
Ringo tróð upp á tónleikum Paul McCartney
Trommarinn Ringo Starr birtist óvænt á sviði á tónleikum Paul McCartney í O2 Arena í Lundúnum í gærkvöldi.
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.
Trommarinn Ringo Starr birtist óvænt á sviði á tónleikum Paul McCartney í O2 Arena í Lundúnum í gærkvöldi.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur í samvinnu við Listasafn Íslands endurnýjað úrval íslenskrar myndlistar sem prýðir Bessastaði. Við valið á nýjum listaverkum fyrir Bessastaði var, samkvæmt tilkynningu, haft í huga að færa aukna breidd í þá list sem þar er til sýnis. Þannig spanna verkin nú lengra tímabil í íslenskri listasögu en áður auk þess sem verkum eftir myndlistarkonur hefur verið fjölgað til jafns við karla.
Tónlistarmenn eru nú hver um annan þveran að senda frá sér textaverk. Hendingar úr söngtextum eru teknar, settar á pappír, rammað inn og selt. Þetta hefur á fáeinum árum orðið að stórútgerð.
Tíunda árið í röð slá Sigurður Guðmundsson og & Sigríður Thorlacius upp hátíðarveislu í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir eru fyrir löngu orðnir að ómissandi þætti margra í aðdraganda jólanna en þeir verða haldnir daginn fyrir Þorláksmessu.
Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum vegna atviks sem átti sér stað í bíósal í júlí á þessu ári, nánar tiltekið í Sambíóunum í Kringlunni.
Sérlegir stórvinir X-ins 977, rokkararnir í Brain Police mæta og rífa þakið af húsinu í nýjasta og síðasta þættinum af Live in a fishbowl. Sveitin er nú á fullu við að vinna í nýrri plötu, sinni fyrstu frá því að hún gaf út Beyond The Wasteland árið 2006.
Fjöldi Eyjamanna hefur skrifað undir undirskriftarlista þar sem áformum um gerð listaverks á Eldfelli er mótmælt.
Eitt ástsælasta tvíeyki landsins Jói Pé og Króli munu skrifa nýjan söngleik fyrir Leikfélag Akureyrar sem verður frumsýndur 2027. Drengirnir skutust upp á stjörnuhimininn árið 2017 þegar þeir sendu frá sér smellinn BOBA og komið víða að í tónlistar- og leikhúslífi landsins.
Rebekka Sif Stefánsdóttir fjallar hér um nýja bók Emblu Bachmann en Rebekka skrifar bókadóma á menningarvefinn Lestrarklefinn. Hún hefur þetta að segja um bókina.
Slík ferð hefur verið á hinum 27 ára gamla Snorra Mássyni að ýmsum þykir nóg um. Hann hafði ungur (yngri) vakið nokkra athygli sem hlaðvarpsstjóri ásamt bróður sínum Bergþóri en þeir voru með hlaðvarpið Skoðanabræður.
„Ég verð að segja að mamma og pabbi höfðu rétt fyrir sér, ég fíla mig feitt í myndlist og sé ekkert eftir því vali,“ segir myndlistarmaðurinn Bergur Nordal sem var að opna sína fyrstu einkasýningu hérlendis síðastliðna helgi á Kontórnum, Hverfisgötu. Bergur hefur verið búsettur í Vínarborg undanfarin ár þar sem hann stundar nám við Listaakademíuna og hefur meðal annars sýnt í frægu listgalleríi í Berlín.
Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili fluttu jólalög í Langholtskirkju sunnudaginn 15. desember. Einsöngvari var Oddur Arnþór Jónsson.
Kvikmyndin Snerting eftir Baltasar Kormák hefur verið valin á stuttlista Óskarsverðlaunanna í flokknum besta erlenda kvikmyndin.
Ábreiðuband fimm stráka sem elska Iceguys, fengu að hitta átrúnaðargoðin sín í dag. Rúrik segist ekki miður sín þó hann vanti í ábreiðubandið, það sé alltaf tækifæri til bætinga.
Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson bauð vinum og vandamönnum til fagnaðar í verslun herrafataverslunar Kölska á dögunum. Tilefnið var útgáfa textaverka sem voru framleidd í tengslum við fjörutíu ára útgáfuafmælis Helga.
Vinkonurnar og listakonurnar Hulda Katarína og Helena Reynis ákváðu fyrr í vetur að sameina krafta sína og setja upp sýninguna Tabi-Sabi þar sem þær sækja innblástur í japanska hugmyndafræði. Þær opnuðu með pomp og prakt í Klei Atelier, Baldursgötu 36.
Það er tíðindalítið á toppnum, Arnaldur og Yrsa í fyrsta og öðru sæti líkt og í síðustu viku og Bjarni Fritzsson læðir Orra óstöðvandi upp um eitt sæti og er nú kominn upp í þriðja sæti listans.
Eftir að hafa gefið út fjölda vinsælla matreiðslubóka undanfarin ár hefur Nanna Rögnvaldardóttir vent sínu kvæði í kross og snúið sér að skáldsögum. Nýlega kom út önnur skáldsaga hennar, Þar sem sannleikurinn sefur, og eins og sú fyrri, sem ber heitir Valskan, gerist hún á átjándu öld.
Það var líf og fjör í versluninni Húrra í gærkvöldi þegar hönnuðurinn og tónlistarmaðurinn Logi Pedro frumsýndi nýja vörumerkið sitt Lopedro.
„Neistinn var hugmyndin um einmanaleika í kringum jólahátíðina. Fyrstu skrifin voru mjög melankólísk en þá fékk ég þá hugmynd að snúa þessu alveg á hvolf og skrifa rómantíska gamansögu,“ segir Ása Marin rithöfundur.
Það voru miklar tilfinningar í gær í Smárabíó þegar fyrstu tveir þættirnir af heimildaþáttaröðinni Grindavík voru forsýndir. Fyrsti þáttur verður sýndur á Stöð 2 Sport sunnudaginn 29. desember en þættirnir eru eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson, þeim sömu og gerðu Edduverðlaunaþáttaraðirnar Víkingur: Fullkominn endir og Jón Arnór.
Sögusvið flestra skáldsagna Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur er sjávarþorp úti á landi einhvern tímann á síðustu öld þar sem höfundur fjallar haganlega um sorgir og sigra sögupersónanna og lesandinn getur vart annað en hrifist með.
Það hefur vart farið fram hjá neinum hérlendis að strákasveitin IceGuys tryllti lýðinn með fimm stórtónleikum í Laugardalshöllinni. Danshöfundurinn, leikstjórinn og listræni stjórnandinn Stella Rósenkranz spilar veigamikið hlutverk í þessu stóra verkefni en blaðamaður náði tali af henni eftir heldur betur viðburðaríka síðustu mánuði.
Menningarlífið iðaði í miðborg Reykjavíkur síðastliðið fimmtudagskvöld þegar splunkunýja hönnunargalleríið Hakk opnaði dyrnar að Óðinsgötu 1. Opnunin var að sögn forsprakka dúnmjúk og nýjasta hönnunartríó landsins Erindrekar frumsýndi þeirra fyrstu línu.
„Það þarf ekki svo mikið til að tvístra fjölskyldu. Ef búið er að spenna upp bogann í nokkur ár er eitt lítið augnaráð eða ein lítil athugasemd nóg,“ segir Jónas Reynir Gunnarsson, rithöfundur. Nýjasta skáldsaga hans, Múffa, er áleitin saga um fjölskyldubönd, vináttu, rými og mörk, frelsi og hyldýpi – og það hvernig fólk kýs að lifa lífi sínu.
Fyrsta stiklan úr íslensku hryllingsmyndinni The Damned er mætt á Vísi. Um er að ræða fyrstu kvikmynd Þórðar Pálssonar sem skartar Odessa Young og Joe Cole í aðalhlutverkum. Myndin er frumsýnd hér á landi 23. janúar en hún hefur þegar vakið athygli erlendis.
Stjörnur landsins nutu lífsins í vikunni sem er að líða. Jólin nálgast og hitastigið er á leiðinni niður sem ýtti undir hátíðarstemninguna.Það var líka nóg um að vera. Aðventan í algleymingi og einir stærstu tónleikar landsins með strákunum í Iceguys. Þá naut fólk lífsins á ýmsa vegu í faðmi fjölskyldunnar og sumir klæddu sig í rautt.
Óprúttinn aðili henti glasi í munn leikarans Jamie Foxx á 57 ára afmæli hans á föstudag. Sauma þurfti spor í andlit leikarans eftir atvikið en Foxx sjálfur segist þó of lánsamur til að stressa sig á málinu.
Guðný Gígja Skjaldardóttir, tónlistarkona og fjögurra barna móðir búsett í Vesturbænum, er mikið jólabarn og segir aðdraganda jóla ekki síðri en jólin sjálf. Hún segir samveran með fjölskyldunni á náttfötunum það besta við hátíðina. Guðný Gígja er viðmælandi í Jólamola dagsins.
„Það er ekki gaman að bera sorgir sínar á torg en það kemur að þeim tímapunkti að ekki er annað hægt,“ segir Valur Gunnarsson rithöfundur.