrengja veitast að stúlkum, hrækja á þær og ógna þeim, með áðurnefndum afleiðingum.
Stjórnendur opinberu heilbrigðisþjónustunnar á Írlandi hafa lokað öllum tölvukerfum og afbókað fjölda læknisheimsókna í kjölfar netárásar.
Breskir hermenn drápu fólk sem var blásaklaust í aðgerðum sínum í Belfast fyrir fimmtíu árum. Dánardómstjóri á Norður-Írlandi komst að þeirri niðurstöðu að hermenn hefðu valdi dauða að minnsta kosti níu af tíu manns sem féllu. Breska ríkisstjórnin ætlar að veita fyrrverandi hermönnum á Norður-Írlandi aukna friðhelgi fyrir saksókn.
Írski knattspyrnumaðurinn Alan McLoughlin er látinn, 54 ára að aldri. Hann greindi frá því í mars síðastliðinn að hann glímdi við krabbamein.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur nú ákveðið hvar leikirnir sem fyrirhugað var að færu fram í Dublin og Bilbao, á EM karla í fótbolta í sumar, verða spilaðir.
Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, hefur beðist afsökunar á dauða Mountbatten lávarðs, frænda hertogans af Edinborg. Mountbatten var myrtur af Írska lýðveldishernum (IRA) árið 1979.