Viðskipti innlent

Sig­rún Ósk kveður Stöð 2

Atli Ísleifsson skrifar
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur meðal annars stýrt tveimur þáttaröðum af Idol á Stöð 2.
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur meðal annars stýrt tveimur þáttaröðum af Idol á Stöð 2. Vísir/Vilhelm

Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur ákveðið að hætta störfum hjá Stöð 2 eftir sextán ára starf. Hún mun þó áfram vinna að nýrri þáttaröð sem fer í loftið á Stöð 2 eftir páska.

Sigrún Ósk, sem er ein reynslumesta og vinsælasta fjölmiðlakona landsins, greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Allt hefur sinn tíma og eftir sextán dásamleg ár á Stöð 2 hef ég ákveðið að segja upp störfum og leita á önnur mið. Þið eruð þó ekki laus við mig af skjánum alveg strax því ég er með nýja þáttaröð í vinnslu um stóru augnablikin í lífinu sem mun líta dagsins ljós eftir páska.

Þessi ákvörðun var erfið enda hafa Stöðvar 2 árin verið þau bestu og viðburðaríkustu í mínu lífi og vinnustaðurinn á stóran þátt í því. Ég mun því skilja við hann og samstarfsfólkið með miklum söknuði, en full þakklætis.

Ég þigg allar ábendingar um spennandi störf. Er góð í ýmsu, ágæt í sumu, en ekkert spes í boltaíþróttum,“ segir Sigrún Ósk.

Sigrún Ósk vann til blaðamannaverðlaunanna árið 2017 fyrir þættina Leitina að upprunanum.Vísir/Vilhelm

Hóf fjölmiðlaferilinn árið 1999

Sigrún Ósk hefur stýrt fjölda sjónvarpsþátta á Stöð 2 í gegnum árin, þar með talið Leitina að upprunanum, Allir geta dansað, Margra barna mæður, Neyðarlínuna og Idol. Hún hlaut blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir umfjöllun ársins árið 2017 fyrir þættina Leitina að upprunanum. Þá hefur hún í þrígang hlotið Edduverðlaun fyrir sömu þætti.  

Hún er uppalin á Akranesi og hóf sinn fjölmiðlaferil á Skessuhorni árið 1999. Á ferli sínum hefur hún svo starfað við dagskrárgerð hjá Sjónvarpinu, blaðamaður á Fréttablaðinu og svo við dagskrárgerð hjá Stöð 2.

Sjá má viðtal við Sigrúnu Ósk í Einkalífinu á Vísi frá árinu 2020 í spilaranum að neðan þar sem hún ræddi meðal annars fjölmiðlaferilinn og fjölskyldulífið.

Vísir er í eigu Sýnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×