James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. júní 2026 10:03 James Handy lék í 150 sjónvarpsþáttaseríum og kvikmyndum á hálfrar aldar ferli. Hér er hann í hlutverki meindýraeyðis í Jumanji. Leikarinn James Handy var stunginn til bana á heimili sínu Los Angeles á miðvikudag. Sonur kærustu Handy gaf sig fram á vettvangi glæpsins og var handtekinn vegna gruns um að hafa myrt leikarann. Leiklistarferill Handy spannaði hálfa öld og er hann þekktastur fyrir leik sinn í Jumanji, Arachnophobia og Top Gun: Maverick.
Samkvæmt lögreglunni í Los Angeles barst ógreinileg tilkynning frá Tarzana í San Fernando-dalnum um 9:30 á miðvikudagsmorgun. Sá sem hringdi inn hafði sagt í símann: „Ég er mannssonur, ég drap mann syndarinnar.“ Þegar lögregluþjónar komu á vettvang fundu þeir Handy meðvitundarlausan á lóðinni með stungusár á bringunni. Hann var fluttur á sjúkrahús og lést þar af sárum sínum, 81 árs að aldri. Michael Gledhill, 44 ára gamall sonur kærustu Handy sem bjó á landareigninni, kom upp að lögreglumönnunum og sagðist vera „sá sem þeir leituðu að“. Hann var handtekinn og vistaður í gæsluvarðhald í Van Nuys-fangelsi vegna gruns um morð. Ekki liggur fyrir hvers vegna var ráðist á Hardy en rannsakendur telja stunguárásina „einangrað tilvik“. Handy lék reglulega gestahlutverk í sjónvarpsþáttum. „Með mikilli sorg í hjarta get ég staðfest að maðurinn sem ráðist var á og drepinn á miðvikudag í Tarzana var leikarinn James Handy. Ég gæti ekki hafa beðið um hæfileikaríkari, auðmjúkari og elskulegri kúnna og vin en James Handy,“ sagði Pam Ellis-Evenas, umboðsmaður Handy. Handy fæddist 19. mars 1945 í New York og hóf leiklistarferil sinn í sjónvarpi í ABC-dramanu Ryan's Hope (1977) þar sem hann kom fyrir í tveimur þáttum. Á hálfrar aldar ferli lék hann í meira en 150 sjónvarpsþáttaseríum og kvikmyndum og festi sig í sessi sem áreiðanlegur gestaleikari sem tók að sér smáhlutverk. Handy lék í sjónvarpsþáttum á borð við NYPD Blue (1993-95), The X-Files (1995), Beverly Hills, 90210 (1995), Law & Order (1997), ER (1999), Alias (2002-06) og 9-1-1 (2021). Sömuleiðis lék hann í ýmsum þekktum kvikmyndum á borð við Arachnophobia (1990), Jumanji (1995), Unbreakable (2000), Logan (2017) og Top Gun: Maverick (2022).
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Erlend sakamál Andlát Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira