
Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Kölluðu Trump „vælukjóa“
Joe Biden kom fram á blaðamannafundi í nótt með Kamölu Harris, varaforsetaefni sínu, í fyrsta sinn síðan hann tilkynnti um valið á Harris.

Hver er þessi Kamala?
Öldungadeildarþingmaðurinn Kamala Harris er varaforsetaefni Joe Biden, forsetaframbjóðanda demókrata, í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Valið á henni sem varaforsetaefni er sögulegt af ýmsum ástæðum.

Kamala Harris varaforsetaefni Biden
Joe Biden, væntanlegur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, hefur valið Kamala Harris sem varaforsetaefni sitt.

Forsetaframbjóðandi missti af fyrsta framboðsfundinum vegna árásar leðurblöku
Forsetaframbjóðandi bandaríska Frjálshyggjuflokksins, háskólakennarinn Jo Jorgensen, sá sér ekki fært að mæta á fyrsta skipulagða viðburð kosningabaráttu hennar sem fara átti fram fyrr í dag. Jorgensen mun verja helginni í kosningaferð um suðurríkin Mississippi og Louisiana.

Kínverjar sagðir vilja losna við Trump en Rússar beita sér gegn Biden
Yfirmaður einnar leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna telur að kínversk stjórnvöld vonist til þess að Donald Trump nái ekki endurkjöri sem forseti í haust og reynir að beita áhrifum sínum í aðdraganda kosninga í haust.

Sakaði Biden um að ætla að „skaða guð“
Donald Trump Bandaríkjaforseti réðst á trú Joe Biden, væntanlegs forsetframbjóðanda Demókrataflokksins, og sagði að hann ætli sér að „skaða guð“ í heimsókn í Ohio í dag. Framboð Biden sakaði forsetann á móti um að notfæra sé Biblíuna í pólitískum tilgangi.

Repúblikanar hjálpa Kanye West að komast á kjörseðilinn
Nokkrir einstaklingar sem tengjast Repúblikanaflokknum hafa lagt Kanye West lið til að koma honum á kjörseðilinn sem víðast fyrir forsetakosningarnar í haust. Hugsanlegt er talið að repúblikanar telji að framboð West gæti hjálpað Donald Trump forseta að ná endurkjöri.

Biden ætlar ekki á landsfund Demókrataflokksins
Joe Biden, væntanlegt forsetaefni Demókrataflokksins, ætlar ekki að verða viðstaddur landsfund í Wisconsin þar sem hann verður formlega útnefndur forsetaframbjóðandi flokksins í þessum mánuði vegna kórónuveirufaraldursins.

Fallon tók fyrir „lestarslys“ Trumps
Donald Trump Bandaríkjaforseti settist niður með fréttamanninum Jonathan Swan í þættinum AXIOS á HBO á dögunum og ræddi við hann í um fjörutíu mínútur um fjölmörg málefni.

Neil Young höfðar mál gegn Trump
Tónlistarmaðurinn víðfrægi Neil Young hefur höfðað mál gegn framboði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, fyrir að nota tónlist hans án leyfis.

Hótar Nevada lögsókn vegna póstatkvæða
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur heitið því að höfða mál vegna ákvörðunar ríkisþingmanna í Nevada, þar sem Demókratar eru í meirihluta, um að senda póstkjörseðla til kjósenda í ríkinu.

Telur að Trump láti ekki þegjandi og hljóðalaust af embætti
Þingmaður fulltrúadeildar Bandaríkjaþings líkti Donald Trump Bandaríkjaforseta við ítalska einræðisherrann og fasistann Benito Mussolini í dag.

Samflokksmenn Trump hafna hugmyndum um frestun kosninganna
Leiðtogar Repúblikanaflokksins í báðum deildum Bandaríkjaþings hafa hafnað tillögu Bandaríkjaforseta um að forsetakosningunum sem fara fram í nóvember verði frestað vegna áhyggja af kosningasvindli.

Trump ýjar að því að kosningum verði frestað
Donald Trump Bandaríkjaforseti ýjaði að því að forsetakosningunum sem eiga að fara fram í nóvember verði mögulega frestað. Í tísti sem forsetinn sendi frá sér í dag heldur hann því rakalaust fram að stórfelld svik verði framin í kosningunum.

Kim Kardashian brotnaði niður þegar hún hitti Kanye West
Bandaríski tónlistarmaðurinn, tískumógúllinn og forsetaframbjóðandinn Kanye West hefur beðið Kim Kardashian West eiginkonu sína afsökunar vegna ummæla sem hann lét falla opinberlega um einkamál fjölskyldunnar.

Fyrstu kappræðurnar fara fram í Cleveland
Fyrstu kappræðurnar, sem haldnar verða fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, munu fara fram í borginni Cleveland í Ohio 29. september næstkomandi.

Aukin harka í mótmælum í Bandaríkjunum
Til ákafra átaka kom á milli mótmælenda og lögreglumanna í Portland í Bandaríkjunum í nótt. Aukin harka færðist í mótmæli sem hafa geisað vegna lögregluofbeldis og kerfislægrar kynþáttahyggju víðar í Bandaríkjunum um helgina

Á brattann að sækja hundrað daga í kosningar
undrað dagar eru þar til Bandaríkjamenn ganga til kosninga og velja sér forseta til fjögurra ára. Donald Trump sækist eftir endurkjöri en hann á þó á brattann að sækja.

Kanye biður Kim afsökunar
Bandaríski tónlistarmaðurinn, tískumógúllinn og forsetaframbjóðandinn Kanye West hefur beðið Kim Kardashian West eiginkonu sína afsökunar vegna ummæla sem hann lét falla opinberlega um einkamál fjölskyldunnar.

Boðar umfangsmiklar aðgerðir á grunni vafasamrar lögskýringar
Meiriháttar aðgerðir í innflytjenda- og heilbrigðismálum er á meðal þess sem Donald Trump Bandaríkjaforsetu hefur boðað á grundvelli túlkunar á hæstaréttarúrskurði frá því fyrr í sumar. Lögspekingar segja túlkunina, sem færði forseta stórauknar valdheimildir, ekki standast stjórnarskrá.

Trump aflýsir landsþingi Repúblikana
Bandaríkjaforseti hefur tekið ákvörðun um að aflýsa landsþingi Repúblikanaflokksins sem átti að fara fram í Flórída í lok ágúst.

Alríkislögregla skaut táragasi á borgarstjóra Portland
Borgarstjóri Portland í Oregon í Bandaríkjunum var í hópi mótmælenda sem löggæsluliðar alríkisstjórnarinnar skutu táragasi á í gærkvöldi. Mótmælin beindust að veru ómerktra og þungvopnaðra alríkislögreglumanna í felulitum í borginni.

Hótar að senda leynilögreglu til borga sem demókratar stýra
Ómerktir alríkislögreglumenn gætu verið sendir til nokkurra bandarískra borga á næstunni ef Donald Trump forseta verður að vilja sínum.

Trump varði sig með lygum í átakasömu viðtali við Fox
Misheppnuð viðbrögð Bandaríkjastjórnar við kórónuveirufaraldrinum voru efst á baugi í átakasömu viðtali Donalds Trump Bandaríkjaforseta við Fox-sjónvarpsstöðina um helgina. Trump hélt fast í lygar og misvísandi fullyrðingar þrátt fyrir tilraunir spyrils Fox til þess að ganga á forsetann um sannleiksgildi þeirra.

Kanye West hélt óhefðbundinn stuðningsmannafund
Tónlistarmaðurinn Kanye West virðist hafa hafið kosningabaráttu sína í gær með óhefðbundnum stuðningsmannafundi í Charleston í Suður-Karólínu

Trump skiptir um kosningastjóra í skugga dvínandi vinsælda
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að hann ætlaði að skipta um kosningastjóra. Forsetinn hefur átt undir högg að sækja í skoðanakönnunum og er sagður kenna fráfarandi kosningastjóranum um misheppnaðan kosningafund í Tulsa á dögunum.

Óð úr einu í annað á furðulegum „blaðamannafundi“
Donald Trump Bandaríkjaforseti sakaði Joe Biden, væntanlegan mótframbjóðanda sinn, um að ætla að binda enda á glugga og úthverfi á furðulegum fundi með fréttamönnum í Hvíta húsinu í gær.

Segir kosningabaráttu Kanye West lokið
Kosningabaráttu Kanye West er lokið, rúmri viku eftir að hún hófst.

Facebook sagt íhuga að banna stjórnmálaauglýsingar
Stjórnendur samfélagsmiðlarisans Facebook eru nú sagðir íhuga möguleikann að bann stjórnmálaauglýsingar á miðlinum síðustu dagana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Facebook hefur sætt gagnrýni úr ýmsum áttum fyrir stefnu sína gagnvart upplýsingafalsi.

Biden með afgerandi forskot í skoðanakönnunum
Skoðanakannanir benda til þess að Joe Biden, líklegur forsetaframbjóðandi demókrata, hefði afgerandi sigur á Donald Trump Bandaríkjaforseta í kosningum sem fara fram í nóvember.