John Frieda er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. nóvember 2026 11:16 John Frieda var áhrifamikill innan hárgreiðslubransans. Getty Breski hárstílistinn og hárvörumógúllinn John Frieda er látinn, 75 ára að aldri. Frieda varð eftirsóttur hárstílisti meðal stjarnanna á sjöunda og áttunda áratugnum og vann meðal annars fyrir Twiggy, Jackie Kennedy og Mick Jagger. Hann er maðurinn á bak við Purdey-skálarklippinguna frægu og varð síðar þekktur fyrir vinsælar hárvörur sem báru nafn hans.
Hárgreiðslustofa hans, John Frieda Salon, greindi frá andlátinu á samfélagsmiðlum í nótt. „Það er með sorg í hjarta sem við greinum frá þeim fréttum að elskulegur John okkar féll frá friðsamlega umvafinn fjölskyldu sinni,“ sagði í tilkynningunni. „John var meira en bara lærimeistari fyrir okkur, hann var sannkölluð goðsögn í hárbransanum. Hann var manneskja sem kenndi okkur allt saman, trúði á okkur og gerði okkur betri. Hvíl í friði, John. Þú verður í hjörtum okkar að eilífu.“ Þrír ættliðir hárgreiðslumanna John Frieda fæddist í Lundúnum árið 1951, skírður Alan Howard Frieda. Faðir hans var hárgreiðslumaður sem átti rakarastofu í Ealing í vesturhluta Lundúna og afi hans hafði jafnframt verið rakarari á hinu sögulega Fleet-stræti. John byrjaði ungur að vinna hjá föður sínum og gekk síðar til liðs við stjörnuhárgreiðslustofuna House of Leonard þar sem hann vann sem aðstoðarmaður Leonard Lewis. Frieda vann síðar fyrir tískutímaritin British Vogue og Harper's Bazaar. Árið 1976 opnaði Frieda í miðborg Lundúna sína eigin hárgreiðslustofu sem varð gríðarvinsæl og uppbókuð marga mánuði fram í tímann. Samhliða því óx orðspor Frieda sem hárgreiðslumanns og stílista. Hann opnaði í kjölfarið fleiri hárgreiðslustofur víða um heim, meðal annars á Barbados, Ibiza og í Los Angeles. John Frieda klippti Purdey-skálarklippinguna á leikkonuna Joönnu Lumley.Getty Á níunda og tíunda áratugnum dró Frieda úr hárgreiðslustörfum sínum og einblíndi á að þróa sínar eigin hárvörur, þar á meðal Frizz-Eare-hárserum sem hann bjó til 1988. Fyrirtæki hans varð hratt umfangsmikið og árið 2002 seldu hann og viðskiptafélagi hans, Gail Federici, fyrirtækið til japanska efnarisans Kao fyrir 334 milljónir punda (um 55 milljarða króna). Frieda var giftur söngkonunni Lulu frá 1977 til 1990 og eignuðust þau einn son saman, leikarann og athafnamanninn Jordan Frieda. Hann giftist Frances Avery Agnelli, ekkju Fiat-erfingjans Giovanni Agnelli, og átti með henni tvö börn og eina stjúpdóttur.
Hár og förðun Andlát Bretland Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir John Frieda er látinn Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Stundum gott að fara öruggu leiðina Sturluð skvísulæti í stórafmæli Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Sjá meira