Leeds fór illa að ráði sínu gegn B-deildar liði Cardiff Úrvalsdeildarliðið Leeds United lenti í vandræðum með B-deildar lið Cardiff City í ensku FA bikarkeppninni í dag en liðin gerðu 2-2 jafntefli. 26 sæti skilja liðin af en Cardiff er í 20. sæti Championship deildarinnar á meðan Leeds er í 14. sæti úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 8. janúar 2023 16:15
Margrét Árnadóttir semur við Parma Margrét Árnadóttir hefur yfirgefið Þór/KA og heldur út til Ítalíu þar sem hún mun leika með Parma í Serie-A. Fótbolti 8. janúar 2023 15:30
„Ég hef fullan stuðning“ Graham Potter, knattspyrnustjóri Chelsea, blés á þær sögusagnir að hann sé á mörkum þess að missa starfið sitt hjá Chelsea og segist þess í stað hafa fullan stuðning og þolinmæði hjá eigendum Chelsea. Fótbolti 8. janúar 2023 15:00
Weghorst orðaður við United Wout Weghorst, framherji Burnley, gæti verið að ganga til liðs við Manchester United á lánssamningi. Fótbolti 8. janúar 2023 12:30
Gvardiol dreymdi um að spila fyrir Liverpool Joško Gvardiol, leikmaður RB Leipzig, segist hafa dreymt um að spila fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni þegar hann var yngri. Fótbolti 8. janúar 2023 12:00
Fyrrum leikmaður Arsenal handtekinn með kókaín að andvirði 4.000 punda Anthony Stokes, fyrrum framherji Arsenal og Celtic var handtekinn s.l. föstudag í Dublin á Írlandi eftir bílaeftirleik þar sem hann reyndi að stinga lögregluna af. Fótbolti 8. janúar 2023 11:30
Gagnrýndi kaupstefnu Manchester United Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, gagnrýndi harðlega þá félagaskipta stefnu sem félagið viðhélt fyrir komu hans til United síðasta sumar. Fótbolti 8. janúar 2023 10:31
Átján mánaða bann fyrir rasisma í garð eigin leikmanna John Yems, fyrrverandi þjálfari Crawley Town í ensku D-deildinni, hefur verið dæmdur í átján mánaða bann frá fótbolta fyrir rasisma í garð eigin leikmanna. Fótbolti 7. janúar 2023 23:31
Liverpool og Wolves þurfa að mætast á ný eftir dramatískt jafntefli Liverpool og Wolves gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í ensku bikarkeppninni, FA-bikarnum í kvöld. Liðin þurfa því að mætast á ný til að skera úr um hvort liðið fer áfram í fjórðu umferð. Fótbolti 7. janúar 2023 21:54
Monza stal stigi af Inter Inter Milan þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið heimsótti Monza í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 7. janúar 2023 21:45
Willum og félagar aftur á sigurbraut Willum Þór Willumsson og félagar hans í Go Ahead Eagles eru komnir aftur á sigurbraut eftir 2-0 útisigur gegn Sittard í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 7. janúar 2023 20:58
Ríkasta félag heims féll óvænt úr leik gegn C-deildarliði Newcastle, ríkasta knattspyrnufélag heims, er fallið úr leik í FA-bikarnum eftir óvænt 2-1 tap gegn C-deildarliði Sheffield Wednesday. Fótbolti 7. janúar 2023 19:56
West Ham hafði betur gegn Brentford og Hollywood-liðið vann nauman sigur Fjórum leikjum sem fóru fram á sama tíma í FA-bikarnum er nú lokið. West Ham hafði betur gegn Brentford í úrvalsdeildarslag og Wrexham, sem er í eigu Hollywood-stjarnanna Ryan Reynolds og Rob McElhenney, er komið áfram eftir 4-3 sigur gegn Coventry. Fótbolti 7. janúar 2023 19:32
Danilo hélt sigurgöngu Juventus á lífi Juventus hefur nú unnið átta leiki í röð í ítölsku A-deildinni eftir nauman 1-0 sigur gegn Udinese þar sem Danilo reyndist hetja heimamanna. Fótbolti 7. janúar 2023 18:56
Spænsku meisturunum mistókst að endurheimta toppsætið Spænska stórveldið Real Madrid mátti þola óvænt 2-1 tap er liðið heimsótti Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 7. janúar 2023 17:09
Jóhann Berg lagði upp er Burnley fór áfram í bikarnum Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley eru komnir í fjórðu umferð FA-bikarsins eftir 4-2 útisigur gegn úrvalsdeildarliði Bournemouth í dag. Fótbolti 7. janúar 2023 17:00
Annar leikmaðurinn sem Chelsea kynnir til leiks í dag Chelsea hefur tilkynnt um önnur kaup sín í janúarglugganum en enska fótboltafélagið hefur tryggt sér þjónustu brasilíska miðjumanninum Andrey Santos. Fótbolti 7. janúar 2023 15:44
Kane skaut Tottenham áfram í bikarnum Harry Kane skoraði sigurmark Tottenham Hotspur þegar liðið fékk Portsmouth í heimsókn á Tottenham Hotspur-leikvanginn í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta karla. Fimm leikir fóru fram í enska bikarnum í hádeginu í dag. Enski boltinn 7. janúar 2023 14:24
Chelsea staðfestir kaupin á Fofana Enska fótboltafélagið Chelsea hefur staðfest kaup sín á hinum tvítuga framherja David Datro Fofana sem gengur til liðs við Lundúnafélagið frá norska meistaraliðinu Moled. Fótbolti 7. janúar 2023 14:01
Frakkar halda tryggð við Deschamps Didier Deschamps, þjálfari franska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur framlengt samning sinn við franska knattspyrnusambandið. Nýr samningur hans gildir fram yfir lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada árið 2026. Fótbolti 7. janúar 2023 11:46
Liverpool verður án Van Dijk í rúman mánuð Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool þarf að reiða sig af án hollenska miðvarðarins Virgil van Dijk í meira en mánuð eftir að leikmaðurinn meiddist aftan á læri í 3-1 tapi liðsins gegn Brentford síðastliðinn mánudag. Fótbolti 7. janúar 2023 08:02
Beckham yngri genginn til liðs við Brentford Romeo Beckham, sonur ensku stórstjörnunnar David Beckham, er genginn til liðs við Brentford á láni frá bandaríska liðinu Inter Miami. Fótbolti 7. janúar 2023 07:00
Segir framtíð sína hjá félaginu ekki vera í sínum höndum Frank Lampard, knattspyrnustjóri Everton, var eðlilega súr og svekktur eftir 2-1 tap sinna manna gegn Manchester United í FA-bikarnum í kvöld. Eftir slæmt gengi liðsins á tímabilinu velta margir fyrir sér hvort þjálfarinn sé við það að missa vinnuna, en Lampard segir það ekki vera í sínum höndum. Fótbolti 6. janúar 2023 23:31
Frönsku meistararnir björguðu sér fyrir horn gegn C-deildarliði Chateauroux Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain þurftu að hafa fyrir hlutunum er liðið heimsótti C-deildarlið Chateauroux í frönsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 6. janúar 2023 22:28
Manchester United fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í fjórðu umferð Manchester United varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í fjórðu umferð FA-bikarsins er liðið vann 3-1 sigur gegn Everton í úrvalsdeildarslag. Enski boltinn 6. janúar 2023 21:57
Alfons hóf tíma sinn hjá Twente á sigri Alfons Sampsted lék sinn fyrsta leik fyrir hollenska félagið Twente er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn FC Emmen í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 6. janúar 2023 21:26
Allslaus Alli sem enginn vill Tyrkneska félagið Besiktas er sagt vilja losna við enska miðjumanninn Dele Alli samkvæmt þarlendum fjölmiðlum. Hann er á láni frá Everton sem hefur enn minni áhuga á að endurheimta kappann. Enski boltinn 6. janúar 2023 17:01
Henry tilbúinn að fórna milljónum til að verða landsliðsþjálfari Belga Thierry Henry vill taka við belgíska landsliðinu í fótbolta og er tilbúinn að stýra því fyrir mun lægri laun en Roberto Martínez fékk fyrir það. Fótbolti 6. janúar 2023 16:30
Segir deilu landsliðsþjálfarans og Reyna-fjölskyldunnar sorglega sápuóperu Deila Greggs Berhalter, þjálfara bandaríska karlalandsliðsins í fótbolta, og fjölskyldu landsliðsmannsins Gio Reyna er sorgleg sápuópera. Þetta segir Heather O'Reilly, fyrrverandi landsliðskona Bandaríkjanna. Fótbolti 6. janúar 2023 14:30
Telja að Bellingham sé nú meira virði en Mbappe Dortmund mun selja Jude Bellingham og það er alveg ljóst að þýska félagið mun fá háa upphæð fyrir enska landsliðsmiðjumanninn. Fótbolti 6. janúar 2023 12:31