Spánarmeistararnir halda í við Börsunga Real Madríd vann 2-0 sigur á Athletic Bilbao í síðasta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 22. janúar 2023 22:15
Man United á toppinn eftir að leikjum Chelsea og Arsenal var frestað Manchester United er komið á topp ensku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta þar sem leikjum bæði Chelsea og Arsenal var frestað í dag. Enski boltinn 22. janúar 2023 20:31
Pedri hetja Barcelona Pedri sá til þess að Barcelona jók forystu sína á toppi La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 22. janúar 2023 19:30
Nketiah hetja Arsenal gegn Man United Arsenal vann dramatískan 3-2 sigur á Manchester United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 22. janúar 2023 18:25
Hvorki Anna Björk né Margrét í sigurliði Tveir íslenskir varnarmenn komu við sögu í leikjum dagsins í Serie A kvenna, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan leikinn er Inter gerði jafntefli og Margrét Árnadóttir kom inn af bekknum þegar Parma tapaði. Fótbolti 22. janúar 2023 17:01
Håland reimaði á sig markaskóna Erling Braut Håland skoraði öll þrjú mörk Manchester City þegar liðið vann Úlfana 3-0 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þetta var fjórða þrenna framherjans í deildinni. Enski boltinn 22. janúar 2023 16:30
Lampard óttast ekki að verða rekinn Frank Lampard, knattspyrnustjóri Everton, segist ekki óttast það að verða rekinn eftir enn eitt tap liðsins í ensku úrvalsdeildinni í gær. Everton mátti þola 2-0 tap gegn West Ham í fallbaráttuslag og liðið er án sigurs í deildinni síðan í október á síðasta ári. Fótbolti 22. janúar 2023 12:46
Úlfarnir halda áfram að styrkja sig fyrir fallbaráttuna Enski miðvörðurinn Craig Dawson er genginn til liðs við Wolves frá West Ham og skrifar hann undir tveggja og hálfs árs samning við félagið. Dawson er fjórði leikmaðurinn sem Úlfarnir fá til sín í janúar. Fótbolti 22. janúar 2023 11:31
Rannsaka ásakanir þess efni að leikmaður hafi sett fingur í endaþarm mótherja Knattspyrnusambandið i Nottingham-skíri rannsakar mál frá 8. janúar þar sem leikmaður í Sunnudagsdeildinni (e. Sunday league) á að hafa stungið fingri, eða fingrum, upp í endaþarm leikmanns í liði andstæðinganna. Enski boltinn 22. janúar 2023 08:00
Flúði land í farbanni vegna nauðgunardóms Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Escobar Diaz, sem hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir nauðgun fór af landi brott í desember síðastliðnum. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann í september síðastliðnum og bíða afplánunar í fangelsi á Íslandi. Innlent 22. janúar 2023 07:00
„Held að Wenger hafi tapað þúsundasta leiknum sínum 6-0 svo ég er ánægður með að það hafi ekki gerst“ Jürgen Klopp stýrði Liverpool í þúsundasta sinn í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Eftir leik sagðist Klopp vera sáttur með að hafa ekki tapað 6-0 líkt og Arsène Wenger gerði með Arsenal á sínum tíma. Enski boltinn 22. janúar 2023 07:00
Man United samdi við tvo leikmenn í dag Lið Manchester United í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta styrkti leikmannahóp sinn til muna í dag þegar liðið samdi við tvo leikmenn. Önnur kemur á láni frá franska liðinu París Saint-Germain á meðan hin kemur frá Kanada. Enski boltinn 21. janúar 2023 23:30
Níunda jafntefli Newcastle kom á Selhurst Park Crystal Palace og Newcastle United gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Newcastle hefur gert 9 jafntefli í 20 leikjum. Enski boltinn 21. janúar 2023 20:00
West Ham vann fallslaginn | Ferguson bjargað stigi fyrir Brighton West Ham United vann 2-0 sigur á Everton í einum af fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni sem hófst klukkan 15.00. Brighton & Hove Albion gerði 2-2 jafntefli við Leicester City á útivelli, Bournemouth og Nottingham Forest gerðu 1-1 jafntefli á meðan Aston Villa vann 1-0 útisigur á Southampton. Enski boltinn 21. janúar 2023 17:31
Albert lagði upp í mikilvægum sigri Albert Guðmundsson lagði upp fyrra mark Genoa í mikilvægum 2-1 útisigri á Benevento í Serie B, ítölsku B-deildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 21. janúar 2023 17:00
Hjörtur og félagar misstu frá sér sigurinn í uppbótartíma Hjörtur Hemannsson og félagar hans í Pisa þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið heimsótti Como í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. Gestirnir voru með unninn leik í höndunum en misstu frá sér tvö stig á ögurstundu. Fótbolti 21. janúar 2023 15:51
Þakkar stuðningsmönnum fyrir að reyna að stöðva níðsöngva Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur þakkað stuðningsmönnum félagsins fyrir sinn hlut í að reyna að útrýma niðrandi söngvum um samkynhneigða. Fótbolti 21. janúar 2023 10:31
Juventus áfrýjar fimmtán stiga refsingunni Ítalska stórveldið Juventus hefur áfrýjað ákvörðun ítalska knattspyrnusambandsins um að fimmtán stig skuli dregin af liðinu fyrir brot á félagsskiptareglum. Fótbolti 21. janúar 2023 10:00
Haller klár í að snúa aftur til keppni eftir krabbameinsmeðferðina Sebastien Haller, framherja þýska úrvalsdeildarfélagsins Borussia Dortmund, gæti snúið aftur til keppni á nýjan leik á morgun eftir að hafa gengið í gegnum krabbameinsmeðferð. Fótbolti 21. janúar 2023 08:01
Samþykki byggingaráforma vegna knatthúss Hauka fellt úr gildi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar um samþykki byggingaráforma að Ásvöllum 1. Til stóð að reisa knatthús Hauka á lóðinni. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir málið til marks um lélega stjórnsýsluhætti í bænum. Innlent 21. janúar 2023 07:01
Fimmtán stig dregin af Juventus fyrir brot á félagsskiptareglum Fimmtán stig hafa verið dregin af ítalska stórliðinu Juventus fyrir alvarleg brot á félagsskiptareglum ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 20. janúar 2023 23:42
Vialli kvaddur, Napoli best í Evrópu og þjálfari rekinn í tvo daga Mínútuþagnirnar fyrir leiki hafa verið svo margar í ítölsku deildinni eftir að nýtt ár gekk í garð að það liggur við að þær nái saman heilum fótboltaleik að lengd. Tilefnið hefur enda verið fráfall eins dáðasta sonar – og föður – ítalska boltans, Gianluca Vialli. Mannsins sem komist hefur næst því að tengja saman knattspyrnuheimana England og Ítalíu. Fótbolti 20. janúar 2023 14:10
Dani Alves handtekinn fyrir kynferðislega áreitni Dani Alves, sigursælasti fótboltamaður sögunnar, var handtekinn í morgun, sakaður um að hafa áreitt konu kynferðislega á klósetti á skemmtistað í Barcelona. Fótbolti 20. janúar 2023 13:30
25 ára fótboltamaður úr MLS deildinni dó í bátaslysi Varnarmaður Charlotte FC lést í gær af völdum áverka sem hann hlut í bátaslysi fyrir utan Miami borg. Fótbolti 20. janúar 2023 12:31
Cardiff reyndi að kaupa tryggingu daginn eftir að Sala lést Enska knattspyrnufélagið Cardiff reyndi að taka út tryggingu upp á tuttugu milljónir punda, eða rúmlega þrjá og hálfan milljarð íslenskra króna, fyrir Emiliano Sala, daginn eftir að argentínski framherjinn lést í flugslysi. Fótbolti 20. janúar 2023 07:01
Madrídingar snéru taflinu við og eru á leið í átta liða úrslit Real Madrid vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur er liðið heimsótti Villarreal í spænsku bikarkeppninni Copa del Rey í kvöld. Heimamenn leiddu með tveimur mörkum eftir fyrri hálfleikinn, en Madrídingar snéru taflinu við í þeim síðari. Fótbolti 19. janúar 2023 22:22
Chiesa skaut Juventus í átta liða úrslit Federici Chiesa reyndist hetja Juventus er liðið vann 2-1 sigur gegn Monza í 16-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia í kvöld. Fótbolti 19. janúar 2023 22:05
Öruggir sigrar hjá Fram og Val Fram og Valur unnu afar örugga sigra er liðin mættu til leiks í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta í kvöld. Valsmenn unnu 3-0 sigur gegn Leikni og Fram vann 5-1 sigur gegn Fjölni. Fótbolti 19. janúar 2023 21:27
Börsungar í átta liða úrslit eftir stórsigur Barelona er á leið í átta liða úrslit spænsku bikarkeppninnar, Copa del Rey, eftir 5-0 stórsigur er liðið heimsótti C-deildarlið Ceuta í kvöld. Fótbolti 19. janúar 2023 20:53
Tímabilið búið hjá Jóni Daða Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson leikur ekki meira með Bolton Wanderers í ensku C-deildinni á tímabilinu. Selfyssingurinn er á leið í aðgerð á ökkla og því er tímabilinu lokið hjá framherjanum. Fótbolti 19. janúar 2023 20:31