Skoðun

Opið bréf til borgarstjórnar vegna málefna í Grafarvogi
Ágæta borgarstjórn. Ég vil minna ykkur á þá staðreynd sem rannsóknir hafa sýnt fram á, að andleg vellíðan er í beinu sambandi við aðgengi að náttúrunni. Á meðan geðheilbrigðismál eru mikið í umræðunni þessa dagana dúkkar upp hver embættismaðurinn á fætur öðrum og lýsir því yfir að það þurfi að bæta um betur.

Opið bréf til foreldra í Drafnarsteini
Kæru foreldrar. Svona byrja ég alla pósta til ykkar. Það eru ekki einungis innantóm orð, heldur eruð þið mér sannarlega kær. Samskipti okkar í skólanum eru mér afar mikilvæg og ég er mjög stolt af ykkur sem hóp og hve samfélagið okkar er fallegt.

Hugleiðing um lög versus viðhorf
Það var athyglisvert að lesa greinar Árnýjar Bjargar Blandon um stjórnmál, og Huga Þórs Grétarssonar í Vísi í dag 19. okt.2024 um að vera þolandi tálmunar, atriðin með að kjósa, og lögin í landinu.

Frægðarvæðing og innihald í stjórnmálum
Greinarhöfundur sagði skilið við stjórnmálin, þ.e.a.s. þingmennsku fyrir rétt rúmum þremur árum síðan. Það gerði ég sáttur eftir langan feril og hugsa almennt með hlýhug og þakklæti til þess góða fólks sem ég átti þar samleið með. Eftir sem áður er manni ekki sama og hefur stundum áhyggjur af því á hvaða vegferð við erum sem lýðræðissamfélag, sem samheldið samfélag.

Frelsi - ekkert miðjumoð!
Lýðræðisflokkurinn er eini íslenski stjórnmálaflokkurinn sem tekur einstaklingsfrelsi alvarlega. Í einstaklingsfrelsi felst að mönnum er frjálst að gera það sem þeir kjósa, nema skaða aðra og hvetja til ofbeldis.

Litlir sigrar, stór áhrif – Hvernig iðjuþjálfar Ljóssins hjálpa krabbameinsgreindum að auka og viðhalda virkni, gleði og styrk
Það að eiga sér tómstundaiðju og stunda hana er hluti af heilbrigðum lífsstíl. Með tómstundaiðju er átt við allar þær athafnir sem við gerum okkur til ánægju en ekki af því að við verðum. Dæmi um tómstundaiðju er að lesa, spila, iðka íþróttir, handavinnu, hjóla, ganga, veiða, fara í bíó, taka þátt í félagsstarfi, stunda garðyrkja og áfram væri lengi hægt telja.

Er ekki best að fara í framboð?
Stórtíðindin að hæstaréttarlögmaðurinn, samfélagsmiðlastjarnan, áhrifavaldurinn og vinsælasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar, sjálfur Brynjar Níelsson (hér eftir nefndur Binni) með 5000 þús. vini á facebook og trilljón læk á innlegg vilji verða þingmaður aftur æsir mann upp í keppnishug.

Er best að gera ekki neitt þegar börn búa ekki við jöfn tækifæri?
Grein mín um móttökuskóla vakti mikla athygli. Mestan stuðning við hugmyndina fékk ég frá kennurum og skólastjórnendum úr fjölda sveitarfélaga sem hafa með mikilli útsjónarsemi og góðum vilja reynt að styðja við fjölbreyttan hóp nemenda með mismunandi þarfir og móðurmál.

Einokun að eilífu, amen
Fákeppni á markaði hækkar verð á nauðsynjum og eykur stéttaskiptingu. Það er óhjákvæmilegt og þetta vitum við. Ég er ekki að mæla óheftum markaðslausnum bót, en heilbrigð samkeppni á smásölumarkaði er grundvallarþáttur í bættum lífskjörum landsbyggðarfólks, þar sem fákeppni og einokun ráða víða ríkjum.

Fjölmennar kvennastéttir
Frambjóðandi menntaði sig inn í tvær kvennastéttir sem sinna mikilvægum störfum, sjúkraliðar og kennarar. Báðar þessar stéttir þiggja lág laun fyrir störf sín þegar horft er til meðallauna í landinu. Alþjóð veit það. Kjarabarátta kennara stendur yfir. Krafan er, að staðið sé við gefið loforð þegar lífeyrisréttindi milli markaða var jafnaður.

Fjölmörg hlutverk skólafólks!
Nú erum við skólafólk á öllum skólastigum og skólagerðum að ganga í gegnum ólgusjó þar sem því miður margir í samfélaginu eru að kasta rýrð á allt það frábæra skólastarf sem á sér stað innan veggja skólanna!

Hvernig samfélag?
Hvernig samfélag viljum við? Um það erum við vissulega ekki öll sammála, en ég veit hvernig samfélagi ég vil búa í. Ég vil búa í samfélagi sem gerir fólki auðveldar fyrir í daglegu amstri, hvort sem það vill stofna fyrirtæki eða eiga í samskiptum við stjórnvöld og stofnanir samfélagsins.

49 ár
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna helgaði árið 1975 stöðu kvenna. Af því tilefni tóku kvenfélög og kvennasamtök hér á landi höndum saman og skipulögðu viðburði til að koma kröfum kvenna um jafnrétti á framfæri. Tillaga um að konur legðu niður störf á degi Sameinuðu þjóðanna þann 24. október var ein þeirra.

Hvers vegna segir Lilja ekki satt?
Margir kvikmyndagerðarmenn hafa haldið því fram að undanförnu að Lilja Alfreðsdóttir menningarráðherra segi ekki satt þegar hún segir nú að aukin framlög í Kvikmyndasjóð á árunum 2020-2021 hafi ekki verið vegna nýrrar kvikmyndastefnu - heldur vegna kóvid.

Tilraunaverkefnið Ísland
Þetta er eins og eitthvað tilraunaverkefni. Dreifið einni evróskri smáborg á 100 þúsund ferkílómetra eyju aðeins sunnar en Svalbarða og gefið þeim gjaldmiðil og sjálfstæði og fisk og fullt af orku og allskonar. Gefðu þeim líka svona inni-veður nema svona 20 daga á ári.

Frumvarp til fjárlaga 2025 - Áherslur ÖBÍ réttindasamtaka
ÖBÍ réttindasamtök hafa birt umsögn sína um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2025. Í umsögninni er lögð áhersla á fimm mál sem varða hagsmuni fatlaðs fólks; kjaramál, húsnæðis- og skipulagsmál, heilbrigðismál, vinnumarkaðsmál og NPA samninga.

Venjulegt fólk á þing – umbætur strax
Nú hefur það verið kunngjört að ég skipa oddvitasætið í Norðvesturkjördæmi fyrir Lýðræðisflokkinn – samtök um frelsi og sjálfsákvörðunarrétt.

Við ætlum áfram, ekki afturábak
Á næsta ári verða liðin 50 ár frá kvennaverkfallinu árið 1975, þegar konur úr öllum samfélagshópum lögðu niður vinnu og stóðu saman með það að markmiði að berjast fyrir bættri stöðu og kjörum kvenna. Tilefnið var ærið, enda voru réttindi og staða kvenna á vinnumarkaði langtum verri en nú er.

Stjórnmálaflokkar og stefnur – Vöndum valið
Við lifum á áhugaverðum tímum. Vandamálin eru mörg hér heima og erlendis,en tækifærin eru líka stórkostleg.

Að geta fundið til með börnum: Heildstæð nálgun í skólakerfinu
Ég hef verið starfsmaður skólakerfisins í næstum 30 ár, þar af í hlutverkum eins og leiðbeinandi, kennari, deildarstjóri, skólastjóri, fulltrúi í skólanefnd, og í stjórn kennara og skólastjórasamtaka. Í allri þessari reynslu hef ég komið að verkefnum og stefnumótun á ýmsum sviðum

Sigrumst á mænusótt (lömunarveiki) sem enn er á sveimi!
Í dag, 24. október, er Alþjóðlegur dagur gegn mænusótt sem einnig er kölluð lömunarveiki - Polio Plus dagurinn - til vitundarvakningar og fjáröflunar fyrir verkefnið um að útrýma mænusótt. Rótarý hreyfingin hefur, í víðtæku samstarfi, unnið að útrýmingu mænusóttar í 45 ár en árið 1979 hófst það metnaðarfulla verkefni með bólusetningu barna á Filipseyjum.

Hélst þú upp á krabbameinið?
Fyrr í þessari viku var bleiki dagurinn haldinn af Krabbameinsfélaginu. Víða á vinnustöðum voru veggir og fólk skreytt með bleiku hátt og lágt, og eflaust hafa ófáir gætt sér á bleikum veitingum.

Raunheimar Suðurnesja
Ég er fæddur og uppalinn Sandgerðingur og hef búið hérna alla mína ævi, að háskólaárum undanskildum. Sem ungur fjölskyldufaðir þriggja orkumikilla stráka þrái ég fátt meira en að framtíð þeirra sé að fá að alast upp í því umhverfi sem ég naut svo góðs af á mínum eigin uppvaxtarárum.

Höfnum gamaldags aðgreiningu
Árið 1974 var fyrst talað um í lögum að skólinn væri fyrir öll börn. Allar götur síðan hafa íslenskir stjórnmálamenn, að mestu, sammælst um þá framtíðarsýn. Í umræðum undanfarið hafa verið settar fram hugmyndir um að aðgreina eigi skóla eftir uppruna barna.

Ragnar Þór Ingólfsson afhjúpar veikan blett
Ragnar Þór Ingólfsson hefur staðið einarður gegn vaxtaokrinu sem aðrir flokkar, nema Flokkur fólksins, hafa látið hjá líða eða jafnvel stutt og réttlætt, þar á meðal Samfylkingin.

Jón Kjartan og Sindri Geir
Fyrir fáeinum vikum hringdi faðir tveggja ungra manna í mig. Hann heitir Ásgeir Gíslason. Hann hafði þá lesið grein sem ég skrifaði um tíð dauðsföll sem rekja má til fíknisjúkdómsins. Sagan sem hann bað mig um að segja er sorglegri en orð fá lýst.

Ómissandi fjársjóður!
Ómissandi fjársjóður! Kvenréttindadagurinn mikli er í dag og tilvalið að ræða stöðu innflytjendakvenna, kvenna af erlendum uppruna. Konur af erlendum uppruna í atvinnulífinu á Íslandi eiga betra skilið.

Myndir þú sætta þig við tólf ára kaupmáttarstöðnun?
Nýlega vísaði Félag prófessora við ríkisháskóla kjaradeilu sinni til Ríkissáttasemjara. Ástæðan er einföld - kaupmáttur launa hjá prófessorum hefur staðið í stað í 8 ár. Laun prófessora hafa, með öðrum orðum, ekkert hækkað umfram verðbólguna frá 2016.

Ég er kennari og ég er stolt af því!
Sú umræða sem er uppi núna um hve skólakerfið sé ómögulegt, að kennarar nenni ekki að kenna og séu alltaf veikir, árangur sé enginn o.fl. í þá áttina á sama tíma og sameinuð kennarastéttin reynir er ná fram í kjarasamningum að ríkið og sveitarfélög standi við gerðan samning, er mér hulin ráðgáta.

Frægir í framboð
Er það ekki veikleikamerki flokka að finnast þeir þurfa að fylla oddvita sæti í kjördæmum með “frægu” fólki, fólki sem ekki hefur tekið þátt í flokksstarfi en er lyft fram fyrir félaga í flokknum sem sinnt hafa innra flokksstarfi árum eða jafnvel áratugum saman?