Sport

Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu

Aron Guðmundsson skrifar
Mari er með gott teymi í kringum sig.
Mari er með gott teymi í kringum sig. Mynd: Sportmyndir.is/Guðmundur Freyr Jónsson

Það er ekki að sjá á hlaupadrottningunni Mari Jaersk að hún sé á leið heim úr landsliðskeppni í Bakgarðshlaupum á næstunni. Hún nýtir hverja einustu sekúndu milli hringja til hins ítrasta.

Þegar þetta er skrifað stendur ellefti hringur keppninnar yfir og eftir hann verður búið að rjúfa 70 kílómetra múrinn.

Það kom mörgum á óvart þegar Mari, hlaupadrottningin orkumikla, boðaði komu sína í landsliðskeppnina með íslenska landsliðinu en hún fæddi frumburð sinn og unnustans Njarðar Lúðvíkssonar núna seinni hluta sumars.

Mari kallar ekki allt ömmu sína og virðist ekkert á heimleið á næstunni. Hún veitir áhugafólki um bakgarðsbrölt sitt mikla innsýn í lífið milli hringja á Instagram-reikningi sínum. Þar sést hversu vel hún þarf að nýta þær örfáu mínútur sem hún fær til hvíldar milli hringja.

Mari fékk rúmar tíu mínútur fyrir yfirstandandi hring til þess að hvílast, nærast, skipta um föt, hringja heim og kanna stöðuna hjá unnusta sínum og syni. Að auki, þar sem hún er með barn á brjósti, þurfti hún að láta brjóstapumpu mjólka sig.

Í samtali við Njörð bauð hún feðgunum góða nótt og sagðist ekki ætla að hringja í þá í fyrramálið af ótta við að vekja þá.

Hægt er að draga þá ályktun að Mari sé því á flottum stað miðað við allt bæði líkamlega og andlega. Að hún ætli sér að komast í gegnum nóttina með íslenska landsliðinu.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá landsliðskeppni í bakgarðshlaupum á Vísi: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×