Furðulegar verðlækkanir á mörkuðum Á vormánuðum verða fjárfestar oft varir við furðulegar verðlækkanir við opnun hlutabréfamarkaða, sem tengjast ekki viðbrögðum við neikvæðum fréttum eða hefðbundnum sveiflum á markaði. Skoðun 26. mars 2024 10:00
Ólík stemning á mörkuðum leiðir til að gengi Marels og JBT helst ekki í hendur Ólík gengisþróun Marels og John Bean Technologies (JBT) frá þriðja mögulega yfirtökutilboði bandaríska matvælatæknifyrirtækisins í það íslenska um miðjan janúar helgast af ólíkri þróun hlutabréfamarkaða, segir hlutabréfagreinandi. Marel hefur lækkað um ellefu prósent á síðustu tveimur mánuðum en JBT um tvö prósent á sama tíma. Innherji 25. mars 2024 18:40
Kostnaðaraðhald Símans „er til fyrirmyndar“ Mikil samkeppni er á fjarskiptamarkaði og því geta kostnaðarhækkanir verið erfiðar viðureignar ef viðhalda á framlegðarstigi, segir í verðmati Símans þar sem bent er á að tekjur hafi ekki haldið í við verðbólgu á milli ára. „Verðbólguumhverfið lítur töluvert betur út fyrir árið 2024 sem er til hagsbóta fyrir félög líkt og Símann sem eru með að hluta með verðtryggðan rekstrarkostnað. Tekjur eru á móti meira seigfljótandi,“ segir greinandi sem telur að kostnaðaraðhald Símans sé til fyrirmyndar. Innherji 25. mars 2024 13:48
Íslandsbanki gerði tilboð í TM með fyrirvara um hækkun hlutafjár Þegar Íslandsbanki gerði skuldbindandi tilboð í TM þá var það meðal annars gert með því skilyrði að hluthafar, þar sem ríkissjóður er langsamlega stærstur, myndu samþykkja í kjölfarið að hækka hlutafé bankans til að standa undir kaupverðinu. Viðskiptin hefðu verið stærri í hlutfalli við eigin fé bankans borið saman við Landsbankann sem var með enga fyrirvara um samþykki hluthafafundar þegar tilboðið hans var samþykkt. Innherji 22. mars 2024 18:53
Lýsti yfir andstöðu við kaup á TM á fundi með stjórnendum Landsbankans Á fundi með lykilstjórnendum Landsbankans örfáum vikum áður en bankinn gerði skuldbindandi tilboð í allt hlutafé TM hafði fjármála- og efnahagsráðherra komið á framfæri andstöðu sinni við að bankinn myndi ráðast í slík kaup. Ráðherra, sem hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki beint tilmælum til Bankasýslunnar áður en kaupin færu fram, hefur sagt það óviðunandi að bankaráð Landsbankans hafi ekki upplýst stofnunina með formlegum hætti um áform bankans. Innherji 22. mars 2024 10:59
Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis „Þessi aukna vitundarvakning um mikilvægi kynjajafnréttis og aukin eftirspurn eftir samfélagslegum fjármálaafurðum – ábyrgum lausnum og upplýsingum um ófjárhagslega þætti – felur í sér mikil tækifæri fyrir Ísland.“ Viðskipti innlent 22. mars 2024 08:01
Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Væntingar um tugmilljarða loðnuvertíð eru fyrir bí. Loðnubrestur virðist staðreynd. Viðskipti innlent 21. mars 2024 22:22
Sakar SKE um „íhlutun íhlutunnar vegna“ en sé ekki að gæta hagsmuna almennings Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, gagnrýnir harðlega starfshætti Samkeppniseftirlitsins, sem rannsakar núna eignatengsl félagsins og Samherja, og spyr hvaða hagsmuni stofnunin er að verja hér á landi og hvaða samkeppni hún telur sig standa vörð um. Hann segir eftirlitið gera sjávarútvegsfélögum erfitt um vik á erlendum mörkuðum í samkeppni við risavaxna keppinauta samhliða því að íslensku fyrirtækin verða alltaf hlutfallslega minni og minni. Innherji 21. mars 2024 15:22
Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Jón Skaftason, stjórnarformaður Sýnar, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Hann hefur setið í stjórninni síðan í ágúst 2022. Viðskipti innlent 21. mars 2024 14:47
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. Innherji 21. mars 2024 10:53
Tapaði ríflega hálfum milljarði dala annað árið í röð Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins. Viðskipti innlent 20. mars 2024 21:35
Bjarni Ólafsson AK í slipp á Akureyri Uppsjávarskipið Bjarni Ólafsson AK hélt áleiðis til Akureyrar frá Neskaupsstað í morgun. Skipið hefur legið við höfn Neskaupsstaðar síðastliðið ár en fer nú í slipp á Akureyri. Skipið var síðast notað á loðnuvertíðinni 2023. Innlent 20. mars 2024 19:56
Tilboð Íslandsbanka í TM var með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Tilboð Íslandsbanka, sem er að minnihluta í eigu ríkissjóðs, í allt hlutafé TM var meðal annars háð því skilyrði að kaupin yrðu í kjölfarið samþykkt af hluthöfum bankans. Því var hins vegar ekki fyrir að fara hjá Landsbankanum þegar fallist var á skuldbindandi tilboð hans upp á samtals nálægt 30 milljarða króna í tryggingafélagið. Innherji 20. mars 2024 17:00
Bauð talsvert betur en Íslandsbanki í baráttunni um að kaupa TM Fjórum mánuðum eftir að Kvika hafði hrundið af stað formlegu söluferli á TM var það ríkisfyrirtækið Landsbankinn, stærsti banki landsins á alla helstu mælikvarða, sem skilaði inn álitlegasta tilboðinu í allt hlutafé tryggingafélagsins – og ætlar sér núna að blása til sóknar þvert á vilja eigandans. Bankinn naut ráðgjafar fyrrverandi forstjóra annars tryggingafélags til margra ára við kaupin og er sagður hafa augljóslega langað mest allra tilboðsgjafa að komast yfir TM. Innherji 19. mars 2024 15:03
Frumvarp um sölu á restinni af Íslandsbanka komið fram Frumvarp fjármálaráðherra um sölu á því sem eftir er af eign ríkisins í Íslandsbanka var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Gert er ráð fyrir því af hlutirnir verði seldir almenningi í tveimur áföngum á þessu ári og næsta. Innlent 19. mars 2024 13:56
Ráðin innri endurskoðandi Kviku Hugrún Sif Harðardóttir hefur verið ráðin innri endurskoðandi Kviku banka hf. af stjórn bankans og hefur nú þegar hafið störf. Viðskipti innlent 19. mars 2024 13:47
Ríkisvæðing og ríkisstjórnarmenning Að færa fé til hluthafa Kviku til þess eins að ríkið eignist tryggingarfélag er eitthvað sem maður sá ekki fyrir. Þótt ekkert komi lengur á óvart þegar þessi ríkisstjórn er annars vegar. Skoðun 19. mars 2024 13:00
Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi. Viðskipti innlent 19. mars 2024 12:36
Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sýn hf. Eðvald tekur við starfinu af Kristínu Friðgeirsdóttur sem lét af störfum fyrr í mánuðinum. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallar. Viðskipti innlent 19. mars 2024 09:48
Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar. Innlent 18. mars 2024 22:28
Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Bankasýsla ríkisins hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvarðanatöku og upplýsingagjöf bankaráðs Landsbankans um kaup bankans á TM. Bankasýslan krefst þess að aðalfundi Landsbankans verði frestað um fjórar vikur vegna fyrirséðra áhrifa kaupanna á dagskrá, umræður og niðurstöður fundarins. Innlent 18. mars 2024 21:57
Telur að Kvika greiði út um fimmtán milljarða við söluna á TM Söluverð Kviku á TM var í samræmi við væntingar hlutabréfagreinenda sem telur að Kvika verði „sterkari“ eftir söluna en segir slæmt að fjárþurfa ríkissjóður sé með þessum kaupum Landsbankans að „dæla peningum inn í hagkerfið með vinstri hendinni.“ Sjóðstjóri reiknar með að Kvika muni greiða út um fimmtán milljarða samhliða sölunni í formi arðgreiðslna eða endurkaupum á eigin bréfum og hluthafar fái því ríflegan hluta söluverðsins til sín. Innherji 18. mars 2024 15:58
Fær engar slysabætur eftir að hafa ekið réttindalaus og „frosið“ á fjórhjólinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað tryggingafélagið VÍS og ferðaþjónustufyrirtækið Fjórhjólaævintýri af bótakröfu ungrar konu sem lenti í slysi í fjórhjólaferð á vegslóða við Suðurstrandarveg árið 2021. Dómarinn í málinu mat konuna hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi enda hafi hún ekki verið komin með ökuréttindi þegar slysið varð. Innlent 18. mars 2024 13:34
Kvika tók kipp Gengi hlutabréfa Kviku banka hækkaði um tæplega fjögur prósent í fyrstu viðskiptum eftir að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 9:30 í morgun. Viðskipti innlent 18. mars 2024 09:55
Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins Kaup Festi á öllu hlutafé í Lyfju hf mun að óbreyttu krefjast íhlutunar af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Viðskipti innlent 18. mars 2024 08:32
„Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsir óánægju sinni með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Hún segir að ríkisfyrirtæki eigi ekki að kaupa tryggingafélög og að viðskiptin verði ekki samþykkt af henni, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða. Viðskipti innlent 17. mars 2024 22:10
Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Kviku banka hafa borist skuldbindandi tilboð um kaup á hlutafé TM trygginga hf. en bankinn hefur verið með TM í söluferli í samræmi við tilkynningu þann 17. nóvember 2023 og síðari tilkynningar þess efnis. Viðskipti innlent 17. mars 2024 17:48
Forstjóraskipti hjá Play Stjórn Fly Play hf. og forstjóri félagsins, Birgir Jónsson, hafa í dag gert samkomulag um starfslok hans. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við sem forstjóri PLAY. Viðskipti innlent 17. mars 2024 16:27
Gagnrýnir séríslenskt kerfi þar sem lífeyrissjóðum er leyft að móta veruleikann Hjörleifur Pálsson, sem hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja í Kauphöllinni um árabil, fer hörðum orðum um þá þróun sem hefur orðið ofan á með tilnefningarnefndir og telur að þar hafi forsvarsmenn skráðra félaga „almennt sofið fljótandi að feigðarósi.“ Ekki sé hægt að aftengja stjórnir og hluthafa starfi nefndanna, eins og er að gerast, en þannig er búið að eftirláta völdin öllum öðrum en þeim sem hafa reynslu af rekstri og stjórnun skráðra félaga. Innherji 17. mars 2024 11:23
Jákvætt að klára sölu á ISB enda þurfi ríkið á peningunum að halda núna Það er „jákvætt“ að stjórnvöld stefni að því að ljúka við sölu á eignarhlut sínum í Íslandsbanka, að mati seðlabankastjóra, sem telur erfitt fyrir ríkið að vera minnihlutaeigandi í einkabanka. Fjármálaráðherra áformar að selja eftirstandandi hlut ríkissjóðs, sem er núna yfir 90 milljarðar að markaðsvirði, með almennu markaðssettu útboði sem verður sennilega gert í tveimur skrefum. Innherji 15. mars 2024 11:41