NATO
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 20 ›
Innrásin í Úkraínu – mannréttindi og NATO-aðild Íslands Pútín Rússlandsforseti hefur hafið styrjöld í Evrópu gegn frjálsri og fullvalda þjóð, tilverurétti hennar og mannréttindum. Átökin ógna friði í heiminum enda er engin vissa fyrir því að þau takmarkist við Úkraínu. Skoðun 15.3.2022 10:30
Stuðningur Finna við inngöngu í NATO aukist um níu prósent frá innrás Meira en sextíu prósent Finna eru hlynnt inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og aðeins sextán prósent þeirra eru mótfallnir því. Stuðningur við innöngu hefur aukist gríðarlega frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 14.3.2022 14:42
Pútín sagður reiður og líklegur til að stigmagna átökin Vladimír Pútín, leiðtogi Rússlands, er sagður vera reiður og pirraður og Bandaríkjamenn óttast að hann muni stigmagna átökin í Úkraínu vegna slæms gengis innrásar Rússa. Innrásin sem átti að taka nokkra daga hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. Erlent 14.3.2022 11:47
Uggandi yfir nálægð herstöðvarinnar við NATO-ríki Rússar skutu á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun. Yfir 35 létust og 134 særðust í árás Rússa en herstöðin er aðeins 25 kílómetrum frá landamærum Póllands. Erlent 13.3.2022 18:26
Efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið þó Rússar notuðu efnavopn Prófessor í stjórnmálafræði efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið í Úkraínu ef Rússar myndu beita þar efnavopnum. Það þyrfti meira til að NATO færi í allsherjarstríð við Rússland. Erlent 13.3.2022 13:10
Sakar Loga um ódýra hræðslupólitík Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður íslandsdeildar NATO-þingsins sakar formann Samfylkingarinnar um ódýra hræðslupólitík, en hann sagði í dag að tilefni væri til að setja umsókn um aðild að Evrópusambandinu aftur á dagskrá. Innlent 12.3.2022 15:56
Ekki nóg að vera í NATO og tímabært að huga að aðild að ESB Formaður Samfylkingarinnar segir kominn tíma á að setja aðildarumsókn að Evrópusambandi aftur rækilega á dagskrá. Innlent 12.3.2022 13:35
Hrávörustríðið – ný tegund heimsstyrjaldar Innrásin í Úkraínu hefur veruleg áhrif á hrávöru, flutning á henni og hendur til að vinna hrávöru úr jörðu. Grunnur átakanna á svæðinu er beintengdur hagsmunum Rússa er kemur að hrávöru. Skoðun 11.3.2022 10:00
Níutíu prósent Íslendinga hlynnt móttöku flóttafólks frá Úkraínu Rúm níutíu prósent landsmanna eru hlynnt því að Ísland taki á móti flóttafólki frá Úkraínu. Innlent 11.3.2022 07:18
Tókust á um hvort uppfæra þyrfti varnarsamninginn Katrín Jakobsdóttur, forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, tókust á um hvort þörf væri á því að uppfæra varnarsamning Íslands við Bandaríkin, í ljósi nýrra ógna. Innlent 10.3.2022 12:45
Hátt í helmingur hlynntur ESB-aðild Íslands og þriðjungur mótfallinn Hátt í helmingur landsmanna er hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) en þriðjungur mótfallinn. Umtalsvert fleiri eru hlynntir ESB-aðild nú en þegar spurt var fyrir átta árum síðan. Innlent 10.3.2022 10:20
Borgarbúum brugðið við drunur í orrustuþotum Íbúum höfuðborgarsvæðisins brá mörgum í brún í kvöld þegar miklar drunur heyrðust í háloftunum. Þar voru á ferðinni tvær orrustuþotur frá Portúgal. Innlent 9.3.2022 22:37
Segir Ísland hvorki varið fyrir innrás né hryðjuverkum Prófessor í stjórnmálafræði segir að Íslendingar verði nú að taka umræðuna um hvort sérstakar varnarsveitir hafi viðveru á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, í ljósi stríðs í Evrópu. Ísland sé hvorki varið fyrir allsherjarinnrás né sértækum hryðjuverkaárásum. Innlent 7.3.2022 21:35
Íslensk öryggismál ekki á neinum tímamótum vegna Úkraínustríðsins Vegna Úkraínustríðsins hafa dúkkað upp skoðanir um að þess vegna þurfi að hyggja að nýju að hernaðarlegu öryggi Íslands. Umræða um öryggismál er af hinu góða en þarf að byggja á réttum forsendum. Þá kann hún að valda fólki óþörfu áhyggjum með tali um ógn við Ísland í tengslum við innrásina í Úkraínu og harmleikinn þar. Umræðan 7.3.2022 09:57
Segir mikilvægt að ræða varnarstefnu Íslands „Líklega þarf ekki nema áhöfn eins kafbáts eða einnar lúxussnekkju rússnesks auðjöfurs, sem lóna fyrir utan hafnir landsins öll sumur, til að taka yfir helstu stofnanir landsins,“ segir Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur í færslu á Facebook. Innlent 6.3.2022 12:17
Segir Pútín hafa ætlað að bíða þar til Trump losaði sig við NATO Fyrrum öryggisráðgjafi Donald Trump sagði í viðtali í dag að hann telji að Vladimir Pútín hafi ætlað sér að bíða með innrás í Úkraínu þar til Trump yrði endurkjörinn og myndi draga Bandaríkin úr NATO. Erlent 5.3.2022 23:01
Rússar herða árásir sínar og refsingar á eigin þegnum Rússar hafa haldið árásum sínum á borgir í Úkraínu áfram síðasta sólarhringinn og náðu stærsta kjarnorkuveri Evrópu á sitt vald í morgun. Hægt verður að dæma fólk í allt að fimmtán ára fangelsi fyrir að deila upplýsingum um stríðið sem ekki eru rússneskum stjórnvöldum þóknanlegar samkvæmt nýjum lögum. Erlent 4.3.2022 22:21
Flugbann ekki í kortunum hjá NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagins ætla ekki að setja á flugbann yfir Úkraínu. Þetta tilkynnti Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, nú fyrir skömmu en málið var til umræðu eftir ítrekuð áköll ráðamanna í Úkraínu. Erlent 4.3.2022 13:31
Nóg að gera hjá forsætisráðherra í Brussel Forsætisráðherra varði síðastliðnum sólarhring í Brussel þar sem hún fundaði meðal annars með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins um stríðið í Úkraínu og flutti ávarp í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Innlent 3.3.2022 22:16
Jón Gnarr segist hafa verið innblástur fyrir feril Selenskí Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri segist hafa verið innblástur fyrir pólitískan feril Vólódímir Selenskí Úkraínuforseta. Jón heimsótti Kænugarð í Úkraínu árið 2019 og er enn í einhverju sambandi við forsetann. Innlent 1.3.2022 22:30
Tárvot þrumuræða úkraínskrar blaðakonu vekur heimsathygli Daria Kaleniuk, úkraínskur blaðamaður, grátbað Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um aukna aðstoð til að berjast gegn innrás Rússa í Úkraínu á blaðamannafundi í dag. Myndband af þrumuræðu hennar hefur vakið heimsathygli. Erlent 1.3.2022 21:37
Sendiherrann segir að barist verði til síðasta blóðdropa um Kænugarð Olga Dibrova hefur verið sendiherra Úkraínu á Íslandi með aðsetur í Helsinki í tvö ár en vegna Covid faraldursins gat hún fyrst í dag afhent forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Hún segir Rússa aldrei ná höfuðborginni Kænugarði á sitt vald vegna þess að þeir berjist ekki einungis við úkraínska herinn heldur alla úkraínsku þjóðina Innlent 1.3.2022 18:33
Katrín fundar með Stoltenberg í Brussel Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundar með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NATO. Innlent 1.3.2022 16:19
Tölvuárás á NATO-ríki gæti virkjað fimmtu greinina Verði gerð tölvuárás á eitthvert af ríkjum Atlantshafsbandalagsins gæti slík árás gert það að verkum að fimmta grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð. Erlent 28.2.2022 21:01
Búast við rússneskum netárásum á Ísland Aðstoðarforstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að viðbúnaður hér á landi vegna yfirvofandi netárása Rússa hafi aukist, sem og í öðrum ríkjum Atlantshafsbandalagsins. Alþjóðlegur hópur hakkara hefur ráðist á Rússa með góðum árangri, en búast má við því að Rússar ráðist á netinnviði NATO-ríkja. Innlent 26.2.2022 14:18
Nato sendir hermenn til nágrannaríkja Úkraínu Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Nato, sagði í yfirlýsingu seint í gærkvöldi að bandalagið sé að senda viðbragðsveitir, reiðubúnar til bardaga, til nágrannalanda Úkraínu og muni þar að auki halda áfram að senda Úkraínumönnum vopn, þar á meðal loftvarnir. Erlent 26.2.2022 08:39
NATO eykur viðbúnað sinni í aðildarríkjunum í austri Allar helstu þjóðir Vesturlanda hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og ákveðið að herða á refsiaðgerðir sínar gagnvart þeim. Nato ætlar að styrkja herafla sinn í aðildarríkjum sínum í austur Evrópu. Erlent 24.2.2022 21:14
Mótmæli við sendiráðið: „Erfitt að lýsa þessu með orðum“ Rússneskur blaðamaður búsettur á Íslandi kveðst skammast sín fyrir hönd þjóðar sinnar í dag, nú þegar rússneski herinn hefur ráðist af fullum mætti inn í Úkraínu. Boðað er til mótmæla við rússneska sendiráð við Túngötu klukkan 17.30. Innlent 24.2.2022 15:35
Heimurinn bíður næstu skrefa Pútíns Ráðamenn víða um heim bíða eftir næstu skrefum Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Stærsta spurningin er hvort hann muni hefja stríð við Úkraínu eða kalla her sinn heim frá landamærunum. Erlent 23.2.2022 17:01
Frekari innrás og auknar refsiaðgerðir í kortunum Yfirvöld í Úkraínu byrjuðu í morgun að kveðja 18 ára til sextuga menn í varaliði hersins til starfa eftir að Vólódómír Selenskí, forseti, fyrirskipaði slíkt í gær. Rússar hafa flutt herlið inn í austurhluta Úkraínu, á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna en Vladimír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi á mánudaginn sjálfstæði þessara svæða og rúmlega það. Erlent 23.2.2022 10:46
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent