Lífið

Aron Kristinn og Lára eiga von á barni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Aron Kristinn og Lára byrjuðu saman árið 2014.
Aron Kristinn og Lára byrjuðu saman árið 2014.

Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal eiga von á sínu fyrsta barni. Frá þessu greinir Aron í færslu á Instagram.

„Við Lára eigum von á barni,“ skrifar Aron við skemmtilega myndasyrpu af þeim hjúum.

Aron Kristinn hefur gert garðinn frægan með hljómsveitinni ClubDub og Lára starfar hjá KPMG sem sérfræðingur í sjálfbærni. Þau byrjuðu saman þegar þau voru bæði við nám í Verzlunarskóla Íslands árið 2014.

Hljómsveitin ClubDub samanstendur af tvíeykinu Aroni Kristni og Brynjari Barkarsyni. Hún vakti athygli fyrst árið 2018 með útgáfu EP plötunnar Juice Menu Vol. 1.

Þar má finna vinsæl lög á borð við Clubbed Up og Drykk 3x. Þá hefur sveitin gefið út fjöldann allan af smellum síðan og gaf meðal annars út plötuna Risa tilkynning síðastliðið vor. Vinsælasta lagið á þeirri plötu er bad bitch í RVK en lagið er með tæplega 900 þúsund spilanir á streymisveitunni Spotify.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.