Danmörk

Danir kveðja grímurnar nær alfarið eftir nýtt samkomulag um tilslakanir
Danskir þingmenn náðu seint í nótt – eftir um tólf tíma samningaviðræður sín á milli – samkomulagi um nýjar tilslakanir í landinu.

Logi fordæmir danska jafnaðarmenn
Þeir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, voru gestir í Sprengisandi í morgun. Þar tókust þeir á um nýja stefnu danskra stjórnvalda í innflytjendamálum.

Danskir kratar með rós í hatti
Danska þjóðþingið samþykkti í vikunni lög sem heimila að umsækjendur um alþjóðlega vernd verði sendir til ríkis utan Evrópu þar sem þeir bíða niðurstöðu umsókna sinna. Kosningaloforð danskra jafnaðarmanna frá 2019 um móttökustöð hælisleitenda utan Danmerkur færist nær því að verða að veruleika.

Upptökur hafnar á níundu þáttaröð Klovn
Það er staðfest að grínþættirnir Klovn eru hvergi nærri hættir. Áttunda þáttaröðin verður frumsýnd á sunnudag og kallast Okkar besta ár.

Danir samþykkja að geta útvistað hælisleitendakerfinu til þriðja ríkis
Meirihluti danska þingsins samþykkti í morgun umdeilt frumvarp ríkisstjórnarinnar sem heimilar dönskum yfirvöldum að útvista hælisleitendakerfi landsins til þriðja ríkis. Yfirlýst markmið danskra stjórnvalda er að engir sæki um hæli í landinu.

Íslendingar megi ekki sofna á verðinum
Utanríkisráðherra hefur krafið Dani um skýringar vegna þáttar þeirra í njósnum Bandaríkjamanna á stjórnmálaleiðtogum í Þýskalandi, Noregi, Svíþjóð og öðrum nágrannaríkjum.

Utanríkisráðuneytið krefur Dani svara um njósnir og lýsir yfir vonbrigðum
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, hefur krafist skýringa frá Dönum vegna fregna um aðstoð þeirra við njósnir Bandaríkjamanna.

Njósnir Bandaríkjanna með hjálp Dana séu skandall
Þýski stjórnmálamaðurinn Peer Steinbrück, fyrrverandi fjármálaráðherra Þýskalands og fyrrum kanslaraefni þýskra Sósíaldemókrata, hefur brugðist harkalega við fréttum þess efnis að Bandaríkjamenn hafi njósnað um hann og aðra þýska stjórnmálamenn með hjálp Dana.

Bandaríkjamenn fengu hjálp frá Dönum við njósnir
Bandaríska þjóðaröryggisstofnunin NSA stundaði njósnir á helstu ráðamönnum í grannríkjum Danmerkur í samstarfi við dönsku leyniþjónustuna. Þetta kemur fram í skýrslu sem norrænu ríkismiðlarnir greindu frá í samstarfi við þýska og franska fjölmiðla.

Fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur látinn
Poul Schlüter, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, er fallinn frá, 92 ára að aldri. Fjölskylda Schlüter greinir frá láti hans á heimasíðu danska Íhaldsflokksins, De Konservative.

Íslendingur á Fjóni ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni
Saksóknari á Fjóni í Danmörku hefur farið fram á að minnsta kosti fjögurra ára fangelsi yfir 51 árs gömlum Íslendingi sem ákærður er fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni og vörslu barnakláms.

Hætta við brottvísunarstöð fyrir brotlega hælisleitendur á Langalandi
Ríkisstjórn Danmerkur hefur hætt við áætlanir um að koma upp brottvísunarstöð fyrir brotlega hælisleitendur á Langalandi. Málið hefur mikið verið til umfjöllunar í Danmörku síðustu daga og vikur.

Magnús Þór tekur við áhættustýringunni hjá Danske Bank
Magnús Þór Ágústsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Danske Bank. Hann mun sömuleiðis taka sæti í framkvæmdastjórn bankans.

Tvö börn létust í eldsvoða í Danmörku
Tvö börn á aldrinum sjö og ellefu ára létust í eldsvoða í Danmörku í nótt þegar eldur kviknaði í íbúðahúsi í Hobro á norðanverðu Jótlandi.

„Sagði oft að andlitið á mér væri fallegt en líkaminn minn ekki“
Myndband af fitusmánun á 21 árs íslenskri stúlku í Kaupmannahöfn hefur vakið mikla athygli síðustu daga. María Rós Magnúsdóttir ákvað að birta myndbandið af atvikinu til þess að vekja fólk til umhugsunar um fitufordóma.

Maðurinn á bak við „Vi er røde, vi er hvide“ er fallinn frá
Danski tónlistarmaðurinn Michael Bruun er látinn, sjötugur að aldri. Bruun er einna þekktastur fyrir að hafa samið og framleitt lagið Re-Sepp-Ten, með laglínuna „Vi er røde, vi er hvide“ í viðlaginu. Lagið ómaði í kringum leiki danska landsliðsins á HM í knattspyrnu 1986 og raunar löngu eftir það og gerir enn.

Danir sömdu um tilslakanir sem ná til nærri alls samfélagsins
Samkomulag hefur náðst á danska þinginu um verulegar tilslakanir á sóttvarnarreglum í landinu frá og með komandi föstudegi. Afléttingarnar ná til landsins alls, og langflest svið dansks samfélags í einhverri mynd, ef frá eru taldir næturklúbbar og diskótek.

Vilja ekki geyma brottvikna hælisleitendur á Grænlandi
Ríkisstjórn Danmerkur hafnar tillögu Danska Þjóðarflokksins þess efnis að brottviknir hælisleitendur verði sendir í aflagða herstöð á Grænlandi. Þetta kom fram í ræðu ráðherra málefna innflytjenda, sósíaldemókratans Mattias Tesfaye, í danska þinginu.

Yfirbyggðir sjúkrasleðar hjá danska hernum á Grænlandi
Danski herinn á Grænlandi, Arktisk Kommando, hefur tekið þrjá sjúkrasleða til notkunar á afskekktum svæðum þessarar strjálbýlu nágrannaeyju Íslands. Sleðunum er ætlað að auka öryggi danskra hermanna, þar á meðal Síríus-sérsveitarinnar, en einnig vísindamanna og annarra á ferð um hrjóstrugar slóðir fjarri byggðum.

Greindist með kórónuveiruna daginn fyrir úrslitaleik á EM: Keypti sér far með einkaflugvél heim
Daninn Viktor Axelsen, einn besti badminton spilari heims, lenti um helgina í einni af verstu mögulegu martröð afreksmannsins á tímum kórónuveirunnar. Hann greindist með kórónuveiruna daginn fyrir úrslitaleik á Evrópumótinu.

Hróarskeldu og fleiri dönskum tónlistarhátíðum aflýst
Ekkert verður af Hróarskeldu-hátíðinni í Danmörku í sumar. Forsvarsmenn hátíðarinnar hafa ákveðið að aflýsa hátíðinni vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Engin hátíð var heldur síðasta sumar.

Danir hætta notkun á bóluefni Janssen
Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hætta notkun á bóluefni Johnson & Johnson, Janssen, gegn kórónuveirunni.

Danir byrja að sparka sýrlenskum flóttamönnum úr landi
Ríkisstjórn sósíaldemókrata í Danmörku er byrjuð að svipta suma sýrlenska flóttamenn sem fengu hæli vegna borgarastríðsins í heimalandinu landsvistarleyfi með þeim rökum að öruggt sé fyrir þá að snúa heim. Sérfræðingar vísa því mati danskra stjórnvalda á bug.

Krabbameinstilfellum hefur fækkað um 86 prósent vegna bóluefnis
Niðurstöður danskrar rannsóknar benda til þess að bóluefni gegn HPV veirunni hafi leitt til fækkunar leghálskrabbameinstilfella um 86 prósent. Þá minnkar bóluefnið líkurnar á frumubreytingum töluvert. Rannsóknaraðilar segja að niðurstöðurnar lofi góðu og séu fyrsta skrefið í að koma í veg fyrir leghálskrabbamein alfarið.

Skipa starfshóp Íslendinga og Dana um skiptingu handritanna
Í menntamálaráðuneytinu er verið að ganga frá formsatriðum vegna skipunar starfshóps Íslendinga og Dana um skiptingu handrita en á miðvikudag verður hálf öld frá því að handrit Flateyjarbókar og Konungsbókar Eddukvæða voru afhent.

Forstjóri Danske Bank hættur vegna gruns um lagabrot
Chris Vogelzang hefur látið af störfum sem forstjóri Danske Bank eftir að fréttir bárust um að hann sé grunaður um lagabrot í Hollandi.

Innkalla fleiri vörur hérlendis í kjölfar dauðsfallanna í Danmörku
Lyfjaver hefur í samvinnu við Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og hafið innköllun á öllum HUSK fæðubótarefnum vegna hugsanlegrar hættu á salmonellusmiti.

Vara við neyslu á vörum frá Husk eftir þrjú dauðsföll í Danmörku
Matvælastofnun varar við neyslu á Husk Psyllium Froskaller og Husk Psyllium Mavbalance trefjahylkjum og dufti frá fyrirtækinu Orkla Care. Innköllun stendur yfir á öllum lotum varanna hér á landi.

Þrír látnir af völdum salmonellu í Danmörku
Þrír eru látnir eftir að hafa smitast af salmonellu í Danmörku á síðustu dögum. Nítján hafa verið lagðir inn á sjúkrahús vegna sýkingarinnar og þá hafa 33 hið minnsta veikst.

Dæmdur fyrir að hafa „laumast til kynmaka“
Ungur karlmaður í Árósum í Danmörku var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun en dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa „laumast til kynmaka“ með jafnöldru sinni í sumarhúsi í Odder í janúar á þessu ári. Var talið að maðurinn hafði ekki haft ásetning til nauðgunar þegar brotið var framið.