
Leggja niður starfsemi bókabílsins
Borgarbókasafnið leggur til að starfsemi bókabílsins verði lögð niður. Bíllinn er orðin 22 ára gamall og myndi það kosta um hundrað milljónir króna að endurnýja hann.
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.
Borgarbókasafnið leggur til að starfsemi bókabílsins verði lögð niður. Bíllinn er orðin 22 ára gamall og myndi það kosta um hundrað milljónir króna að endurnýja hann.
Verkahringur Vladislav Vashketov og Nikita Vashketov er ekki ýkja flókinn. Opna umbúðir að leikföngum og leika sér svo með þau á heimili sínu. Þetta gera þeir fyrir framan myndavélina og afurðin eru myndbönd á tíundu vinsælustu YouTube-rás heims, Vlad and Niki.
Ástsælu tónlistarmennirnir JóiPé og Valdimar sameinuðu krafta sína við gerð á nýju lagi sem ber nafnið Herbergi. Tónlistarmyndband við lagið var frumsýnt í dag og er í leikstjórn Tómasar Sturlusonar sem segir það meira en bara hefðbundið tónlistarmyndband: „Fyrir mér er þetta miklu frekar heildstætt listaverk.“
Hljómsveitin frumlega Ólafur Kram gefur út breiðskífan Ekki treysta fiskunum á föstudaginn. Hljómsveitin kom sá og sigraði Músíktilraunir á síðasta ári.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin voru rétt í þessu að tilkynna um tilnefningar í flokki gamanmynda og er íslenska kvikmyndin Leynilögga þar tilnefnd. Áður hafði komið fram að Berdreymi og Volaða land eru í forvali í kvikmyndaflokki.
Ljósmyndarinn Viðar Logi hefur verið að gera öfluga hluti í hinum skapandi heimi síðastliðin ár en að undanförnu hefur samstarfsverkefni hans og Bjarkar Guðmundsdóttir sérstaklega vakið athygli. Blaðamaður náði tali af Viðari Loga og fékk smá innsýn í hans skapandi og listræna hugarheim.
„Ég fór í fyrsta skipti í drag fyrir kannski þremur árum síðan. Þá var ég veislustjóri hjá systur minni sem var að gifta sig og þá kom ég fram sem þetta „alter ego“ sem heitir Hafdís Alda,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni síðastliðinn laugardag.
Fjölmiðla- og tónlistarkonan Vala Eiríksdóttir var að senda frá sér plötuna Værð ásamt Stefáni Erni Gunnlaugssyni. Platan sækir í gömul íslensk dægurlög sem fullorðið fólk getur tengt við æsku sína. Blaðamaður tók púlsinn á Völu.
Leikarinn Pierce Brosnan hristi aðeins upp í fatavalinu sínu og mætti í bleikum jakkafötum á frumsýningu myndarinnar Black Adam. Brosnan verður sjötugur á næsta ári og er greinilega með puttann á púlsinum þegar kemur að tískunni en bleikur hefur verið áberandi í tískuheiminum.
Á degi hvíta stafsins síðastliðinn laugardag opnaði myndlistarsýningin Skynleikar á Hafnartorgi. Sýningin er unnin í samstarfi við Blindrafélagið með það að markmiði að virkja öll skynfæri líkamans og að leyfa blindum, full sjáandi og öllum þar á milli að upplifa myndlist á jöfnum grundvelli.
„Hugmyndin kviknaði út frá sögustund með dóttur minni,“ segir Kristján Hafþórsson um nýja barnaefnið Hvítatá. Hann átti sjálfur hugmyndina að sögunni og skrifaði handritið.
„Sextán manneskjur hafa náttúrulega sextán skoðanir, ekki alltaf þær sömu,“ segir Berglind Erna Tryggvadóttir í samtali við Vísi. Berglind er ein þeirra sextán kvenna sem gáfu saman út bókina Takk fyrir komuna.
Athafnamaðurinn Bergsveinn Ólafsson er að gefa út nýja bók sem ber heitið Tíu skilaboð. „Ég leyfi mér að segja þann sannleika sem ég trúi að sé réttur í staðinn fyrir að reyna gera öllum til geðs,“ segir hann um bókina.
Fjölskylda George Floyd sem myrtur var af lögreglumönnum í Minneapolis í maí árið 2020 íhugar nú að fara í mál við rapparann Kanye West. Kanye sagðist efast um orsök dauða Floyd í hlaðvarpsþætti í vikunni.
Þrándur Þórarinsson skapar gjarnan ævintýralega heima með myndlist sinni og sækir meðal annars innblástur í bókmenntir, tónlist og gömlu klassísku meistarana. Hann segir listina hafa kallað á sig á barnsaldri, þá byrjaði hann að teikna og hefur ekki hætt síðan. Þrándur er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.
Leikkonan Aníta Briem hefur nú nýlokið við tökur á þáttaseríunni Svo lengi sem við lifum en þættirnir verða sýndir á Stöð 2 næsta vor. Handritið, sem er að mörgu leyti innblásið af persónulegri reynslu Anítu, er hennar fyrsta verk sem handritshöfundur.
Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið en þá mættust Stjarnan og Selfoss í hörkuviðureign.
Rithöfundurinn Natasha S. hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Máltaka á stríðstímum sem kemur í verslanir í dag.
Sykurmolinn, lagakeppni X977 þar sem óþekktir tónlistarmenn fá tækifæri til þess að koma sér á framfæri, snýr nú aftur. Nafnið Sykurmolinn er eins og nafnið gefur til kynna skírskotun í íslenska tónlistarsögu.
Guðbergur Bergsson rithöfundur var níræður um helgina. Svo umdeildur er Guðbergur að ekki einu sinni getur ríkt sæmilegur friður um þau tímamót hans. Á Facebook fór allt í hnút í gær þar sem brigslyrðin gengu á víxl.
Poppstjörnurnar í suður-kóresku hljómsveitinni BTS hafa verið kvaddar í herinn munu á næstunni sinna herskyldu í suður-kóreska hernum.
Leikarinn Robbie Coltrane lést á föstudag, 72 ára að aldri. Hann var einna þekktastur fyrir leik sinn sem Hagrid í Harry Potter kvikmyndunum. Viðbrögðin við andláti Coltrane hafa ekki látið á sér standa og hafa aðdáendur sem og leikarar Harry Potter kvikmyndanna minnst hans á samfélagsmiðlum.
Öllum hljóðfærum tónlistarkonunnar Steinunnar Eldflaugar Harðardóttur var stolið úr hljóðveri sem hún leigir með nokkrum vinum sínum í dag. Hún segir tjónið aðallega vera tilfinningalegt og lofar ríkulegum fundarlaunum verði hljóðfærunum skilað.
Stórborgin London er þekkt fyrir mikinn fjölbreytileika þar sem ólíkir menningarheimar mætast í hringiðu af list, tísku, tónlist, góðum mat og áhugaverðu fólki. Blaðamaður kíkti í helgarferð til þeirrar menningarmiðju sem London er og skrifaði niður nokkra skemmtilega hluti sem hægt er að gera þar.
Dagurinn sem breytti öllu á Reyðarfirði var 15. mars árið 2003 þegar samningar voru undirritaðir um smíði álvers Alcoa. Þetta austfirska sjávarþorp, sem áður hét Búðareyri, stökkbreyttist á skömmum tíma í iðnaðarbæ og íbúafjöldinn meira en tvöfaldaðist.
Á árunum 1993 til 2005 hafa 35 mál verið tekin fyrir hjá neytendastofu vegna tungumáls í auglýsingum sem beint er til íslenskra neytenda. Samkvæmt lögum skulu þesskonar auglýsingar vera á íslensku. Eitt slíkt mál er nú til skoðunar hjá neytendastofu en aðeins hafa átta mál verið tekin fyrir síðan 2005. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra segir beitingu laga mikilvæga í þessum efnum.
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands hélt sextán sinnum upp á fimmtugs afmælið sitt. Hugmyndin vatt upp á sig og er nú orðin að stóru listaverkauppboði til styrktar Kvennaathvarfinu.
Kvikmyndin Smile vakti athygli á dögunum fyrir eitthvað allt annað en innihald sitt, heldur var það hugvitasamleg markaðsherferð sem var á allra vörum. Myndin sjálf kom svo í kvikmyndahús í þar síðustu viku. En er eitthvað vit í þessu öllu saman?
Það er yfir þrjátíu stiga hiti á paradísareyjunni Ustica, en hún er í ríflega klukkustundar siglingafjarlægð frá Palermo á Sikiley.
Íslenska stórstjarnan Bríet situr á toppi Íslenska listans í þessari viku með ábreiðu af laginu Dýrð í dauðaþögn en lagið hefur verið á leið upp listann að undanförnu.