„Aldrei of seint að gera hlutina“ Freyja Þórisdóttir skrifar 5. júní 2026 13:24 Tónlistarhjónin og skemmtikraftarnir Regína Ósk og Svenni Þór hafa í mörgu að snúast þessa dagana. Ísland í dag Tónlistarhjónin Regína Ósk og Svenni Þór eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í dansi en undanfarin misseri hafa þau einnig tekið til hendinni heima fyrir. Þar á meðal settu þau upp lítinn kaldan pott á pallinn og smíðuðu sér útisánu úr bjálkakofa. Vala Matt kíkti í heimsókn til þeirra hjóna í Kópavoginn í nýjasta þætti af Ísland í dag. „
Ég gat gert þetta algjörlega eftir mínu höfði,“ segir Svenni og Regína bætir við kímin að það hafi ekki verið nein tímapressa á verkefninu. „Þetta tók samt bara tvo daga,“ segir Svenni þá en Regína segir svo alls ekki hafa verið og uppsker hlátur. Svenni nýtti dauðar stundir sem urðu til í kórónuveirufaraldrinum til þess að fara í smíðanám. Hann útskrifaðist sem sveinn fjörutíu ára gamall og segjast þau hjónin sammála um að það sé aldrei of seint að gera hlutina. Erfitt fyrst en gott eftir á Sánan hafi verið byggð að stíl Norðmanna og annarra skandinavískra þjóða og sé í raun uppgerður bjálkakofi sem hafi ekki einu sinni þurft að einangra. „Það var einhver búinn að hræða mig og segja að ég yrði að einangra hann,“ segir Svenni en ítrekar að þau hafi ekki enn fundið fyrir því að það þurfi. „Ég sá líka úti að þeir búa til sánu sem er bara lengst úti í fjöllum eða eitthvað. Það er enginn að einangra þar.“ Þau segja það vera „eins og með annað í lífinu“ að maður taki eins konar tarnir. Stundum komi vikur þar sem þau fari mjög reglulega í sánuna. Svo hafi þau nýlega keypt sér uppblásinn kaldan pott sem hafi verið frábær viðbót á pallinn. „Það tekur á að fara í svona kalt, sko, en ógeðslega gott á eftir,“ segir Regína eftir að Vala minnist á myndband sem Svenni tók af Regínu þar sem hún kom sér hægt og varlega fyrir í kalda pottinum. Myndbandið má sjá í nýjasta þætti af Ísland í dag sem er hér í spilaranum hér fyrir neðan. Þau hjónin hafa nýlega verið dugleg í golfi og æft og keppt í dansi. Samhliða báðu hafa þau staðið í endurbótum á húsinu að innanverðu. Þau tóku baðherbergið í gegn og segja að það hafi verið kominn tími á ýmislegt, svo sem glugga og annað, en húsið er tuttugu ára. „Fólk veit sem á hús og einbýli að það þarf að halda þessu við, alveg bara stöðugt,“ segir Regína og ítrekar að það þurfi eitthvað að gera á hverju einasta ári svo að húsið haldist fínt og í lagi.
Ísland í dag Hús og heimili Tíska og hönnun Tónlist Dans Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira