
FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ
Íslandsmeistarar FH unnu fjögurra marka útisigur á Stjörnunni í 4. umferð Olís-deildar karla í handbolta. FH hefur nú unnið síðustu þrjá leiki sína og er komið með átta stig að loknum fimm leikjum.
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Íslandsmeistarar FH unnu fjögurra marka útisigur á Stjörnunni í 4. umferð Olís-deildar karla í handbolta. FH hefur nú unnið síðustu þrjá leiki sína og er komið með átta stig að loknum fimm leikjum.
Einar Jónsson, þjálfari Fram, stýrði sínum mönnum til sigurs í kvöld á móti Haukum í Olís-deild karla í handknattleik. Það var mikið skorað í Úlfarsárdalnum en leikurinn fór 37-34 fyrir Fram og að vonum var Einar kampakátur með sóknarleik liðsins í kvöld.
Fram lagði Hauka í miklum markaleik í Úlfarsárdal í kvöld en leikurinn fór 37-34. Framarar léku við hvern sinn fingur, sérstaklega í síðari hálfleik og skoruðu 21 mark gegn andlausum varnarmönnum Hauka.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann tíu marka sigur á tékkneska félagsliðinu Házená Kynzvart, 35-25. Ísland er í óðaönn að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í nóvember.
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik í marki Wisla Plock sem mátti þola naumt tap gegn París Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Kristján Örn Kristjánsson átti þá góðan leik í efstu deild Danmerkur.
Þrír leikir fóru fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. ÍBV lagði Fjölni í Vestmannaeyjum, Grótta lagði HK í Kópavogi á meðan ÍR og Afturelding gerðu jafntefli í Breiðholti.
Andri Már Rúnarsson átti góðan leik í liði Leipzig sem lagði Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta. Þá vann Íslendingalið Melsungen góðan útisigur á Kiel.
Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Póllandi með 11 marka mun í fyrsta leik liðanna á þriggja liða æfingamóti sem fram fer í Cheb í Tékklandi, lokatölur 26-15.
Haukur Þrastarson var upp á sitt besta í öruggum sigri Dinamo Búkarest á Pelister í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia máttu þá þola tap á heimavelli gegn Füchse Berlín.
Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting áttu ekki í vandræðum með Veszprém, lið Bjarka Más Elíssonar, þegar þau mættust í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.
Það tók Val fjórar umferðir að vinna leik í Olís-deild karla í handbolta. Eftir þrjár umferðir án sigurs mættu KA-menn á Hlíðarenda og sáu aldrei til sólar, lokatölur 38-27.
Kolstad er komið á blað í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta og það er að mestu ótrúlegum leik Sigvalda Björns Guðjónssonar að þakka. Þá gerðu Álaborg og Magdeburg jafntefli þar sem íslenska tvíeykið fór mikið í liði gestanna.
Mikilvæg skref voru tekin í starfi íslenska kvennalandsliðsins í handbolta í Háskólanum í Reykjavík í dag þegar að leikmenn liðsins gengust undir ítarleg próf sem skila niðurstöðum sem gera vinnu leikmanna og þjálfara markvissari og skipulagðari.
Serbnesku dómararnir Aleksander Pandzic og Ivan Mosorinski, sem grunaðir hafa verið um hagræðingu úrslita, fá ekki að dæma fleiri handboltaleiki.
FH vann Hauka með minnsta mun í Hafnarfjarðarslag kvöldsins í Olís-deild karla í handbolta. Liðin eru þá jöfn á toppi deildarinnar.
Þýskalandsmeistarar Magdeburg, með landsliðsmennina Ómar Inga Magnússon og Gísla Þorgeir Kristjánsson innanborðs, máttu þola sitt fyrsta tap á tímabilinu er liðið tók á móti Kiel í þýska handboltanum í dag.
Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk fyrir Sporting er liðið vann öruggan 16 marka sigur gegn Stiven Tobar Valencia og félögum hans í Benfica í portúgalska handboltanum í dag, 38-22.
Íslendingalið Melsungen mátti þola tap í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta í kvöld. Sömu sögu er að segja af Ými Erni Gíslasyni og félögum í Göppingen. Aldís Ásta Heimisdóttir átti hins vegar góðan leik þegar lið hennar Skara vann stórsigur í Svíþjóð.
Gunnar Steinn Jónsson stýrði og spilaði með liði Fjölnis sem vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Olís deild karla í kvöld, 28-27 í háspennuleik þar sem flautumark á lokasekúndunni fékk ekki að gilda.
Íslenska landsliðskonan í handbolta, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, átti frábæran leik fyrir sænska úrvalsdeildarliðið Kristianstad HK sem hafði betur gegn Skövde í kvöld í 2.umferð deildarinnar. Lokatölur urðu 33-22, ellefu marka sigur Kristianstad.
Nýliðar Fjölnis unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Olís deild karla, 28-27 gegn HK í háspennuleik á lokamínútunum.
Afturelding vann yfirburðarsigur gegn KA í þriðju umferð Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Lokatölur í Mosfellsbæ urðu 33-22, ellefu marka sigur Aftureldingar.
Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í þýska B-deildar liðinu Bergischer unnu í kvöld stórsigur á liði Bayer Dormagen og sáu til þess að fullkomin byrjun liðsins í deildinni heldur áfram.
Ólafur Guðmundsson skoraði fjögur mörk þegar að lið hans Karlskrona vann sjö marka sigur á IFK Skövde, 28-21, í 2.umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.
Það verður sannkölluð handboltaveisla í Kaplakrika 15. október þegar Íslendingaliðin Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, og Porto mæta þangað og spila við FH og Val í Evrópudeild karla.
Svíar eru í leit að nýjum landsliðsþjálfara í handbolta eftir að Glenn Solberg tilkynnti óvænt að hann væri hættur, tveimur árum fyrir lok samningstíma.
Fredericia tapaði með átján marka mun fyrir Sporting í Meistaradeild Evrópu í handbolta karla í gær. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari liðsins, var miður sín eftir útreiðina.
Haukar lentu ekki í teljandi vandræðum með Stjörnuna í 3. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta þökk sé frábærri frammistöðu tveggja lykilmanna.
Valur hefur ekki enn unnið leik í Olís-deild karla í handbolta. Í kvöld tapaði liðið fyrir Stjörnunni á útivelli. Þá fór karlalið Fram að fordæmi kvennaliðsins og lagði Gróttu á Seltjarnarnesi.
„Mér fannst í rauninni ótrúlegt að við skydum ekki vinna stærra,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir 33-30 sigur liðsins gegn ÍBV í Olís-deild karla í handbolta í kvöld.