Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. júní 2026 13:55 Nótnaveita Tónlistamiðstöðvar er loksins aðgengileg á íslensku. Nótnaveita Tónlistarmiðstöðvar, stærsta nótnasafn landsins, er nú í fyrsta sinn aðgengileg á íslensku á síðunni notnaveita.is. Síðan sem var áður í umsjón Íslenskrar tónverkamiðstöðvar opnaði í fyrra undir stjórn Tónlistarmiðstöðvar á ensku og er nú loksins opin almenningi á íslensku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónlistarmiðstöð um vefinn. Nótnaveitan er í senn menningararfur og lifandi heimild sem fer sífellt vaxandi. Veitan teygir sig frá elstu varðveittu tónsmíðum þjóðarinnar til nýjustu verka samtímatónskálda og geymir rúmlega tólf þúsund verk eftir um 400 íslensk tónskáld. „Auk þess að skoða, kaupa eða leigja verkin býður vefsíðan upp á æviágrip fyrir flest tónskáld, sem gerir hana að einni yfirgripsmestu heimild um íslensk tónskáld á netinu,“ segir í tilkynningunni. Finnur Vefurinn þjónar jafnt fagfólki sem áhugafólki um tónlist og er tilgangur hans að auðvelda leit, rannsóknir og flutning á íslenskri tónlist, hvort sem er innanlands eða á alþjóðavettvangi. „Það er okkur mikið stolt að kynna þessa nýju Nótnaveitu. Með yfir 12.000 verk í safninu, bæði eftir tónskáld samtímans og eldri kynslóðir íslenskra höfunda, er þetta frábært verkfæri til þess að nálgast og afla sér upplýsinga um íslenska tónlist á prenti,“ segir Finnur Karlsson, verkefnastjóri tónverkasafns miðstöðvarinnar. Tónskáld mánaðarins ný viðbót „Þetta er ekki aðeins verkfæri til þess að gera tónlistina okkar sýnilegri hér heima og erlendis, heldur einnig liður í skuldbindingu Tónlistarmiðstöðvar til þess að varðveita þennan menningararf og miðla honum á eins skilvirkan hátt og við getum,“ segir Finnur. Nótnaveita Tónlistarmiðstöðvar býður einnig upp á ritstýrð söfn af verkum, bæði eftir einstök tónskáld sem og eftir ákveðnum þemum. Meðal ritstýrðra safna er serían Tónskáld mánaðarins en þar er sjónum beint að einu tónskáldi á mánuði og boðið upp á tuttugu prósent afslátt af öllum nótum viðkomandi höfundar þann mánuðinn. Fyrsta tónskáld mánaðarins er Sigurður Sævarsson, en Nótnaveitan geymir nú 29 verk eftir hann. Sigurður er eitt ástsælasta tónskáld landsins, hefur vakið sérstaka athygli fyrir kórtónlist sína og starfar sem skólastjóri Nýja Tónlistarskólans. Sigurður Sævarsson er fyrsta tónskáld mánaðarins.
Tónlist Menning Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira