Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2026 13:37 Kvennalandsliðið missti af verðlaunum með sárgrætilegum hætti á EM í Finnlandi FSÍ Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum missti af verðlaunasæti á EM í Finnlandi í dag með nístingssárum hætti, eða minnsta mögulega mun. Ísland varð einnig í 4. sæti í keppni blandaðra liða.
Íslenska liðið byrjaði á trampólíni og hlaut þar 17,200 stig eftir dýrkeypt fall í lokin, eftir að hafa fengið 17,850 stig í undankeppninni. Einkunnin í gólfæfingum var einnig lægri í dag en í undankeppninni eða 17,800 og liðið endaði svo á að fá 16,850 stig á dýnu eða samtals 51,850 stig í keppninni. Það voru því Bretar sem hrepptu bronsverðlaunin með 51,900 stig og fögnuðu skiljanlega gríðarlega þessum óvæntu verðlaunum. Svíar sýndu enn og aftur mátt sinn og megin með því að verða Evrópumeistarar, með 54,150 stig, en Danmörk fékk silfur að þessu sinni með 53,000 stig. Í keppni blandaðra liða varð Ísland í 4. sæti með samtals 52,750 stig, fyrir ofan bæði Ítalíu og Noreg. Nokkuð vantaði þó upp á verðlaunasæti en Danmörk fékk brons með 55,150 stig og spennan var gríðarleg í baráttunni um gullið sem Svíar unnu með 56,750 stigum gegn 56,650 stigum Breta. Blandaða liðið varð í 4. sæti á EM í hópfimleikum í Finnlandi.FSÍ Fyrirliðinn Dagný Lind Hreggviðsdóttir og þjálfarinn Yrsa Ívarsdóttir fóru yfir málin eftir keppni blönduðu liðanna í viðtölum sem sjá má hér að neðan.
EM í hópfimleikum Fimleikar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Valur - KA | Nær KA að sleppa frá falli? Íslenski boltinn Keflavík - KR | Geta gulltryggt annað sætið Íslenski boltinn Brentford - Liverpool | Mæta til leiks eftir flengingu í síðustu umferð Enski boltinn Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Fótbolti Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Sport Fleiri fréttir Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Manchester City - Ipswich | Halda áfram göngu þrátt fyrir dóminn Þór - Stjarnan | Heimamenn í mikilli fallbaráttu Brentford - Liverpool | Mæta til leiks eftir flengingu í síðustu umferð Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Valur - KA | Nær KA að sleppa frá falli? Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Keflavík - KR | Geta gulltryggt annað sætið Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Finnur til með Arnari Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Dagskráin í dag: Stórlið í Doc Zone og æsileg barátta Þórs og KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ „Þetta er keppni í því að vinna“ Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sjá meira