Léttara yfir formanninum eftir þriggja tíma fund Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. janúar 2026 21:44 Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins sat langan fund með ráðherra í dag. Vísir/Vilhelm Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segist hafa farið bjartari út af fundi með Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra en hann fór inn á hann. Fundurinn stóð yfir í rúmlega þrjár klukkustundir að hans sögn.
Inga Sæland vakti töluverða gremju meðal kennara í Kastljósi í gær. Sérstaka athygli vöktu orð hennar um einkunnakerfi í grunnskólum. Fullyrti Inga að aðeins væru gefnar einkunnir í bókstöfum í tíunda bekk en rétt er að einkunnir eru gefnar í bókstöfum og litatáknum á öllum stigum grunnskólans og hefur verið svo um þónokkurt skeið. „Skólar geta jafnvel gefið einkunnir í litum og alls konar en það hefur engum dottið það í hug held ég,“ sagði Inga áður en Urður Örlygsdóttir tók orðið og sagðist ekki viss um að svo væri. „Jú jú, það er þannig. Ég er nú barna- og menntamálaráðherra alveg síðan í fyrradag þannig að ég veit þetta þó,“ sagði Inga brosandi. Strengir stilltir saman Kennarar létu óánægju sína með nýja ráðherrann í ljós á samfélagsmiðlum og víðar. Lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands sagði það leitt að ráðherra skyldi vera fremstur í flokki upplýsingaóreiðu og falsfrétta og viðtalið varð skólastjóra í Kópavogi tilefni til að velta merkingu orðsins besserwisser á samfélagsmiðlum. Magnús Þór sótti fundinn með Ingu ásamt Jónínu Hauksdóttur varaformanni. „Þetta var langur og mikilvægur fundur og er vonandi liður í því að allir fari að stilla saman strengi og tojtoji saman í réttar áttir,“ segir hann. Ber væntingar til samstarfsins Ummæli Ingu Sæland hafi verið rædd á fundinum. „Það kom sannarlega upp samtal um það hvort við gætum ekki tengt okkur saman, meðal annars í þessum atriðum sem Inga fór yfir í þessum viðtölum. Við áttum bara hreinskilið og gott samtal um áherslur í skólamálum,“ segir hann. „Ég ber væntingar til þess að við getum stillt saman strengi og unnið saman að hagsmunum barna á Íslandi í gegnum allt skólakerfið. Það er mun bjartara yfir mér eftir fundinn heldur fyrir hann,“ segir Magnús Þór Jónsson formaður KÍ.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stéttarfélög Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira