Segir Staksteinahöfund hafa alist upp við olíulampa og frábiður sér hrútskýringar „Alþingi mun eiga síðasta orðið og þar við situr. Ef skandallinn fær að standa þá er það endanlegt. Það þarf enginn að hrútskýra það neitt frekar. Það kunna fleiri að lesa sér til gagns en þeir sem ólust upp við olíulampa.“ Innlent 22. nóvember 2021 09:16
Varaþingmaður VG í Norðvestur: „Er nokkuð annað en uppkosning í boði?“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, vill að Alþingi velji þá leið að halda uppkosningu í kjördæminu. Hún segir traust á framkvæmd kosninga verða að vera hafna yfir allan vafa. Innlent 21. nóvember 2021 22:07
Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. Innlent 21. nóvember 2021 19:56
Þingmenn sendir í hraðpróf Þeim tilmælum hefur verið beint til allra sem verða viðstaddir þegar nýtt þing kemur saman í fyrsta sinn á þriðjudaginn að fara í hraðpróf við kórónuveirunni. Um er að ræða ráðstöfun sem ætlað er að koma í veg fyrir að hópsmit komi upp á Alþingi. Innlent 20. nóvember 2021 09:07
Þingmenn sem voru ekki í framboði fengu 1,6 milljón í greiðslur í september Aðrar kostnaðargreiðslur, utan fastra launa og kostnaðar, til þingmanna sem ekki voru í framboði í Alþingiskosningunum nam tæpri 1,6 milljón króna fyrir septembermánuð. Innlent 19. nóvember 2021 06:31
Undirbúningsnefnd skili af sér tillögum til kjörbréfanefndar á þriðjudag Undirbúningskjörbréfanefnd átti langan fund í dag en nú eru aðeins fimm dagar þar til Alþingi kemur saman til að leysa úr þeirri óvissu sem ríkir um útgáfu kjörbréfa þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Innlent 18. nóvember 2021 22:22
Gagnrýnir seinagang ríkisstjórnarmyndunar og skort á fjárlögum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir seinagang ríkisstjórnarmyndunar vekja upp spurningar um verkstjórn. Verkefnin framundan séu brýn og ríkið megi ekki við því að fjárlög frestist fram í desember. Innlent 18. nóvember 2021 20:52
„Það hringir enginn með feita bitann“ Guðmundur Andri Thorsson fráfarandi þingmaður er byrjaður aftur á Forlaginu, sínum gamla vinnustað. Innlent 18. nóvember 2021 12:54
Undirbúningskjörbréfanefnd vinnur að tveimur tillögum Undirbúningskjörbréfanefnd vinnur í sameiningu að gerð tveggja tillagna til Alþingis um hvernig skuli afgreiða kjörbréf þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Önnur færir rök fyrir því að útgefin kjörbréf verði samþykkt og hin ekki, sem hefði í för með sér að boðað yrði til uppkosningar í kjördæminu. Innlent 18. nóvember 2021 11:11
Alþingi kemur saman á þriðjudag og greiðir atkvæði um kjörbréf á fimmtudag Alþingi kemur saman á þriðjudag og atkvæði verði greidd um niðurstöður undirbúningskjörbréfanefndar á fimmtudag í næstu viku. Þar með gæti ný ríkisstjórn litið dagsins ljós fyrir aðra helgi. Innlent 17. nóvember 2021 17:38
Tekur við stöðu formanns þingflokks Samfylkingarinnar Helga Vala Helgadóttir hefur tekið við formennsku þingflokks Samfylkingarinnar. Hún tekur við stöðunni af Oddnýju G. Harðardóttur sem gegndi embættinu á síðasta kjörtímabili. Innlent 17. nóvember 2021 13:12
Telur ekkert hafa komið fram sem sýni að önnur talning í NV-kjördæmi eigi ekki að gilda Inga Sæland telur að ekkert hafi komið fram í rannsókn undirbúningskjörbréfanefndar á talningu atkvæða í Alþingskosningunum í Norðvesturkjördæmi sem sýni að endurtalningin sem þar var framkvæmd eigi ekki að gilda. Innlent 16. nóvember 2021 20:02
Alþingi jafnvel kallað saman fyrir lok vikunnar Forsætisráðherra segir formenn stjórnarflokkanna langt komna með texta að nýjum stjórnarsáttmála en ekki sé farið að ræða verkaskiptingu. Kynnig á sáttmálanum muni bíða þar til endanleg niðurstaða liggi fyrir í Norðvesturkjördæmi. Innlent 16. nóvember 2021 13:17
Horfast þurfi í augu við efnahagslegar afleiðingar kjarasamninga Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi félagsmálaráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins situr nú í forstjórastóli BM Vallár og horfir á pólítíkina og vinnumarkaðinn utan frá. Hann segir íslenska vinnumarkaðslíkanið ónýtt. Ekki hjálpi til að aukin harka hafi færst í samskipti milli aðila vinnumarkaðarins undanfarin ár, ekki síst með tilkomu nýrrar forystu í verkalýðsfélögunum. Innherji 16. nóvember 2021 09:30
Reiknar með að þing komi saman í næstu viku Formaður undirbúningskjörbréfanefndar smíðar nú drög að tveimur mögulegum leiðum sem nefndarmenn munu síðan taka afstöðu til. Þingmenn eru bjartsýnir á að fá niðurstöðu í málið á allra næstu dögum og er sitjandi forseti Alþingis þegar farinn að undirbúa þingfund í næstu viku. Innlent 15. nóvember 2021 18:32
MMR: Fylgi Vinstri grænna eykst og Framsóknar dregst saman milli mælinga Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,2 prósent og mælist flokkurinn sem fyrr stærstur samkvæmt nýrri könnun MMR. Fylgi flokksins er nær óbreytt frá síðustu fylgismælingu og rúmum tveimur prósentustigum minna en við síðustu Alþingiskosningar. Innlent 15. nóvember 2021 13:22
„Menn verða að kunna að sleppa“ Fannar Sveinsson elti þrjá einstaklinga áður en þeir stigu á svið í þættinum Framkoma á Stöð 2 í gærkvöldi. Lífið 15. nóvember 2021 13:00
Óttast að sala Mílu fái litla umfjöllun vegna starfa kjörbréfanefndar Þingmaður Samfylkingarinnar í þjóðaröryggisráði hefur áhyggjur af því að þingið fái ekki nægan tíma til að fjalla um söluna á Mílu vegna starfa undirbúningskjörbréfanefndar. Frestur til að stöðva söluna rennur út eftir mánuð Innlent 15. nóvember 2021 11:52
Telur líklegast að útgefin kjörbréf verði staðfest Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði við Bifröst telur ekki líklegt að ráðist verði í uppkosningu þrátt fyrir kosningalagabrot í Norðvesturkjördæmi. Innlent 14. nóvember 2021 15:24
Niðurstöðu að vænta varðandi Norðvesturkjördæmi eftir helgi Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis er byrjuð ræða efnislega þau álitaefni sem ráða munu niðurstöðu hennar varðandi tillögu um afgreiðslu útgefinna kjörbréfa til þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Nýr stjórnarsáttmáli mögulega kynntur í næstu viku. Innlent 12. nóvember 2021 21:18
Fleiri frávik fundust í kjörgögnum Norðvesturkjördæmis í dag Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis fann í dag fleiri frávik frá talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi en komu fram við endurtalningu og síðar. Tillaga nefndarinnar um hvernig bregðast skuli við frávikunum liggur væntanlega fyrir í næstu viku. Innlent 11. nóvember 2021 19:20
Lækna-Tómas hundskammar Áslaugu Örnu og Þórdísi Kolbrúnu „Nær daglega heyrast neyðaróp frá bráðamóttöku spítalans, þar sem ástandið er fyrir löngu orðið algjörlega óboðlegt, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Á gjörgæsludeildum spítalans er ástandið ekki síður alvarlegt, og nálgast neyðarástand.“ Innlent 11. nóvember 2021 13:35
Óku á öryggisslá við þinghúsið á flótta undan lögreglu Kona var flutt á bráðamóttöku Landspítala í nótt eftir að hún og samverkamaður freistuðu þess að komast undan lögreglu á vespu en enduðu á öryggisslá sem varnar óviðkomandi aðgangi við Alþingishúsið. Innlent 11. nóvember 2021 06:10
Alþingi kallað saman í fyrsta lagi undir lok næstu viku Formaður undirbúningskjörbréfanefndar segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort nefndin komist að sameiginlegri niðurstöðu varðandi gildi útgefinna kjörbréfa Landskjörstjórnar til þingmanna. Nefndin muni ekki ljúka störfum fyrr en í næstu viku. Innlent 10. nóvember 2021 19:31
Inga óttast fjarfundajól með rafsteikum ef ekki verði gripið í taumana Inga Sæland, alþingismaður, segir stöðuna sem nú er uppi vegna aukins fjölda Covid-smita með ólíkindum. Hún segir stöðuna ekki einungis óafsakanlega með öllu, heldur árás á samfélagið í heild sinni. Innlent 10. nóvember 2021 19:17
Kynning ríkisstjórnar gæti dregist um eina til þrjár vikur Eftir að undirbúningskjörbréfanefnd hefur skilað af sér gætu liðið ein til þrjár vikur í að ný ríkisstjórn yrði kynnt, allt eftir því hver niðurstaða nefndarinnar verður. Hún mun mögulega fara í aðra vettvangsheimsókn á talningarstað í Borgarnesi á morgun. Innlent 10. nóvember 2021 11:55
Höfundur Rauðra þráða ekki heyrt af fleiri ódæðum Kristins E Rósa Magnúsdóttir sagnfræðingur, sem nýverið sendi frá sér bók um Kristin E. Andrésson og eiginkonu hans Þóru Vigfúsdóttur, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frásagnar Guðnýjar Bjarnadóttur læknis af grófu kynferðislegu áreiti Kristins í sinn garð þegar hún var níu ára gömul. Innlent 10. nóvember 2021 10:11
Sex vikur frá kosningum og til umræðu að fara í aðra vettvangsferð í Borgarnes Möguleikinn á annarri vettvangsferð til Borgarness til að rannsaka flokkun kjörseðlanna enn betur er nú til umræðu á fundi undirbúningskjörbréfanefndar. Ákvörðunar um hana má vænta þegar fundinum lýkur seinni partinn í dag. Innlent 9. nóvember 2021 12:06
Vanur gagnrýni á störf sín og óttast ekki framhaldið Eftir að hafa unnið á RÚV og gert mögulega allt sem hægt er að gera í fjölmiðlum, er hann á leið á þing fyrir Viðreisn. En hvers vegna? Lífið 9. nóvember 2021 10:31
Bíða með myndun ríkisstjórnar á meðan möguleiki á uppkosningu sé fyrir hendi Forsætisráðherra segir að fræðilegur möguleiki sé á að grípa þurfi til uppkosninga í Norðvesturkjördæmi og því sé rétt að bíða með að kynna nýja ríkisstjórn þar til undirbúningskjörbréfanefnd hafi lokið störfum. Hins vegar sé vinna hafin við að skrifa nýjan stjórnarsáttmála. Innlent 7. nóvember 2021 19:00