

Loftslagsmál

Júlí var óvænt hlýjasti júlímánuður á jörðinni frá upphafi mælinga
Þrátt fyrir að El niño nyti ekki við var júlí heitasti júlímánuður frá upphafi mælinga og jafnaði hitamet sama mánaðar í fyrra.

Umhverfisstofnunin fer yfir „pólitíska“ loftslagsskýrslu
Þrátt fyrir að stór loftslagsskýrsla þrettán bandarískra alríkisstofnana byggist á á rannsóknum sem hafa verið rækilega ritrýndar vill forstjóri Umhverfisstofnunarinnar þar að farið verði ítarlega yfir innihald hennar áður en hún birtist. Forstjórinn er þekktur fyrir að hafna vísindalegri þekkingu á loftslagsbreytingum.

Saka Norðmenn um að leika tveimur skjöldum í loftslagsbaráttunni
Norðmenn hafa rekið metnaðarfulla loftslagsstefnu heima fyrir á sama tíma og þeir eru stærstu útflytjendur jarðefnaeldsneytis í Evrópu. Í nýrri skýrslu sem stór náttúruverndarsamtök standa á bak við er bent á það sem er kallað „hugarmisræmi“ Norðmanna hvað þetta varðar.

Vinsæl heimildamynd gefur villandi mynd af hættu kjötneyslu
Kvikmyndagerðarmaðurinn sem stendur að myndunum "What the Health“ og "Cowspiracy“ er sagður fara frjálslega með rannsóknir og gefur ranga mynd af því sem vísindin segja um skaðsemi kjötvara og losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði.

Fullyrða að losun gróðurhúsalofttegunda sé vantalin
Úttekt breska ríkisútvarpsins BBC bendir til þess að sum ríki vanmeti losun ákveðinna gróðurhúsalofttegunda. Sérfræðingur sem það ræðir við telur það geta grafið undan Parísarsamkomulaginu.

Loftslagsskýrslu lekið af ótta við að hún verði þögguð niður
Bandarískir vísindamenn óttast að ríkisstjórn Donalds Trump muni sitja á vísindaskýrslu um áhrif loftslagsbreytinga. New York Times hefur birt drög að skýrslunni.

Bandarískum embættismönnum sagt að tala ekki um loftslagsbreytingar
Starfsmönnum bandaríska landbúnaðarráðuneytisins hefur verið sagt að forðast hugtök eins og "loftslagsbreytingar“ og "samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda“ eftir að Donald Trump tók við völdum.

Bandaríkin draga sig út úr Parísarsamkomulaginu
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur afhent Sameinuðu þjóðunum skriflega tilkynningu þess efnis að Bandaríkin vilji draga sig úr Parísarsamkomulaginu.

Kuldakast ekki yfirvofandi á Íslandi
Ekkert bendir til þess að kuldaskeið sé yfirvofandi við Ísland þrátt fyrir að merki séu um að bráðnun íss á norðurskautinu valdi kuldapolli í hafinu fyrir utan landið.

Telja sig hafa skýringu á kuldapollinum við Ísland
Mælingar og langtímalíkön hafa sýnt áberandi kuldapoll í hafinu suður af Íslandi og Grænlandi á sama tíma og nær allar aðrir hlutar jarðarinnar hlýna. Vísindamenn telja orsökina meðal annars kunna að liggja í bráðnandi hafís á norðurskautinu.

Umhverfisráðherra stefnir að því rafbílar taki yfir innan þrettán ára
Þrátt fyrir að rafknúnir bílar séu aðeins 1,5% bílaflota Íslendinga segir Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra, að stefnt sé að því að að raf- og metanvæða hann fyrir árið 2030.

Ríki íslams og loftslagsbreytingar taldar stærstu ógnirnar
Flestir nefna íslömsku hryðjuverkasamtökin Ríki íslams og loftslagsbreytingar sem helstu hætturnar sem steðja að heiminum í nýrri skoðanakönnun sem gerð var í 38 löndum.

Möguleikarnir á að forðast hættulega hlýnun hverfandi
Niðurstöður nýrra rannsókna benda til þess að líkurnar á að mönnum takist að halda hlýnun jarðar innan hættumarka séu afar litlar. Ekki er þó öll nótt úti enn grípi þjóðir heims til markvissra aðgerða.

Leitar að náttúrulegum rannsóknarstöðvum við strendur Íslands
Uppsprettur koltvísýrings á hafsbotninum geta nýst sem náttúrulegar tilraunastöðvar til að kanna áhrif súrnunar sjávar á vistkerfi. Hrönn Egilsdóttir, sjávarlíffræðingur, segir mikilvægt að rannsaka búsvæði og umhverfisþætti sem hafa áhrif á samfélög lífvera við Ísland.

Bretar ætla að banna nýja bensín- og dísilbíla fyrir 2040
Til að draga úr loftmengun ætla bresk stjórnvöld að banna nýja bensín- og dísilbíla árið 2040. Sérfræðingur telur aðgerðirnar þó skila litlu til skemmri tíma litið.

Þörungar gætu hraðað bráðnun Grænlandsjökuls
Hlýnandi loftslag gæti aukið þörungagróður á Grænlandsjökli og hraðað þannig bráðnun íssins og hækkun yfirborðs sjávar. Vísindamenn reyna nú að átta sig á áhrifum þörunganna á bráðnun jökulsins.

Macron vonar að Trump vendi kvæði sínu í kross í loftslagsmálum
Donald Trump og Emmanuel Macron ræddu ítarlega hvað gæti fengið Bandaríkjastjórn til að ganga ekki út úr Parísarsamkomulaginu.

Fjórir umhverfisverndarsinnar myrtir í hverri viku: „Fyrirtæki og ríkisstjórnir vinna nú saman að því að drepa fólk“
Flestir þeirra umhverfisverndarsinna sem myrtir eru láta lífið í afskekktum skógum eða þorpum þar sem námavinnsla, stíflur, ólöglegt skógarhögg og/eða landbúnaður hafa áhrif á líf fólks.

Trump gefur í skyn að hann muni breyta afstöðu sinni gagnvart Parísarsamkomulaginu
Orð Trumps komu í kjölfar þess að Macron sagðist virða ákvörðun forsetans að draga Bandaríkin úr aðild að samningnum og að þeir vissu báðir að afstaða þeirra væri mismunandi, hins vegar væri mikilvægt að halda áfram.

Út úr kú
Það er algjörlega út úr kú að að hugsa til þess að stærsta mengunarvandamálið á jörðinni sé bókstaflega út úr kú.

Þrýsta á Trump að skipta um skoðun
„Parísarsáttmálinn er til marks um mikilvæga samstöðu sem náðist ekki auðveldlega. Við megum ekki tapa henni auðveldlega.“

Hitabylgjan í Evrópu tífalt líklegri vegna loftslagsbreytinga
Hnattræn hlýnun gerir hitabylgjur í Portúgal þar sem tugir létust í skógareldum í síðasta mánuði tífalt líklegri en ella. Vísindamenn segja að hitabylgjan í vestanverðri Evrópu hafi borið sterk merki loftslagsbreytinga.

Leiðrétting á gervihnattamælingum slær vopn úr höndum afneitara
Gervihnattamælingar sýna nú örlítið meiri hlýnun en hitamælar á jörðu niðri eftir að vísindamenn leiðréttu fyrir skekkjum í þeim. Afneitarar loftslagsvísinda hafa lengi bent á mun á gervihnattamælingum og yfirborðsmælingum til að fullyrða að engin hnattræn hlýnun hafi átt sér stað síðustu 19 árin.

Segja aðeins þrjú ár til stefnu að stöðva hættulegar loftslagsbreytingar
Kolefniskvótinn sem menn þurfa að halda sig innan til að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga gæti svo gott sem klárast á næstu þremur árum. Sérfræðingar vara við að lönd heims þurfi að byrja að minnka losunina strax.

Merkel setur loftslagsbreytingar á oddinn fyrir fund G20
Kanslari Þýskalands gerir ráð fyrir erfiðum viðræðum á G20-fundinum í næstu viku vegna ólíkrar sýnar Bandaríkjastjórnar annars vegar og leiðtoga annarra iðnríkja hins vegar á loftslagsvandann. Merkel segir að loftslagsbreytingar verði í brennidepli á fundinum.

Boaty McBoatface nær nýjum lægðum í jómfrúarferðinni
Fjarstýrði kafbáturinn sem fékk nafnið Boaty McBoatface eftir nafnasamkeppni sem vakti heimsathygli í fyrra er kominn heim úr jómfrúarferð sinni í Suður-Íshafi. Þar rannsakaði hann djúpsjávarstrauma og áhrif þeirra á loftslag jarðar.

Yfirborð sjávar hækkar hraðar
Bráðnun Grænlandsjökuls og annarra jökla á landi vegna hnattrænnar hlýnunar hefur stuðlað að því að yfirborð sjávar hækkar nú hraðar en fyrir rúmum tveimur áratugum.

Bandarískir veðurfræðingar setja ofan í við ráðherra vegna loftslagsbreytinga
Eftir að orkumálaráðherra Bandaríkjanna fór með fleipur um orsakir loftslagsbreytinga í sjónvarpsviðtali sendi Félags bandarískra veðurfræðinga honum bréf þar sem það fræðir ráðherrann um hlutverk koltvísýrings í hnattrænni hlýnun og raunverulga efahyggju í vísindum.

Fölnun kóralrifja gæti verið að ljúka í bili
Þriggja ára tímabili fölnunar kóralrifja á jörðinni gæti verið að ljúka. Bandaríska haf- og loftslagsstofnunin spáir því að hlýindum í Indlandshafi sé að ljúka en hætta er enn til staðar í Atlants- og Kyrrahafi.

Orkumálaráðherra Trump hafnar því að menn beri ábyrgð á hlýnun jarðar
Ráðherrar og embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump virðast ekki skilja orsakir hnattrænnar hlýnunar. Orkumálaráðherrann neitaði því í viðtali að koltvísýringur væri aðalorsakavaldur hennar.