Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Eiður Þór Árnason skrifar 7. apríl 2026 18:21 Vinnustöðvunin hefur einungis áhrif á Eimskip. Vísir/Vilhelm Félagsmenn Sjómannafélags Íslands hafa boðað til vinnustöðvunar í næstu viku sem nær til hafnarverkamanna og farmanna sem starfa fyrir Eimskip. Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar félagsins, segir Eimskip ekki hafa viljað semja við félagið um kjör hafnarverkamanna og þess í stað bent á Eflingu.
Eimskip telur að verkfallsboðun um störf á skipum félagsins sé ólögmæt og hyggst vísa verkfallsboðun vegna sjómanna til Félagsdóms. Mbl.is greindi fyrst frá verkfallsboðuninni. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara á morgun í deilunni um kjör hafnarverkamanna. Til farmanna teljast skipverjar í áhöfnum á Dettifossi, Brúarfossi og Selfossi. Fyrirhuguð vinnustöðvun skipverja stendur yfir frá miðnætti 12. apríl til 16. apríl, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Þá er vinnustöðvun hafnarverkamanna boðuð 13. til 15. apríl. Kjarasamningar hafnarverkamanna hafa verið lausir í tæp tvö ár og samningar farmanna frá áramótum, að sögn Jónasar. Eimskip bent á Eflingu Jónas fullyrðir að Eimskip hafi neitað að semja við félagið um kjör hafnarverkamanna og fullyrt að Efling stéttarfélag ætti samninginn. „En við erum búin að fara í tvö dómsmál til viðurkenningar þess að við eigum samningsréttinn fyrir okkar félagsmenn,“ segir Jónas. Þetta hafi verið staðfest af Félagsdómi. Eimskip segir að 40 prósent starfsfólks í Sundahöfn séu félagsmenn í undirfélagi Sjómannafélagsins og hafi verið á sömu kjörum og samstarfsfólk í Eflingu. Viðræður við Sjómannafélagið um störf í hafnarþjónustu hafi staðið yfir og séu komnar til ríkissáttasemjara. Vilja ýta við stjórnendum Eimskips Jónas segir enga hreyfingu hafa verið í deilunni og tilgangurinn með aðgerðunum í næstu viku sé að ýta við stjórnendum Eimskipafélagsins og reyna að þrýsta á um samning. Ef þeir komi ekki að samningsborðinu muni harðari aðgerðir fylgja í kjölfarið. Verkfall hafnarverkamanna hafi áhrif á þau skip sem komi til hafnar í Sundahöfn þessa daga. Auk þess séu sjómennirnir, hásetarnir og bátsmennirnir á Dettifossi, Brúarfossi og Selfossi á leið í verkfall. Jónas vildi ekki ræða launakröfur samninganefndar Sjómannafélagsins í deilum þess við Eimskip. „Þetta eru bara smá skærur til að ýta við þeim. Ef það gengur ekki þá verða boðaðar ríkari aðgerðir, ef þetta dugar ekki.“ Sjómannafélagið semur beint við fyrirtækið um kjör farmanna en Jónas segir Eimskip enn sem komið er ekki hafa brugðist við verkfallsboðuninni. Deilan um hafnarverkamenn er komin til ríkissáttasemjara sem hefur boðað aðila á fund klukkan tíu í fyrramálið. Komið Eimskip í opna skjöldu „Boðaðar aðgerðir [Sjómannafélags Íslands] komu Eimskip í opna skjöldu og eru mikil vonbrigði þar sem félagið leggur áherslu á að leita sanngjarnra lausna með samtali og samningum og mikilvægi þess að ekki sé samið umfram kjarasamninga á almennum vinnumarkaði á þessum krefjandi tímum,“ segir í tilkynningu á vef fyrirtækisins. Samningar á milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins um störf í hafnarþjónustu í Sundahöfn eru sagðir hafa verið í gildi um árabil. Þeir feli meðal annars í sér forgangsréttarákvæði Eflingar um störf á hafnarsvæði Eimskips í Sundahöfn. Að sögn fyrirtækisins hafa viðræður við Sjómannafélagið um störf á skipum félagsins staðið yfir undanfarna mánuði og voru enn í gangi þegar boðað var til vinnustöðvunarinnar. Þær hafi ekki verið komnar á borð ríkissáttasemjara. „Það er mat Eimskips að verkfallsboðun SÍ um störf á skipum félagsins sé ólögmæt og mun félagið vísa verkfallsboðun vegna sjómanna til Félagsdóms,“ segir í yfirlýsingu fyrirtækisins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kjaramál Eimskip Hafnarmál Skipaflutningar Vinnumarkaður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira