„Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Allir með 4. nóvember 2026 08:42 „Þó það komi bara fjórir á fyrstu æfingu þýðir það ekkert að þeir verði bara fjórir áfram. Það þarf að halda þessu áfram og leyfa því að byggjast upp.“ Hörður Reynir Þórðarson hvetur íþróttafélög til að bjóða upp á íþróttaæfingar fyrir krakka með sérþarfir. Hörður Reynir Þórðarson þjálfar knattspyrnu hjá Stjörnunni Ösp, hvetur íþróttafélög til að bjóða upp á íþróttaæfingar fyrir krakka með sérþarfir og gefa starfinu tíma til að vaxa. Það þurfi ekki að byrja með stóran hóp til að byggja upp öflugt íþróttastarf fyrir börn með fötlun.
Fyrir börn með fötlun eru tækifærin til íþróttaiðkunar ekki alltaf þau sömu og annarra. Samstarfsverkefnið Allir með, á vegum ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasambands fatlaðra, miðar að því að fjölga þeim tækifærum og gera börnum og ungmennum kleift að stunda íþróttir í sínu nærumhverfi með viðeigandi aðlögun. Hjá Stjörnunni hefur Hörður Reynir þjálfað knattspyrnu fyrir fatlaða undanfarin ár. Hann kom þó upphaflega að starfinu sem foreldri. „Ég mætti bara á æfingu sem pabbi þegar dóttir mín byrjaði að æfa og mætti síðan á allar æfingar. Planið var ekkert að fara að þjálfa, ég er múrarameistari þannig að það lá kannski ekki beint við en ég kem úr íþróttum og hef núna þjálfað í hátt í fjögur ár,“ segir hann. Gleðin og fótboltinn í aðalhlutverki Hann segir verkefnið ekki eins flókið og fólk kunni að ímynda sér. Reynslan hafi kennt honum að iðkendurnir eigi það sameiginlegt að langa til að mæta á æfingar og gera það sem þeim finnst skemmtilegt. Hér fyrir neðan má sjá þjálfara segja frá reynslu sinni af íþróttastarfi með fötluðum: Klippa: Allir með hvetja íþróttafélög til að bjóða upp á íþróttastarf fyrir börn með fötlun „Fyrir mitt leyti er þetta bara eins og að þjálfa ófatlaða einstaklinga. Hvort sem viðkomandi er í hjólastól eða með einhverfu, þetta eru allt bara krakkar í íþróttum. Maður þarf kannski að útskýra tvisvar eða þrisvar, en það þarf líka með ófatlaða. Gleðin er sú sama.“ „Þetta eru krakkar sem eru að gera það sama og ófatlaðir, mæta á sínar æfingar og gera það sem þau elska, að spila fótbolta og þarna eru bara þakklátir foreldrar. Það var eitt sem kom mér afar skemmtilega á óvart.“ Aldursbilið í starfinu hjá Stjörnunni er breitt, frá sjö ára aldri upp í 53 ára. Hörður tekur fram að þau séu ekki öll að spila hvert á móti öðru, en fjölbreytnin sé mikil. Æfingatíminn getur ráðið úrslitum Að mati Harðar þurfa íþróttafélög bæði að hvetja þjálfara til að taka verkefnið að sér og styðja við þá þegar starfið er komið af stað. Þar skipti þolinmæði máli. Fámenn fyrsta æfing segi lítið um það hvernig hópurinn geti þróast. „Þó það komi bara fjórir á fyrstu æfingu þýðir það ekkert að þeir verði bara fjórir áfram. Það þarf að halda þessu áfram og leyfa því að byggjast upp.“ Praktísk atriði geta líka haft mikið að segja um hvort börnin komast á æfingar. Ekki sé nóg að finna lausan tíma í æfingatöflunni; tímasetningin þurfi að ganga upp fyrir fjölskyldurnar. „Það þarf að bjóða upp á þetta á hentugum tímum fyrir fullorðna. Þó krakkarnir séu kannski orðnir fimmtán ára eru þeir ekki endilega að taka strætó til að komast ferða sinna. Æfingarnar þurfa að vera á þeim tímum sem fullorðnir geta skutlað þeim.“ Vilja geta mætt öðrum liðum Hörður telur ótta við að þjálfunin sé erfið það helsta sem standi í vegi fyrir því að fleiri taki hana að sér. Skilaboðin hans til hverfisfélaga landsins eru því einföld: „Endilega farið af stað og byrjið. Það eru alltaf einhverjir sem vilja koma. Ekki gefast upp þó það komi fáir á fyrstu æfinguna. Það tekur tíma að koma þessu af stað.“ Fleiri lið myndu jafnframt skapa fleiri möguleika á leikjum og keppni hér heima. „Það er mikilvægt að þetta sé í boði hjá fleiri félögum svo krakkarnir geti spilað leiki og keppt við önnur lið. Við í Stjörnunni viljum geta farið og spilað leiki við önnur félög. Við höfum þurft að fara til útlanda til þess og höfum farið bæði til Danmerkur og Texas,“ segir Hörður. Allir með vinnur að því að fjölga tækifærum barna með fötlun til að stunda íþróttir í sínu nærumhverfi. Starfsfólk Allir með veitir íþróttafélögum og þjálfurum fræðslu og fjárstuðning til að stíga skrefið og bjóða upp á starf fyrir börn með fötlun. Meira um verkefnið á allirmed.is
Íþróttir barna Málefni fatlaðs fólks Krakkar Heilsa Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Gjafir sem gleðja og endast frá Lín Design „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Sjá meira