Formúla 1

Mercedes Formúlu 1 liðið jákvætt og í baráttuhug þrátt fyrir erfiða byrjun
Nico Rosberg hjá Mercedes liðinu náði þriðja sæti í Formúlu 1 mótinu í Malasíu í fyrra og mætir þangað á nýjan leik, ásamt liðsfélaganum Michael Schumacher um aðra helgi. Mercedes liðinu gekk ekki vel í fyrsta móti ársins. Báðir ökumenn féllu úr leik eftir árekstur.

Viðsjárvert veður tækifæri til að skáka þeim fremstu
John Booth, yfirmaður Marussia Virgin liðsins sem byrjaði að keppa í Formúlu 1 í fyrra segir að lið sitt hafi byrjað þetta keppnistímabil betur, en liðið byrjaði í fyrra. Fyrsta mót ársins var í Ástralíu um síðustu helgi. Formúlu 1 lið ferðast mikið á næstunni, því keppt verður í Malasíu um aðra helgi og Kína helgina þar á eftir.

Button: Erfiðasta mótið í Malasíu
Jenson Button hjá McLaren telur að Formúlu 1 mótið á Sepang brautinni í Malasíu um aðra helgi sé það erfiðasta hvað líkamleg átök varðar. Hann var sáttur við bíl sinn í mótinu í Ástralíu um síðustu helgi, en Button vann mótið í Malasíu árið 2009.

Yfirmaður Formúlu 1 liðs Lotus heiðraður af Bretadrottningu
Tony Fernandez frá Malasíu var í dag veitt CBE orða breska samveldisins af Elísabetu II, Bretadrottingu fyrir framlag hans til eflingar á viðskiptusamböndum og menntamálum á milli Bretlands og Malasíu.

Eigandi Sauber ánægður með fyrsta mót Sergio Perez frá Mexíkó
Sergio Perez frá Mexíkó keppti í sínu fyrsta Formúlu 1 móti í Ástralíu á sunnudaginn með Sauber liðinu og náði sjöunda sæti, hvað aksturstíma varðar. En hann og Kamui Kobayashi voru dæmdir úr leik, þar sem bílar Sauber liðsins voru taldir ólöglegir eftir keppni. Kobayahsi varð í áttunda sæti, en árangur beggja var þurrkaður út eftir keppnina.

Alonso: Engin afhroð í Ástralíu hjá Ferrari
Fernando Alonso lauk keppni í fjórða sæti í Formúlu 1 mótinu í Ástralíu á sunnudaginn, eftir að hafa misst marga ökumenn framúr sér í fyrsta hring. Alonso segir þó Ferrari ekki hafa beðið nein afhroð í mótinu, en liðsfélagi hans, Felipe Massa varð sjöundi í mótinu. Eftir að tveir Sauber ökumenn voru dæmdir úr leik.

Sauber áfrýjar ekki úrskurði dómara í Ástralíu
Sauber Formúlu 1 liðið var dæmt brotlegt gagnvart tæknireglum FIA í fyrsta móti ársins á sunnudaginn. Dómarar sögðu liðið með ólöglega afturvængi á bílum Kamui Kobayashi og Sergio Perez. Sauber liðið ætlar ekki að áfrýja málinu til FIA, samkvæmt tilkynningu þar um í dag

Lewis Hamilton í kvikmynd frá Disney
Lewis Hamilton verður hluti af nýrri kvikmynd frá Walt Disney samsteypunni sem nefnist Cars 2 og er teiknimynd. Myndin er sjálfstætt framhald af myndinni Cars, sem varð mjög vinsæl þegar hún var sýnd árið 2006.

Rússinn Petrov þakklátur fyrir stuðning Renault
Rússinn Vitaly Petrov varð í gær fyrsti Rússinn til að komast á verðlaunapall í Formúlu 1 móti, þegar hann keppti í fyrstu keppni ársins í Ástralíu. Petrov varð á eftir Sebastian Vettel og Lewis Hamilton.

Sauber liðið ætlar að áfrýja refsingu dómara til FIA
James Key, tæknistjóri Sauber segir að lið sitt muni áfrýja niðurstöðu dómara í Formúlu 1 mótinu í Ástralíu í dag. Árangur Sergio Perez og Kamui Kobayashi var þurrkaður út vegna þess að dómarar töldu að afturvængir bílanna væru ólöglegir eftir keppni.

Formúlu 1 ökumenn dæmdir úr leik eftir framúrskarandi árangur
Það var skammvinn gleði nýliðans Sergio Perez og Kamui Kobayahsi eftir ástralska kappaksturinn í dag. Þeir urðu í sjöunda og áttunda sætinu í mótinu, en dómarar mótsins dæmdu bíla þeirra ólöglega eftir keppni.

Vettel: Gott að leggja línurnar með sigri í fyrsta mótinu
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var ánægður með sigurinn á götum Melbourne í Ástralíu í dag. Hann hóf titilvörnina með sigri.

Vettel hóf titilvörnina með sigri
Sebastian Vettel hjá Red Bull vann fyrsta Formúlu 1 mót ársins á götum Melbourne í Ástralíu í dag. Hann hafði nokkra yfirburði í mótinu, eftir að hafa náð langbesta tíma í tímatökum.

Staðan vænleg hjá Vettel, en Webber vonsvikinn með eigin frammistöðu
Ríkjandi meistari í Formúlu 1, Sebastin Vettel byrjaði titilvörina vel þegar hann náði besta tíma í tímatökum fyrir ástralska kappaksturinn í morgun á Red Bull. Fimm meistarar verða á ráslínunni nótt í fyrsta móti ársins.

Vettel fremstur á ráslínu eftir afburðarárangur í tímatökum
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull náði langbesta tíma í Formúlu 1 tímatökunni í Melbourne í Ástralíu í morgun. Hann varð 0.866 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren Mercedes.

Vettel stakk af á lokæfingunni
Sebastian Vettel á Red Bull var langt á undan keppinautum sínum á síðustu æfingunni fyrir tímatökuna í Melbourne í Ástralíu í nótt. Hann varð 0.8 sekúndum á undan Mark Webber á Red Bull, sem er á heimavelli.

Formúla 1 send út í háskerpu í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport um helgina
Fyrsta Formúlu 1 mót ársins verður sent út í háskerpu á Stöð 2 Sport um helgina og tímatakan, kappaksturinn og þátturinn Endamarkið verða í opinni dagskrá.

Button og Hamilton á toppnum á McLaren í Melbourne
McLaren ökumennirnir Jenson Button og Lewis Hamilton voru fljótastir á seinni æfingu Formúlu 1 liða í nótt, á götubrautinni í Melbourne í Ástralíu. Á fyrri æfingurnni var Mark Webber á Red Bull fljótastur á undan félaga sínum Sebastian Vettel hjá Red Bull.

Webber fljótastur á fyrstu æfingunni
Heimamaðurinn Mark Webber á Red Bull var sneggstur um Albert Park brautina í Melboourne, á æfingu fyrir fyrsta kappakstur ársins í Ástralíu í nótt samkvæmt frétt á autosport.com.

Webber: Heppinn að hafa heimavöll í óútreiknanlegu móti í Melbourne
Heimamaðurinn Mark Webber hjá Red Bull er á heimavelli í fyrsta Formúlu 1 móti ársins. Hann telur að keppnisáætlnir verði mikilvægar í mótum vegna nýrra reglna og búnaðs bílanna í ár, sem ökumenn hafa prófað á æfingum í vetur.

Vettel: Erfitt að meta styrkleika keppinautanna
Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel hjá Red Bull telur að erfitt sé að meta hvernig hann stendur gagnvart keppinautum sínum. Hann keppir í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu á sunnudaginn.

Domenicali: Lykilatriði að vera með rétta keppnisáætlun til að sigra
Yfirmaður Ferrrari, Stefano Domenicali telur að keppnisáætlanir Formúlu 1 liða muni ráða meiru en áður, hvað varðar sigurmöguleika ökumanna í mótum.

Fimm Formúlu 1 heimsmeistarar verða á ráslínunni í Ástralíu
Fimm heimsmeistarar ökumanna í Formúlu 1 verða á ráslínunni í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Melbourne í Ástralíu um næstu helgi. Það fer fram á Albert Park götubrautunni í Melbourne.

Nýliðinn Maldonado og reynsluboltinn Barrichello eru tilbúnir í fyrsta Formúlu 1 mótið
Nýliðinn Pastor Maldonado frá Venúsúela hjá Williams segir spennandi að takast á við sitt fyrsta Formúlu 1 mót um næstu helgi. Það verður í Ástralíu. Maldonado varð meistari í fyrra í GP2 mótaröðinni, sem er undirmótaröð Formúlu 1. Hann ekur með Brasilíumanninum Rubens Barrichello hjá Williams, sem er einbeittur fyrir fyrsta mótið eftir að hafa notið þess að vera í fríi með fjölskyldu sinni.

Formúlu 1 ökumaðurinn Kobayashi vill færa Japönum von og jákvæðar fréttir
Japaninn Kamui Kobayashi hjá Sauber Formúu 1 liðinu kveðst vilja ná hagstæðum úrslitum í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu 27. mars, til að færa landsmönnum sínar einhverjar jákvæðar fréttir á erfiðum tímum.

Button afskrifar ekki þriðja sigurinn í röð í Ástralíu
Jenson Button hjá McLaren mætir í fyrsta Formúlu 1 mót ársins 27. mars í Ástralíu með McLaren liðinu, ásamt Lewis Hamilton. Hann hefur unnið sama mót tvö síðustu ár á Albert Park brautinni í Melbourne. Button og Hamilton ræddu málin í fréttatilkynningu frá McLaren sem var birt á autosport.com í dag.

Webber á heimavelli í fyrsta mótinu og meistarinn Vettel spenntur að keppa á ný
Formúlu 1 meistaralið Red Bull er tilbúið í titilvörnina, sem hefst í fyrsta Formúlu 1 mótinu í Ástralíu 27. mars. Ekið verður á afmarkaðri götubraut í borginni Melbourne og nefnist brautarstæðið Albert Park.

Sauber Formúlu 1 liðið ætlar að sýna japönsku þjóðinni stuðning
Formúlu 1 lið Sauber verður merktir í fyrsta móti ársins í Ástralíu með sérstakri kveðju til japönsku þjóðarinnar vegna hinna hörmulega atburða sem hafa átt sér stað í landinu að undanförnu. Japaninn Kamui Kobayashi er annar ökumanna Sauber liðsins.

Schumacher er vongóður um að geta keppt til sigurs í einhverjum mótum
Michael Schumacher ekur með Mercedes Formúlu 1 liðinu í ár, eins og í fyrra, en hann mætti til leiks á ný eftir þriggja ára hlé 2010. Í dag segist hann njóta þess að keppa með Mercedes, en keppnislið hans sendi frá sér viðtal við kappann, sem birtist á autosport.com í dag og neðan er hluti þess í lauslegri þýðingu.

Alonso: Mikilvægast að vera með snöggan bíl
Fernando Alonso hjá Ferrari telur að það lið og ökumaður sem er með fljótasta bílinn næli í meistaratitilinn í ár. Hann hefur ekki trú á því að tilkoma nýs dekkjaframleiðanda verði afgerandi hvað útkomu bílanna varðar, en vandasamara gæti orðið að taka ákvarðanir varðandi þjónustuáætlanir en í fyrra.