Tímamót

„Bráðum verðum við fjögur“
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Thelma Dögg Guðmundsen og Kristinn Logi Sigmarsson eiga von á sínu öðru barni.

„Húmorinn hefur bjargað lífi mínu oftar en einu sinni“
„Upphaflega var stefnan að spila í tvö skipti yfir eina helgi en þau plön breyttust. Við störtuðum algjöru mambó-æði sem gekk yfir landið næstu tvö ár,“ segir Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem Bogomil Font, einn af stofnendum Milljónamæringanna.

Bjarki Már og Unnur Ósk orðin tveggja barna foreldrar
Handboltakppinn Bjarki Már Elísson og kærasta hans, Unnur Ósk Steinþórsdóttir eignuðust stúlku 14. september, sem hefur verið nefnd Milla.

Stjörnulífið: Þyrla og legkaka í kynjaveislum helgarinnar
Haustið er sannarlega komið og heiðraði landsmenn rigningu og hvassviðri síðastliðna daga. Stjörnur landsins létu veðrið ekki stoppa sig og tóku meðal annars þátt í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk á laugardag. Þá fór fram vel heppnað fjáröflunarkvöld og kyn barna voru afhjúpuð með frumlegum hætti.

Tilkynntu kyn barnsins með þyrlu
Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson héldu kynjaveislu í kvöld þar sem þau greindu frá kyni ófædds barns síns með því að láta þyrlu dreifa bláum reyk úr lofti. Ef marka má bláan litinn á parið von á dreng.

Skipti um nafn og elti drauminn: „Fyrstu dagana tróðum við marvaða til að ná andanum“
Rúmur mánuður er nú síðan listahjónin Stefanía Berndsen og Mikael Torfason fluttust búferlum vestur um haf ásamt dætrum sínum tveimur sem eru fimm ára og fjórtán ára. Fjölskyldan hefur nú hreiðrað um sig í borg englanna í Kaliforníu þar sem Stefanía segir að draumar þeirra muni rætast.

Hugh Jackman og Deborra í sitthvora áttina
Ástralska leikaraparið Hugh Jackman og Deborra-lee Furness hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir 27 ára langt hjónaband.

Draumkennt þriggja daga brúðkaup á Ítalíu
Dansarinn og fasteignasalinn, Tara Sif Birgisdóttir og Elfari Elí Schweitz Jakobsson, lögfræðingur, giftu sig í annað sinn, á Ítalíu 11. ágúst síðastliðinn í smábænum Castel Gandolfo. Veisluhöldin stóðu yfir í þrjá daga og var draumi líkast.

Draumabrúðkaup Ölmu á Spáni
Tónlistarkonan Alma Guðmundsdóttir, betur þekkt sem Alma Goodman vestanhafs, giftist breska leikaranum Ed Weeks á Spáni liðna helgi. Vinkonur Ölmu úr Nylon voru á meðal veislugesta.

„Ég átti ekki krónu“
Þrjú ár eru nú síðan tískubloggarinn, hlaðvarpsstjórnandinn og ljósmyndarinn, Helgi Ómarsson fluttist hingað til lands slyppur og snauður. Hann segir ótrúlegt að líta til baka.

Sísi selur slotið við Snorrabraut
Listakonan Sísi Ingólfsdóttir hefur sett íbúð sína í Norðurmýrinni í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina eru 97,5 milljónir.

Segir kærastann einstakan á alla vegu
Athafnafólkið og eitt hressasta par landsins, Valgeir Gunnlaugsson og Camilla Rut Rúnarsdóttir, betur þekkt sem Valli og Camy, eru í þann mund að hefja sambúð á framtíðarheimili þeirra á Seltjarnarnesi eftir miklar framkvæmdir.

Mikið fjör á árshátíð Hagkaups
Árshátíð Hagkaups var haldin hátíðleg um helgina en herlegheitin fóru fram í Gamla bíói þar sem öllu var tjaldað til. Þeir Auðunn Blöndal og Steinþór Hróar Steinþórsson sáu um veislustjórn en fjöldi listamanna stigu á stokk og skemmtu gestum.

Farsæll ferill hófst þegar hann hætti að drekka
Tónlistarmaðurinn Rúnar Þór Pétursson fagnar 70 ára afmæli sínu síðar í þessum mánuði en í tilefni af því tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði 22. september, daginn eftir afmælið sitt. Sindri Sindrason hitti Rúnar í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Hildur selur íbúðina í Hlíðunum
„Frábær fyrsta eign með garði og allt. Hentar vel sem fyrsta eign og góð fyrir gæludýr,“ skrifar tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir á samfélagsmiðla og deilir eigninni með fylgjendum sínum.

Ásdís Rán ástfangin í Búlgaríu
Fyrirsætan og Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur fundið ástina í faðmi athafnamannsins Þórðar Daníels Þórðarsonar.

Jafna út leikinn með öðru barni
Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen eiga von á sínu öðru barni. Elísa greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gær.

„Svo bara ældu allir, þetta var svo rómantískt“
Hjónin Katla Hreiðarsdóttir og Haukur Unnar Þorkelsson giftu sig fyrr í sumar með heldur óvenjulegum hætti. Athöfnin var haldin við Hvaleyrarvatn og gekk erfiðlega að koma mat og drykkjarföngum á svæðið þar sem hvorki rafmagn né eldunaraðstaða er til staðar. Þegar hjónin höfðu innsiglað heitin mættu óvæntir ferfætlingar sem ferjuðu fjölskylduna að veislustaðnum.

Keppti fyrir hönd fjölfatlaðrar systur sinnar
Lilja Sif Pétursdóttir sigraði keppnina Miss Universe Iceland fyrir skemmstu. Hún er elst í sex systkina hópi en ein af systrum hennar er fjölfötluð sem er ástæða þess að Lilja starfar í dag á hjúkrunarheimili. Í framtíðinni dreymir Lilju um að geta hjálpað þeim sem minna mega sín.

Stebbi Hilmars orðinn afi
Birgir Steinn Stefánsson, tónlistarmaður og flugþjónn, og unnusta hans Rakel Sigurðardóttir eignuðust son 28. ágúst síðastliðinn. Um er að ræða fyrsta barn parsins.

Stjörnulífið: Helga Ómars langar í barn og hlakkar til jólanna
Liðin vika var sannkölluð tímótavika hjá stjörnum landins sem einkenndist af stórafmælum, flutningum erlendis og hressandi haustlægð. Það má með sanni segja að septembermánuður hafi mætt með pompi og prakt.

Síðustu forvöð til að drekka sig fulla
Elsti íbúa Hornafjarðar, Elínborg Pálsdóttir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Hún segist stefna ótrauð á að verða 110 ára.

Ákvað að börnin myndu ekki missa mömmu sína líka
„Það skiptir mig miklu máli að reyna að hafa skaðann eins takmarkaðann og hægt er eftir slíkan harmleik,“ segir fjárfestirinn, Drífa Björk Linnet ekkja Haraldar Loga Hrafnkelssonar. Hún hefur reynt að láta sorgina ekki heltaka líf sitt.

Sveinn Andri og Anna María nýtt par
Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og læknirinn Anna María Hákonardóttir eru nýtt par. Parið byrjaði saman í sumar, nánar tiltekið þann 12. júlí.

Tryllt ormakeppni í stórafmæli Kalla
Karl Sigurðsson, Baggalútur og fyrrverandi borgarfulltrúi, fagnaði fimmtugs afmæli sínu um helgina sem leið. Í tilefni þess hélt eiginkona hans, Tobba Marinós, fjölmiðlakona og frumkvöðull, glæsilega veislu honum til heiðurs.

„Skemmtilegasta brúðkaup allra tíma“
Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann Magnússon og Kristín Eva Geirsdóttir, lögfræðingur, gengu í hnapphelduna við hátíðlega athöfn í gær.

Hellisgerði hundrað ára og Hafnfirðingar halda hátíð
Almenningsgarðurinn Hellisgerði var opnaður fyrir eitt hundrað árum og í tilefni af því blása Hafnfirðingar til heljarinnar veislu um helgina.

Óvænt pálmatré settu strik í stóra daginn
Listaparið Sólbjört Sigurðardóttir og Einar Stefánsson hittust fyrst á tónlistarhátíðinni LungA sumarið 2016. Fyrsti kossinn átti sér stað á skemmtistaðnum Húrra haustið eftir. Í byrjun næsta árs breyttist líf parsins svo snögglega þegar ljóst var að þau ættu von á barni. Síðan þá hafa tekið við ótal ævintýri, þar á meðal þátttaka þeirra í Eurovision og ævintýralegt brúðkaup sem haldið var í Vestmannaeyjum fyrr í sumar.

Kelis hristir mjólkurhristingana ei meir fyrir Murray
Ástarsambandi Hollywood-leikarans Bill Murray og söngkonunnar Kelis er lokið eftir aðeins tvo mánuði.

Dóttir Hildar og Jóns komin með nafn
Yngsta dóttir Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jóns Skaftason, stjórnarformanns Sýnar, er komin með nafn. Stúlkan heitir Hólmfríður Áslaug.