„Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Lovísa Arnardóttir skrifar 13. apríl 2026 08:32 Íris segir mörgum hafa verið brugðið en öðrum hafi þótt flugið flott. Vísir/Vilhelm og aðsend Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum ekki hafa sérstaka skoðun á lágflugi flugstjóra Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ um helgina. „
Það eru skiptar skoðanir á þessu flugi, eins og nánast öllu, en mér finnst flestir íbúar vera rólegir,“ segir Íris sem var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir mörgum íbúum hafa þótt flugið flott og farþegarnir í vélinni virðast hafa verið ánægðir. Flugmenn Icelandair fóru í lágflug yfir Vestmannaeyjar í gær í leyfisleysi. Flugstjórinn er ættaður af svæðinu og var að fara sitt síðasta flug áður en hann lætur af störfum vegna aldurs. Flugstjórinn vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir hafði samband við hann um helgina. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Icelandair tilkynnt málið til lögreglu. Þá hefur það verið í samskiptum við Samgöngustofu vegna málsins. Grunur er um að flugstjórinn hafi farið niður fyrir leyfilegar hæðartakmarkanir. Hún segir Icelandair hafa birt einhvers konar afsökunarbeiðni til íbúa Vestmannaeyja en hún segir íbúa frekar vilja fá afsökunarbeiðni á því að þau hafi hætt að fljúga til Vestmannaeyja. Hún segir einhverjum hafa brugðið þegar vélin fór yfir, aðallega yfir látunum, en segist hugsi yfir afsökunarbeiðninni og hvað Icelandair myndi gera ef eitthvað virkilega slæmt myndi gerast. „Ef þú ert að nota afsökunarbeiðnina svona, hvað ætlarðu að gera ef eitthvað virkilega gerist? Mér fannst þetta aðeins stórt skref,“ segir hún og að það sé vitað mál að flugfélögin hafi sínar reglur og verkferla sem eigi að grípa svona atvik. „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í Vestmannaeyjum, að flugvél hafi flogið yfir, nota bene, með einum af sonum eyjanna,“ segir Íris og að hún þekki fjölskyldu flugstjórans vel. Faðir hans hafi borið ábyrgð á því að flogið hafi verið til Vestmannaeyja um árabil og þeim þyki ofboðslega vænt um þessa fjölskyldu. Íris segist ekki ætla að setjast í dómarasætið og að hún geti ekki skorið úr um það að lög hafi verið brotin. Lögreglan sé komin með málið á sitt borð og muni skoða það. Málið hafi ratað utan landsteinanna og verið vel fjallað um það. Hún segir að ef þetta væri stærsti vandinn í samgöngum til Vestmannaeyja þá væru þau í „rosa góðum málum“. Greint var frá því fyrir helgi að Íris væri bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Hún hafi í áratugi verið skráð í flokkinn en hafi boðið fram með öðrum lista vegna ósættis. Hún tilkynnti fyrr á árinu að hún ætlaði ekki aftur fram. Hún segir gott samstarf hafa verið í bæjarstjórn á kjörtímabilinu og þess vegna hafi verið leitað til hennar. Íris ræddi einnig í viðtalinu samgöngumálin til Eyja. Höfnin sé lokuð núna og tíðin hafi verið erfið og hún hafi óskað eftir framlengingu á flugi til Vestmannaeyja.
Fréttir af flugi Vestmannaeyjar Bítið Lögreglumál Samgöngur Icelandair Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Tengdar fréttir Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. 23. mars 2026 13:07 Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Rannsóknarboranir til þess að kanna fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja hefjast í næsta mánuði. Þær fara annars vegar fram á Eiðinu á Heimaey og hins vegar í Landeyjasandi við bæinn Kross. 19. mars 2026 09:50 Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Stjórnarformaður félags um Vestmannaeyjagöng vonast til þess að hægt verði að aka í jarðgöngum til Eyja eftir tíu ár. Stefnt er á að rannsóknarboranir hefjist í vor. Félagið hefur boðað til kynningarfundar í Eyjum í kvöld um verkefnið. 15. janúar 2026 21:20 Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Tilboðum hafnað en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Sjá meira
Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. 23. mars 2026 13:07
Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Rannsóknarboranir til þess að kanna fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja hefjast í næsta mánuði. Þær fara annars vegar fram á Eiðinu á Heimaey og hins vegar í Landeyjasandi við bæinn Kross. 19. mars 2026 09:50
Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Stjórnarformaður félags um Vestmannaeyjagöng vonast til þess að hægt verði að aka í jarðgöngum til Eyja eftir tíu ár. Stefnt er á að rannsóknarboranir hefjist í vor. Félagið hefur boðað til kynningarfundar í Eyjum í kvöld um verkefnið. 15. janúar 2026 21:20